FólkBest að finna jafnvægið í öllu23. desember 2018 Hafrún Lilja Elíasdóttir er sannkallaður baksturssnillingur sem hefur þann hæfileika að baka ekki aðeins gómsætar kökur, heldur líka dásamlega fallegar kökur. Fjölskyldumeðlimir og vinir Hafrúnar njóta oft góðs af hæfileikum hennar en þegar kemur að hinum ýmsu tilefnum er hún ávallt boðin og búin að leggja sitt á vogarskálarnar.
MannlífiðKryddaður kakóbolli13. desember 2018 Eitt af því sem margir tengja við jólahátíðina er heitt súkkulaði. Þá er gaman að bjóða upp á kakó með ekta súkkulaði og þeyttum rjóma. Hér er uppskrift að krydduðu kakói fyrir þá sem vilja prófa slíkt og nokkrar tillögur að annars konar bragðefni.
MannlífiðSjúkleg súkkulaðikaka með lakkríssírópi12. desember 2018 Íslendingar eru margir sólgnir í lakkrís og því vinsælt að blanda honum saman við ýmislegt góðgæti eins og súkkulaði. Hér er yndisleg kaka fyrir þá sem elska lakkrís og súkkulaði.
MannlífiðJólalegt sætabrauð9. desember 2018 Mikil hefð er fyrir epla-strudel í Austurríki og Þýskalandi og bjóða flest kaffihús upp á þetta dásamlega sætabrauð. Þunnt stökkt deig með kryddaðri eplafyllingu, borið fram með vanillusósu eða ís, getur ekki klikkað. Margir halda að erfitt sé að búa til strudel en það er mikill miskilningur og tekur ekki langan tíma. Þeir sem elska epli, kanil og vanillusósu ættu því ekki að láta þessa fram hjá sér fara.
MannlífiðMarenstoppar með heslihnetum og súkkulaði5. desember 2018 Meðfylgjandi er uppskrift að gómsætum marenstoppum með heslihnetum og súkkulaði. Er ekki tilvalið að baka þessa fyrir jólin?
MannlífiðVegan-kaka í glæsilegu kökublaði Vikunnar25. nóvember 2018 Kökublað Vikunnar sem margir bíða spenntir eftir ár hvert er komið í verslanir. Sigríður Björk Bragadóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Salt eldhúss, er ein þeirra sem deilir uppskrift í blaðinu en hún er að eigin sögn forfallin smákökubakari. Hér bakar hún ljúffenga vegan-köku.
MannlífiðSmákökur sem bráðna í munni21. nóvember 2018 Jólin verða seint fullkomnuð ef ekki eru smákökur í húsinu, bökunarlyktin ein og sér er til þess fallin að koma flestum í jólaskap í myrkasta skammdeginu. Meðfylgjandi er uppskrift að gómsætum Alfajores-smákökum sem bráðna í munni.
MannlífiðFljótlegir eftirréttir5. október 2018 Sumum vex í augum að búa til eftirrétti en það þarf alls ekki að vera flókið eða tímafrekt. Hér eru einfaldar uppskriftir þar sem ávextir og ber eru í aðalhlutverki. Gott er að bera fram svolítinn rjóma eða ís á eftirréttina og þá er kominn fullkominn endir á góðri máltíð.
MannlífiðFljótlegur eftirréttur í miðri viku4. september 2018 Hér fá bláberin að njóta sín í bland við kardimommur og hnausþykka gríska jógúrt. Kardimommubragðið kemur virkilega á óvart og á vel við berin. Þessi eftirréttur getur líka verið sparilegur morgunmatur.
MannlífiðKaffikaka með hlynsírópskremi12. ágúst 2018 Þessi kaka er ein af mínum uppáhalds og ég reyni iðulega að finna tækifæri til að bera hana fram. Hún er sérstaklega tíguleg þegar notað er hringlaga og mynstrað formkökuform en þó má nota hringlaga form, tvö hefðbundin formkökuform eða 33x 23 cm kassalaga form.
MannlífiðFíkju- og geitaostabaka11. ágúst 2018 Þessa böku er mjög auðvelt að útbúa fyrir utan hvað hún bragðast dásamlega. Furuhnetur í bland við bragðmikinn ost og sætan frá ávöxtunum gera þennan rétt ómótstæðilegan. Tilvalinn smáréttur þegar von er á gestum og ekki mikill tími fyrir flókna eldamennsku.
MannlífiðPeach Melba15. júlí 2018 Pêche Melba er löngu orðinn klassískur eftirréttur og hefur verið á matseðlum veitingahúsa allt frá því að matreiðslumaðurinn frægi Georges Escoffier framreiddi hann fyrst fyrir óperusöngkonuna Nellie Melba undir lok 19. aldar. Melba var áströlsk að uppruna en hafði elt draum sinn um frægð og frama á óperusviðinu til Evrópu.