InnlentFékk ekki krónu borgaða fyrstu árin28. apríl 2019 Tómas Þór Þórðarson, sem nýverið var ráðinn til að lýsa enska boltanum í Sjónvarpi Símans næsta hausti, hefur verið lengi í íþróttafréttamennskunni og byrjaði strax á unglingsaldri að skrifa um leiki á heimasíðu síns félags, Víkings. En hvað kom til að hann tók þá ákvörðun að gera þetta að ævistarfi?
InnlentVar með eina og hálfa manneskju utan á sér26. apríl 2019 Tómas Þór Þórðarson hefur verið ráðinn til að stýra þætti um enska boltann þegar Sjónvarp Símans tekur við útsendingum frá ensku deildunum í sumar. Hann segist vera ánægður með nýja starfið, þótt hann sé í eðli sínu lítið gefinn fyrir breytingar. Fáir hafa þó gert meiri breytingar á lífi sínu en hann undanfarin ár því árið 2014 var hann orðinn 225 kíló og átti erfitt með að hreyfa sig en er í dag 105 kíló og í fínu formi. Hann segir breytinguna jafnast á við að losna úr fjötrum.
InnlentStjórnmálaflokkum boðið að kaupa umfjöllun um pólitískt hitamál17. apríl 2019 DV bauð þeim stjórnmálaflokkum sem eiga sæti á Alþingi að kaupa umfjöllun um þriðja orkupakkann sem er eitt heitasta deilumálið í pólitíkinni um þessar mundir. Slíkt tilboð er líklegt til að brjóta í bága við siðareglur blaðamanna.
FólkFjölbreytileikanum loksins fagnað á síðum Vogue4. apríl 2019 Tískuheimurinn, með tískubiblíuna Vogue fremsta í flokki, hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir að fagna fjölbreytileikanum. Hvítar og horaðar fyrirsætur, og seinna leikkonur, eru það sem við höfum mátt venjast á forsíðum tímaritsins síðan það var stofnað fyrir rúmri öld.
HeimurGerðu örvæntingafulla tilraun til að ná til unga fólksins3. apríl 2019 Fréttamenn hjá WTOL 11-sjónvarpsstöðinni reyndu að ná til unga fólksins með óvenjulegri aðferð. Myndband
Innlent„Vel gert“24. mars 2019 Fordómar koma oft upp á yfirborðið þegar hryðjuverkaárásir, sem beinast að afmörkuðum hópum, eiga sér stað. Það mátti sjá þetta í athugasemdakerfum íslenskra fjölmiðla þegar árásin var gerð á Nýja-Sjálandi.
InnlentÁsakanir um hatursorðræðu gömul saga og ný24. mars 2019 Útvarp Saga hefur margoft verið gagnrýnd fyrir útbreiðslu hatursorðræðu. Fyrir tveimur árum lýsti nefnd Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi (ECRI) yfir áhyggjum af því að Útvarp Saga dreifði hatursorðræðu sem beint væri að innflytjendum, múslimum og hinsegin fólki. Útvarpsmaðurinn Pétur Gunnlaugsson sætti ákæru vegna hatursorðræðu er beindist gegn samkynhneigðum en var sýknaður.
InnlentVitna ítrekað í vafasama miðla23. mars 2019 Í umfjöllun sinni um erlend málefni, einkum málefni er tengjast innflytjendum og Evrópusambandinu, vísar Útvarp Saga ítrekað til miðla sem hafa orð á sér fyrir að birta falsfréttir eða gefa mjög brenglaða mynd af raunveruleikanum. Sumir þessara miðla hafa bein sambönd við öfgahreyfingar eða stjórnmálaflokka sem reka harða innflytjendastefnu. Hér á eftir má finna lýsingu á nokkrum af þeim miðlum sem Útvarp Saga hefur vísað til.
InnlentLjósmyndaveisla í Smáralind22. mars 2019 Á morgun, 23. mars, verður árleg ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Myndir ársins, opnuð í göngugötu Smáralindar á fyrstu hæð. Veitt verða verðlaun í sjö flokkum auk verðlauna fyrir mynd ársins og verðlaunaafhendingin hefst kl. 15:00.
InnlentBreiða út samsæriskenningar öfgaaflanna22. mars 2019 Vefur Útvarps Sögu hefur margoft endurbirt efni af síðum sem birta falskar og skrumskældar fréttir sem ætlað er að kasta rýrð á innflytjendur. Sænskur sérfræðingur segir umræddar síður grafa undan stofnunum lýðræðisins og kynda undir fordómum.
InnlentTilnefnt til blaðamannaverðlauna: Ekkja plastbarkaþegans rýfur þögnina21. mars 2019 Ragnheiður Linnet, blaðakona Mannlífs, er tilnefnd til blaðamannaverðlaunanna fyrir viðtal ársins vegna viðtals hennar við Merhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju plastbarkaþegans, Andemariam Beyene. Við endurbirtum hér viðtalið. Blaðamannaverðlaun Íslands verða afhent á morgun, föstudaginn 22. mars. Hér má sjá allar tilnefningar. Merhawit Baryamikael Tesfaslase segir frá því hvernig líf fjölskyldu hennar umturnaðist eftir að maður hennar var sendur í tilraunaaðgerðina örlagaríku....
InnlentTilnefnd til blaðamannaverðlaunanna fyrir viðtal við ekkju plastbarkaþegans15. mars 2019 Ragnheiður Linnet, blaðakona Mannlífs, er tilnefnd til blaðamannaverðlaunanna fyrir viðtal ársins vegna viðtals hennar við Merhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju plastbarkaþegans, Andemariam Beyene.