Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjölbreytileikanum loksins fagnað á síðum Vogue

Tísku­heim­ur­inn, með tísku­bibl­í­una Vogue fremsta í flokki, hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir að fagna fjöl­breyti­leik­anum. Hvítar og hor­aðar fyr­ir­sætur, og seinna leikkonur, eru það sem við höfum mátt venj­ast á for­síðum tíma­rits­ins síðan það var stofnað fyrir rúmri öld.

Fjölbreytileikanum loksins fagnað á síðum Vogue

Í því ljósi hefur verið einkar ánægju­legt að fylgj­ast með fyrstu skrefum nýs rit­stjóra breska Vogue, Edwards Enninful, en fyrsta konan til þess að prýða for­síð­una undir hans stjórn var engin önnur en fem­iníski aktí­vist­inn og fyr­ir­sæta af blönd­uðum upp­runa, Adwoa Aboah. Með þeirri ákvörðun gaf hann til kynna það sem koma skal – hann mun ekki veigra sér við að taka póli­tíska afstöðu.

Adwoa hefur verið ein vin­sælasta fyr­ir­sætan síð­ustu miss­erin en hún er einnig stofn­andi sam­tak­anna Gurls Talk, sem hvetja ungar konur til þess að tala opin­skátt um mál­efni sem brenna á þeim, hvort sem það er and­leg heilsa, lík­ams­í­mynd, fíkn eða kyn­vit­und.

Stærstu fyr­ir­sagnir þessa fyrsta tölu­blaðs nýja rit­stjór­ans minn­ast ekki á trendin, vin­sæl­ustu tösk­urnar eða nýja mask­ara, heldur listar upp nöfn þeirra sem eru hvað stærstir á sviði póli­tíkur og lista og eru einnig af ólíkum upp­runa og á breiðu ald­urs­bili.

Frá­far­andi rit­stýra, Alex­andra Shulman, hefur mátt sæta gagn­rýni fyrir fjöl­breyti­leika­skort en engin svört fyr­ir­sæta prýddi for­síð­una ein á báti frá því Naomi Campbell gerði það árið 2002 þangað til Jourdan Dunn sat fyrir á for­síðu tísku­tíma­rits­ins árið 2014.

Nýi rit­stjór­inn seg­ist stað­ráð­inn í því að sýna konur af fjöl­breyttum upp­runa, með mis­mun­andi vaxt­ar­lag og bak­grunn.

Jane Fonda er nýjasta for­síðu­fyr­ir­sæta breska Vogue, hún er 81 árs.

Edward er fyrsti svarti og jafn­framt fyrsti karl­kyns­rit­stjóri tíma­rits­ins í rúm­lega 100 ára sögu þess og seg­ist vilja að Vogue verði eins og búð sem konur hræð­ast ekki að ganga inn í.

Þið munuð sjá allar stærðir og gerðir, aldur, kyn og ólík trú­ar­brögð í blað­inu, ég er mjög spenntur fyrir því.

„Áður en ég fékk starfið tal­aði ég við margar konur sem fannst þær ekki geta sam­samað við þær sem voru hvað mest á síðum tíma­rits­ins. Þess vegna lang­aði mig til þess að hafa blaðið opið og vina­legt. Þið munuð sjá allar stærðir og gerðir, aldur, kyn og ólík trú­ar­brögð í blað­inu, ég er mjög spenntur fyrir því. Og mun minna af fyr­ir­sætum sem eru með óheil­brigt útlit,“ lét hinn nýi rit­stjóri hafa eftir sér.

Edward bætti því við að hann myndi berj­ast gegn „stærð núll“-kúlt­úrnum í tísku­heim­inum með því að sýna konur með alls­konar vaxt­ar­lag og ræða opin­skátt við hönn­uði um þessi mál.

„Þegar ég byrj­aði í brans­anum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar voru prufu­stærð­irnar númer 4 og 6. Í dag eru prufu­stærð­irnar tvö­falt núll. Mér finnst að tísku­brans­inn, eins og hann leggur sig, verði að taka þátt í sam­ræðum um þessi mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina