Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tilnefnt til blaðamannaverðlauna: Ekkja plastbarkaþegans rýfur þögnina

Tilnefnt til blaðamannaverðlauna: Ekkja plastbarkaþegans rýfur þögnina

Ragn­heiður Linnet, blaða­kona Mannlífs, er til­nefnd til blaða­manna­verð­laun­anna fyrir við­tal árs­ins vegna við­tals hennar við Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, ekkju plast­barka­þeg­ans, Andemariam Beyene. Við end­ur­birtum hér við­talið. Blaða­manna­verð­laun Íslands verða afhent á morgun, föstu­dag­inn 22. mars. Hér má sjá allar til­nefn­ingar.

Merhawit Baryamikael Tesfaslase segir frá því hvernig líf fjölskyldu hennar umturnaðist eftir að maður hennar var sendur í tilraunaaðgerðina örlagaríku.

Plast­barka­málið svo­kall­aða er eitt af helstu hneyksl­is­málum í lækna­vís­indum síð­ustu ára­tugi og snertir okkur Íslend­inga. Margir þekkja sögu og örlög Andemari­ams Beyene sem var fyrsti mað­ur­inn til að und­ir­gang­ast ígræðslu gervi­barka 9. júní 2011 en fáir þekkja sögu eig­in­konu hans, Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase. Hún stóð ein uppi, rétt­inda­laus, með þrjú börn og það yngsta aðeins aðeins 6 vikna gam­alt þegar eig­in­maður hennar lést eftir erfið veik­indi. Í við­tali við Mannlíf rekur hún sögu sína eftir að hún gift­ist Andemariam og segir frá því hvernig líf þeirra umturn­að­ist eftir að hann var sendur í til­rauna­að­gerð­ina örlaga­ríku.

„Andemariam var sér­stakur maður sem þótti mjög vel gef­inn, lífs­glaður og mik­ill fjöl­skyldu­maður. Hann var hug­ul­samur, vin­sæll og mjög vel lið­inn alls staðar,“ segir Merhawit með sökn­uði um mann sinn.

Merhawit fædd­ist í Erítreu árið 1984 og stund­aði nám í hag­fræði við háskól­ann í Asmara þegar hún kynnt­ist ungum, glæsi­legum og hæfi­leik­a­ríkum Erít­reu­manni, Andemariam Taeklesebet Beyene. Þau felldu hugi saman og gengu í hjóna­band í Erítreu 12. jan­úar 2008 en venjan þar í landi er að konur verði hús­mæður og hugsi um börn og bú þegar þær gift­ast og þannig var það í til­felli Merhawit. Eig­in­maður hennar fór til Íslands ári eftir brúð­kaupið til að  stunda meist­ara­nám í jarð­vís­indum við Háskóla Íslands og vann með nám­inu hjá Ísor við orku­rann­sóknir. Til stóð að fara aftur heim til Erítreu vel nestaður að námi loknu og koma með þekk­ingu sem myndi nýt­ast í heima­land­inu. Andemariam lang­aði að hjálpa þjóð­inni til að nýta jarð­hita en inn­flutt olía er orku­gjafi í Erítreu. Það fékk fjöl­skyldan hins vegar aldrei að upp­lifa.

Andemariam var sagður hafa astma og hafði fengið lyfja­með­ferð við honum eftir kom­una hingað árið 2009 en þegar hann fékk aukin ein­kenni frá önd­un­ar­færum leit­aði hann til læknis. Hann var sendur í sneið­mynda­töku og þá upp­götv­að­ist að það var ekki af völdum ast­mans sem hann var með önd­un­ar­erf­ið­leika heldur var stórt æxli í bark­anum sem þrengdi að önd­un­ar­veg­inum. Hann var sendur í skyndi á Land­spít­al­ann þegar nið­ur­stöður úr mynda­töku lágu fyrir, að sögn Merhawit.

Hún vissi þá ekki af versn­andi ástandi manns­ins síns. „Við töl­uðum saman á Skype á hverju kvöldi og ef eitt­hvað brá út af létum við hvort annað vita, við sendum skila­boð eða hringdum. En ég heyrði ekk­ert frá Andemariam í tvo daga,“ segir hún. „Ég varð því mjög hrædd um hann og hélt að hann hefði lent í bílslysi. Með hjálp mágs míns komumst við í sam­band við Háskóla Íslands og þar var okkur sagt að æxli hefði fund­ist í barka Andemari­ams og að hann lægi með­vit­und­ar­laus á Land­spít­al­anum. Hann hafði þá farið í aðgerð þar sem reynt var að fjar­lægja æxlið og taka sýni úr því en það fór ekki betur en svo að honum blæddi næstum út. Ég vissi ekk­ert og allt í einu voru aðstæð­urnar svona. Andemariam lá með­vit­und­ar­laus á spít­al­anum í sex daga. Enginn vissi hvort hann hefði orðið fyrir heilaskaða en sem betur fer var það ekki.“

Aðgerðin hafði aldrei verið gerð á lif­andi manni og þess vegna var hann hræddur og vildi ekki fara í aðgerð­ina í fyrstu, en það var þrýst á hann.

Merawith seg­ist hafa saknað eig­in­manns síns, einkum eftir aðgerð­ina og dvöl­ina á Land­spít­al­anum þar sem hann lá alvar­lega veikur, en það hafi reynst henni mjög þung­bært og því hafi hún viljað sjá hann. ,,Hann kom í mán­að­ar­heim­sókn til Erítreu sum­arið 2010. Þar gerði hann allt sem venju­legur maður gerir, bæði hljóp um og ærsl­að­ist við elsta son okkar. Enginn hefði getað sagt að þarna færi veikur maður. Hann hefði þurft að fara úr skyrt­unni til að það sæist að hann væri með ör á brjóst­kass­anum eftir skurð­að­gerð,“ segir hún en að heim­sókn lok­inni sneri Andemariam aftur til Íslands þar sem hann vann áfram hjá Ísor og stund­aði nám sitt.

„Læknarnir þrýstu á Andemariam að fara í aðgerðina“

Merhawit segir að æxlið í barka Andemari­ams hafi verið mjög hæg­vax­andi. Hluti þess hafi verið fjar­lægður í aðgerð­inni á Íslandi 2009, sem Tómas Guð­bjarts­son brjóst­hols­skurð­læknir tók þátt í, og við tók geisla­með­ferð til að halda sjúk­dómnum í skefjum en Andemariam voru gefin 2-3 ár með sjúk­dóm­inn. Tómas hafði sam­band við lækna á Massachusetts General-spít­al­anum í Boston þar sem helsta þekk­ing og reynsla í með­ferð krabba­meins í barka var til staðar og komu ráð­legg­ingar þaðan um að beita leysi­með­ferð á æxlið. Þar sem Andemariam var ungur maður í blóma lífs­ins var haf­ist handa við að leita ráða um önnur úrræði.

Tómas, sem hafði tekið yfir með­ferð Andemari­ams, leit­aði til ítalska skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarini sem var tek­inn til starfa við Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið í Stokk­hólmi, en Jan-Erik Juto, yfir­læknir háls-, nef- og eyrna­lækn­inga á sama spít­ala, hafði vísað Hlyni N. Gríms­syni krabba­meins­lækni, sem hafði upp­haf­lega leitað ráða hjá kol­legum sínum á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu, á Macchiarini. Í við­tali við Kastljós í des­em­ber 2011 sagði Tómas að hann hefði lesið fræga vís­inda­grein um aðgerð sem Macchiarini fram­kvæmdi árið 2008 þar sem hann tók barka úr látnum ein­stak­lingi, klæddi hann með stofn­frumum og græddi hann síðan í sjúk­ling. Það hafði orðið til þess að hann hafði sam­band við Macchiarini.

Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase ásamt sonum þeirra Andemari­ams. Líf fjöl­skyld­unnar umturn­að­ist eftir að Andemariam var sendur í til­rauna­að­gerð­ina örlaga­ríku.

Ítalski skurð­lækn­ir­inn reynd­ist áhuga­samur um sjúk­ling­inn frá Íslandi. Hins vegar gat reynst erfitt að fá barka úr látnum ein­stak­lingi og í til­viki Andemari­ams var talið að það mundi taka of langan tíma að finna barka sem pass­aði. Það var aldrei reynt, sam­kvæmt áreið­an­legum upp­lýs­ingum frá Svíþjóð. Andemariam var sendur á Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið í Stokk­hólmi til skoð­unar og þar var mjög snemma tekin ákvörðun að græða í hann gervi­barka, en Macchiarini sagð­ist hafa gert til­raunir með ígræðslu plast­barka í svín.

Merhawit, ekkja Andemariam, heldur því fram eig­in­maður hennar hafi verið ágæt­lega hald­inn á þessum tíma. Til marks um það hafi hann farið með lest til að heim­sækja ætt­ingja og vini í Svíþjóð áður en hann fór á Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið.

„Aðgerðin hafði aldrei verið gerð á lif­andi manni og þess vegna var hann hræddur og vildi ekki fara í aðgerð­ina í fyrstu, en það var þrýst á hann,“ segir Merhawit. „Lækn­arnir sögðu að ef hann færi í aðgerð­ina myndi hann lifa með gervi­bark­ann í 8-10 ár. „Það er öruggt,“ sögðu þeir og ef hann vildi lifa og sjá börnin sín yrði hann að fara í þessa aðgerð. Þeir minnt­ust aldrei á aðra mögu­leika við hann,“ segir hún, nokkuð sem er stað­fest í íslensku Rann­sókn­ar­skýrsl­unni um málið sem gerð var á vegum Háskóla Íslands og Land­spít­al­ans. Þar segir: ,,Honum voru ekki kynntir aðrir með­ferð­ar­mögu­leikar eins og læknum ber að gera eða leið­beint um fyr­ir­hug­aða með­ferð skv. 5. gr. laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga.“

Lækn­arnir sögðu að ef hann færi í aðgerð­ina myndi hann lifa með gervi­bark­ann í 8-10 ár. „Það er öruggt,“ sögðu þeir og ef hann vildi lifa og sjá börnin sín yrði hann að fara í þessa aðgerð. Þeir minnt­ust aldrei á aðra mögu­leika við hann.

Í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að til­vís­un­inni hér á landi hafi verið breytt þannig að aðgerðin var sögð lífs­bjarg­andi. Síðar kom í ljós að engin for­senda hafi verið fyrir til­rauna­að­gerð­inni og ekk­ert sem lá fyrir um að hún gæti heppn­ast, eins og kemur fram í frétta­skýr­ingu um úrskurð Karol­inska-stofn­un­ar­innar í Kjarn­anum 3. júlí síð­ast­lið­inn.

Merhawit bendir á að eig­in­maður hennar hafi ekki getað snúið aftur til Erítreu í því skyni að fá lækn­is­hjálp því að þar var nauð­syn­lega sér­fræði­þjón­ustu ekki að fá. Mögu­leikar hans voru því engir þar og því varð hann að treysta læknum hér og í Svíþjóð. ,,Andemariam bar þá von í brjósti að fá bata og vildi gera allt sem í hans valdi stóð til þess og fór að ráðum lækna sinna,“ segir Merhawit.

Í til­raun­að­gerð­inni sem gerð var á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu 9. júní 2011 var gervi­barki græddur í Andemariam eftir und­ir­bún­ing sem fólst í að baða bark­ann í stofn­frumum úr bein­merg hans. Aðgerðin var löng og flókin og um mán­uði eftir hana kom Andemariam til Íslands á ný þar sem við tók frek­ari með­ferð í umsjá íslenskra lækna.

Lifði í stöðugum ótta um eiginmann sinn eftir aðgerðina

Á þeim tíma sem aðgerðin var gerð var Merhawit enn í Erítríu og starf­aði sem rit­ari en hún kom með tvo syni þeirra, Brook og Nahom, til Íslands í nóv­em­ber 2011, fimm mán­uðum eftir aðgerð­ina örlaga­ríku, og sá þá Andemariam yngri son þeirra í fyrsta sinn. Á Íslandi bætt­ist svo þriðji dreng­ur­inn, Simon, í hóp­inn og bjó fjöl­skyldan í lít­illi leigu­í­búð í Kópavogi. „Eftir að ég kom til Íslands breytt­ist allt,“ segir Merhawit alvar­leg.

,,Mér fannst ég ekki geta tjáð mig nægi­lega vel og vet­ur­inn var harður, ég hafði aldrei kynnst öðru eins. Ég var mikið ein svo ég leit­aði til Rauða kross­ins og hrein­lega sagði að ég þyrfti ein­hvern til að tala við.“ Það gekk eftir. Merhawit getur þess að prestur sem starf­aði í Hjalla­kirkju, Steinunn Arn­þrúður Björns­dóttir, hafi líka aðstoðað sig við ýmis­legt í dag­legu amstri eftir að hún kom hingað og að það hafi hjálpað sér mikið.

Þá segir Merhawit að fyrstu 6 mán­uð­ina eftir plast­barka­ígræðsl­una hafi farið að bera á ýmsum kvillum tengdri heilsu Andemariam. Eða eins og hún orðar það sjálf þá var heilsan „upp og niður“. „Andemariam var mjög langt kom­inn með meist­ara­rit­gerð­ina sína og náði að ljúka henni á þessum tíma, en hann var harð­dug­legur og vinnu­samur og vann að rit­gerð­inni þó að hann væri rúm­liggj­andi,“ segir hún. „Eftir það lá leiðin niður á við, því gervi­bark­inn virk­aði ekki sem skyldi.

Ég var hrædd um hann daga og nætur.

Hún tekur fram að eig­in­maður sinn hafi þó haft vonir um að honum myndi batna og hann hafi ætíð borið sig vel, sama á hverju gekk, en hann hafi verið hræddur. Það fóru að koma upp ýmis vanda­mál og Andemariam leið illa. „Stundum hélt hann að matur sem hann hafði borðað færi illa í sig eða að hann þyldi hann ekki en það var ekk­ert betra þótt hann borð­aði eitt­hvað annað. Hann fór end­ur­tekið á spít­al­ann til að láta sjúga upp slím og ég var alltaf að hringja í Andemariam á dag­inn vegna þess að ég var stöðugt hrædd um hann. Ég var hrædd um hann daga og nætur. Hann fór til dæmis í sturtu og það leið yfir hann og hann var allur úta­t­aður í blóði. En Tómas læknir var til staðar fyrir okkur og var mjög hjálp­legur,“ segir hún en í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni kemur fram að vel hafi verið staðið að eft­ir­með­ferð Andemari­ams á Land­spít­al­anum.

Síðasta árið, 2013, var mjög erfitt að sögn Merhawit því þá fór veru­lega að halla undan fæti hjá Andemariam. „Hann var illa hald­inn því bark­inn aðlag­að­ist ekki og hann var með stoð­net til að halda bark­anum opnum. Eftir fyrri aðgerð­ina gat hann losað sig sjálfur við slím en eftir plast­barka­að­gerð­ina var hann háður spít­al­anum. Hann var meira og minna þar. Hann kom kannski heim í 2-3 daga og svo var hann aftur far­inn á spít­al­ann,“ lýsir hún og segir að þegar þarna var komið sögu hafi Andemariam verið orð­inn ósáttur. „Hann barð­ist eins og hann gat og bar sig alltaf vel, en hann sá eftir að hafa farið í aðgerð­ina og var ekki sáttur við lækn­ana sem gáfu honum vonir um betra og lengra líf.“

„Enginn talaði við mig eftir að Andemariam lést“

Andemariam Beyene lést á á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu í Svíþjóð 30. jan­úar 2014. „Hann hafði farið reglu­lega í eft­ir­lit á Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið og einn dag­inn hringdi Tómas læknir og sagði að Andemariam væri að deyja,“ segir Merhawit og augun fyll­ast af tárum. Hún fór í hend­ingskasti út til Sví­þjóðar ásamt Stein­unni Arnþrúði presti og var þar við hlið eig­in­manns síns þegar hann lést. Merhawit beygir af þegar hún rifjar þetta upp, minn­ing­arnar taka aug­ljós­lega á.

Andemariam lést því um 30 mán­uðum eftir til­rauna­að­gerð­ina. Minn­ing­ar­at­höfn var haldin um hann í Hjalla­kirkju og sam­starfs­fólk hans hjá Ísor hjálp­aði Merhawit við und­ir­bún­ing hennar ásamt starfs­fólki Háskóla Íslands. Andemariam var jarð­sung­inn í Erítreu og var haft á orði hve óvenju­margir komu til að votta honum hinstu kveðju. „Andemariam elskaði landið sitt og hlakk­aði til að koma aftur heim,“ lýsir Merhawit og það er aug­ljóst að minn­ing­arnar vekja hjá henni sterkar til­finn­ing­arnar. Óhætt er að segja að heim­koman hafi verið með öðrum hætti en hann ætl­aði.

Eftir and­lát Andemariam stóð Merhawit uppi ein í nær ókunnu landi með þrjá unga drengi, þann yngsta aðeins 6 vikna gamlan.

„Ég stóð eftir ein með þrjú ung börn, mál­laus í landi þar sem ég var ekki í kerf­inu og hafði engin rétt­indi. Ég fékk pen­inga hjá fólki frá Eþíópíu og Erítreu sem dvaldi hér, til að kaupa smá­vegis mat, svona 2000-5000 krónur. Mig lang­aði til að skipta um hús­næði því þar minnti mig allt stöðugt á Andemariam.“

Ég stóð eftir ein með þrjú ung börn, mál­laus í landi þar sem ég var ekki í kerf­inu og hafði engin rétt­indi.

Hún segir að tím­inn sem fór í hönd eftir and­lát manns­ins síns hafi verið mjög erf­iður og álagið mikið. „Ég átti til dæmis mjög erfitt með svefn lengi vel. Ég fékk heim­sókn frá presti, henni Stein­unni. Nágranna­kona mín, Árný, reynd­ist mér líka vel og gætti drengj­anna oft og konur á barna­heim­il­inu Álfa­heiði komu og sóttu dreng­ina og fóru með þá á barna­heim­ilið eftir að Andemariam lést. En eng­inn frá Land­spít­al­anum hafði sam­band eftir að Andemariam lést, eng­inn. Ég fékk enga hjálp eða aðstoð og Tómas læknir hafði aldrei sam­band,“ segir Merhawit, en fram kemur í DV, 2. júní 2018, að Tómas hafi reynt að hafa upp á ekkj­unni í apríl síð­ast­liðnum til að aðstoða hana fjár­hags­lega til að bæta fyrir þau mis­tök sín að hafa treyst Macchiarini.

Eftir útför­ina ákvað Merhawit að flytja sig um set. Hún vildi ekki vera í Erítreu vegna þess hversu fótum troðin mann­rétt­indi eru í land­inu, fátækt mikil og ástandið almennt skelfi­legt. Hún flutti því til Sví­þjóðar þar sem hún vinnur nú fullan vinnu­dag í skóla til að geta séð fyrir sér og drengj­unum sínum.

„Mig langar til að ljúka við námið í hag­fræði en eins og er hef ég ekki tíma. Ég vinn fullan vinnu­dag í grunn­skóla, þar sem ég aðstoða börn við reikn­ing og fleira og ég þarf að sinna drengj­unum, fara með þeim út að hjóla og svo fram­vegis.“

Hún segir að þeir séu vel gerðir og klárir drengir sem elski að vera í fót­bolta. Eldri syn­irnir tveir muni eftir pabba sínum og tali um hann dag­lega. „Þeir muna hversu ást­ríkur pabbi þeirra var, faðm­lögin hans og þegar hann hélt á þeim og lék við þá. Sá elsti talar sér­stak­lega mikið um pabba sinn og vill feta í fót­spor hans og læra jarð­vís­indi en sá í miðið er skap­andi, alltaf að teikna og er mikið í fót­bolta. Sá yngsti er enn óskrifað blað,“ lýsir hún og brosir.

Hún segir að eldri strák­arnir sakni pabba síns mikið. „Það kemur oft fyrir þegar þeir sjá hávax­inn mann að þeir segja: „Þessi maður er eins og pabbi var.“ Yngsti strák­ur­inn man eðli­lega ekki eftir honum og þegar ég segi að hann sjái hann þegar hann deyr, svarar hann: „Ég vil deyja, því þá get ég séð pabba“.“

Er ekki í felum

Aðspurð segir Merhawit að enn hafi ekki verið haft sam­band við hana frá Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu um mögu­legra bóta­skyldu vegna mis­taka sem gerð voru í máli Andemari­ams og eru rakin í ýmsum sænskum rann­sókn­ar­skýrslum. Vekur það furðu íslensku rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar eins og kemur fram í íslensku Rann­sókn­ar­skýrsl­unni.

Samkvæmt svari frá Land­spít­ala við spurn­ingu blaða­manns Mannlífs, þá hefur ekki tek­ist að hafa uppi á Merhawit til að bregð­ast við ábend­ingu sem kemur fram í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni um að veita henni fjár­hags­að­stoð til að verða sér úti um lög­fræð­ing svo hún geti leitað réttar síns, en leit­inni muni þó vera haldið áfram. Um þessa aðstoð segir í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni: „Ástæðan er ekki síst sú að mál þetta á sér vart neina hlið­stæðu á Íslandi og því er ástæða til að Landspítali sýni sérstakt frum­kvæði við að leysa úr málinu á sann­gjarnan og far­sælan hátt fyrir eig­in­konu og þrjá syni Andemari­ams.“

Sjálf seg­ist Merhawit ekki vera í felum og að það ætti ekki að vera erfitt að hafa uppi á henni, enda njóti hún ákveð­inna rétt­inda þar sem hún býr, hún sé í starfi og eigi börn á skóla­skyldu­aldri. Prestur og lög­fræð­ingur, sem fóru að beiðni Íslensku rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar til Merhawit með gögn, þar á meðal Rann­sókn­ar­skýrsl­una í enskri útgáfu, gátu að minnsta kosti haft upp á henni, en lög­fræð­ing­ur­inn kom ekki á heim­ili hennar.

Yngsti strák­ur­inn man eðli­lega ekki eftir honum og þegar ég segi að hann sjái hann þegar hann deyr, svarar hann: „Ég vil deyja, því þá get ég séð pabba“.

Eftir því sem hún lýsir myndi það létta henni og sonum hennar lífið að fá bætur vegna and­láts Andemari­ams. En plast­bark­málið hefur enn sem komið er lítið snú­ist um miss­inn sem fjöl­skylda hans varð fyrir eða mann­rétt­indi Andemari­ams, ungs manns sem var sendur í til­rauna­að­gerð sem engin for­senda var fyrir, eins og fram kemur í úrskurði rekt­ors Karol­inska-stofn­un­ar­innar. Eða eins og Merhawit orðar það: „Það sner­ist allt um að vernda lækn­ana en eng­inn tal­aði við mig.“

Texti /  Ragn­heiður Linnet
Myndir / Árni Torfason

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð