InnlentLilja laus úr sóttkví14. júlí 2020 Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, greinir frá því í færslu á Facebook, að hún er laus úr tveggja vikna sóttkví. Mætti hún í ráðuneytið í morgun, en hefur unnið í fjarvinnu í sóttkvínni. Þakkar hún starfsfólki heilbrigðiskerfisins og Íslenskri erfðagreiningu fyrir störf þeirra. „Laus úr sóttkví, eftir 14 daga vist í sveitinni og skimanir sem færðu mér ómetanlegt ferða- og...
InnlentKannabisræktun stöðvuð á Suðurnesjum14. júlí 2020 Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Um var að ræða tæplega sjötíu plöntur á ýmsum vaxtarstigum. Ræktuninni hafði verið komið fyrir á efri hæð hússins. Þrír voru handteknir vegna málsins og færðir til skýrslutöku. Allmikill búnaður sem notaður var við ræktunina var haldlagður. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglu. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005....
InnlentBanaslysið við Núpsvötn: Hin látnu ekki í bílbeltum eða barnabílstól14. júlí 2020 Rannsóknarnefnd samgöngslysa hefur skilað skýrslu vegna banaslysiðsins sem varð á brúnni við Núpsvötn 27. desember 2018. Þrír farþegar létust í slysinu, konur 33 ára og 36 ára, og 11 mánaða stúlkubarn. Alls voru sjö manns í bílnum, breskir ferðamenn. Konurnar voru ekki í bílbelti, og barnið ekki í barnabílstól, eins og fram kemur í skýrslu nefndarinnar, sem tilgreinir fjóra þætti...
InnlentÞorgerður um brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar: „Þetta eru alvarleg hættumerki“14. júlí 2020 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísaldóttur og þriggja annarra yfirmanna hjá Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu vera enn eina viðvörunarbjölluna um að vegið sé að almennum mannréttindum, fjölmiðlafrelsi og lýðræði víða um heim. „Þetta eru alvarleg hættumerki og kallar á að rödd Íslands og Norðurlandanna verður að vera háværari, markvissari og samstilltari á alþjóðavettvangi....
InnlentCovid-19Landspítalinn tekur við landamæraskimunum í dag14. júlí 2020 Landspítalinn tekur við skimunum á Keflavíkurflugvelli í dag. Hingað til hefur Íslensk erfðagreining séð um að greina öll sýni sem tekin eru á landamærunum. Í gær ræddi fréttastofa Vísis við Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar í ljósi þess að Landspítalanum hafði ekki tekist að koma upp búnaði á spítalanum til að taka við skimun Íslenskrar erfðagreiningar fyrir daginn í dag....
InnlentLögreglan elti innbrotsþjóf uppi14. júlí 2020 Laust fyrir miðnætti í gær fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um innbrot í hús í Árbæ. Stuttu seinna barst tilkynning um innbrot í annað hús og var ljóst að sami maður var á ferð miðað við lýsingar tilkynnenda. Rúmlegar eitt í nótt sá lögreglan hinn grunaða á bifreið og sinnti hann ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Eftirför var um hverfið og síðan...
InnlentCovid-19Hafa sótt um COVID-lokunarstyrki fyrir tæpar 400 milljónir króna14. júlí 2020 Á fjórða hundrað fyrirtæki hafa sótt um COVID-lokunarstyrki fyrir tæpar 400 milljónir króna. Alls hafa 367 fyrirtæki sótt um samtals 392 milljónir króna á þeim mánuði sem liðinn er frá því að opnað var fyrir umsóknir, að því er fram kemur umfjöllun RÚV sem byggð er á gögnum frá Skattinum. Búið er að greiða 264 þeirra út 271 milljón, en...
InnlentVefrit í stað druslugöngu13. júlí 2020 Hinni árlegu druslugöngu hefur verið aflýst í ár vegna samkomutakmarkana. Í staðinn ætla skipuleggjendur göngunnar og femíniski vefmiðillinn Flóra að gefa út vefrit, Drusla x Flóra í ágúst, en markmiðið með því er að gefa fjölbreyttum hópi fólks tækifæri til að ræða femínisma og nauðgunarmenningu í öllum kimum samfélagsins. Druslugangan hefur verið farin í Reykjavík á hverju sumri frá því...
InnlentRasísk skilaboð skrifuð til Magnúsar: „Ef þú ert brúnn eða svartur, farðu úr bænum“13. júlí 2020 Magnús Secka, 19 ára gamall, var á leið í sumarfrí ásamt móður sinni, Söru Magnúsdóttur, þegar mæðginin urðu fyrir kynþáttafordómum. Við stutt stop í vegasjoppu á Snæfellsnesi var límmiði límdur á hliðarspegil bíls þeirra með orðunum „If you are brown or black please leave this town“ eða „Ef þú ert brúnn eða svartur vinsamlegast farðu úr bænum.“ „Ég sótti Magnús...
InnlentSamferða styrkt fjölskyldur um tæpar 25 milljónir13. júlí 2020 Samferða góðgerðarsamtök voru stofnuð fyrir jólin 2016. Samferða styrkja í hverjum mánuði fjölskyldur sem þurfa á hjálp að halda. Oft er um að ræða fjölskyldur þar sem annað foreldri, eða einstætt foreldri, glímir við krabbamein eða aðra sjúkdóma. Sjá einnig: Góðverk fyrir ekkju með ung börn: „Takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna“ Í færslu sem birtist á...
InnlentDottaði undir stýri og ók út af13. júlí 2020 Ökumaður sem dottaði undir stýri á Reykjanesbraut um helgina missti við það stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún lenti á umferðarskilti og hafnaði utan vegar. Hann slapp ómeiddur en talsverðar skemmdir urðu á bifreiðinni sem flytja þurfti af vettvangi með dráttarbifreið. Þá var lögreglan á Suðurnesjum kvödd að bílskúr í Keflavík um helgina þar sem þriggja ára...
Innlent15 ára sonur Guðmundu verður fyrir hrottalegu ofbeldi – „Ég verð að bjarga syni mínum frá þessu“13. júlí 2020 „Þá var hann kallaður nasisti, og honum var sagt að hann yrði sendur heim í líkkistu í sitt ógeðslega móðurland,“ segir Guðmunda Þorsteinsdóttir í samtali við Mannlíf. Í færslu sem Guðmunda birti á Facebook í dag má sjá skjáskot sem sonur hennar hefur fengið send og myndband af líkamsárás gegn honum sem tekið var upp á síðasta ári. Líkamsárásin átti...