InnlentMyndbirting Arion banka af börnum var gegn samþykki foreldra3. júlí 2020 Myndbirting Arion banka á ljósmyndum af liðum í Arion banka-mótinu í fótbolta barna í fyrra var gegn samþykki foreldra og forráðamanna. Þetta er niðurstaða Persónuverndar. Vitnar Persónuvernd í formálsorð reglugerðar ESB en þar kemur fram persónuupplýsingar barna eigi að njóta sérstakrar verndar, einkum er varðar notkun persónuupplýsinga barna í markaðssetningarskyni, að því er fram kemur á vef RÚV. Segir í...
InnlentPáley skipuð lögreglustjóri á Norðurlandi eystra3. júlí 2020 Dómsmálaráðherra hefur skipað Páleyju Borgþórsdóttur í embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá og með 13. Júlí. Hæfnisnefnd sem skipuð var til að fara yfir og meta hæfni umsókna um embætti ríkislögreglustjóra mat Páleyju hæfasta umsækjenda. Páley hefur frá árinu 2015 gegnt embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum. Hún lauk embættisprófi í lögfræði árið 2002. Hún var löglærður fulltrúi hjá sýslumannsembættinu í Vestmannaeyjum...
InnlentCovid-19Tíu gert að fara í sóttkví eftir að COVID-19 smit greindist3. júlí 2020 Björginni, geðræktarmiðstöð Suðurnesja, hefur verið lokað eftir að einn notandinn greindist með COVID-19. Verður geðræktarmiðstöðin höfð lokuð á meðan unnið er að sótthreinsun og hefur tíu öðrum skjólstæðingum hennar verið gert að fara í sóttkví. Greint er frá þessu á Facebook-síðu miðstöðvarinnar. Smitið uppgötvaðist þegar fjölskyldumeðlimur viðkomandi greindist með COVID-19 þann 30. júní. Þá kom í ljós að notandinn var...
InnlentViðurkennir að það hafi verið mistök að tilkynna ekki strax alvarlegt atvik3. júlí 2020 Framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair segir að mistök hafi verið gerð hjá Icelandair þegar rannsóknarnefnd samgönguslysa var ekki strax tilkynnt um alvarlegt flugatvik á Keflavíkurflugvelli í október 2016. „Við tilkynntum þetta of seint,“ segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair í samtali við Morgunblaðið í dag og vísar þar til umrædds atviks þegar minnstu munaði, eða aðeins nokkrum sekúndum, að stórslys yrði þegar...
InnlentLögreglan lýsir eftir Maríu Ósk3. júlí 2020 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Maríu Ósk Sigurðardóttur, 43 ára, til heimilis í Grafarvogi í Reykjavík. María, sem er með húðflúr á hlið vinstri handar, er 163 sm á hæð, grannvaxin og með gráleitt, axlarsítt hár. Hún er líklega klædd í svartar gallabuxur og lopapeysu, svarta og hvíta yfir mitti. María Ósk María hefur til umráða hvítan Dacia Duster, skráninganúmer...
InnlentMannlíf í útgáfuhlé í júlí2. júlí 2020 Fríblaðið Mannlíf fer í árlegt útgáfuhlé í júlímánuði. Útgáfa blaðsins byrjar aftur af fullum krafti föstudaginn 7. ágúst. Frá og með þeim degi, 7. ágúst, hefst útgáfa Mannlífs á nýjan leik á föstudögum. Við munum halda okkar striki og gefa út fróðleg, lifandi og skemmtileg blöð sem fanga tíðaranda líðandi stundar. Lesendur geta að sjálfsögðu áfram nálgast áhugaverðar greinar og...
InnlentTesla vill leggja hleðslustöðvar um land allt2. júlí 2020 Teslu-umboðið vill leggja hleðslustöðvar fyrir rafbíla um land allt. Málið er til skoðunar hjá Orkustofnun. „Þeir eru að leita hófana með að koma upp hleðslustöðvum,“ segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri í samtali við Mannlíf. „Það er verið að kanna mögulegar staðsetningar og annað. Þetta eru náttúrulega aflmiklar stöðvar.“ Spurður hversu margar hleðslustöðvar Teslu-umboðið vilji leggja og hvar á landinu og...
InnlentIllugi ósáttur og lætur Guðna heyra það: „Ykkur hefur tekist að skapa sundrungu um landsliðið“2. júlí 2020 Illugi Jökulsson er heldur betur óhress með nýtt myndband KSÍ og birtir á Facebook-síðu sinni bréf sem hann sendi Guðna Bergssyni, formanni KSÍ, í morgun. „Hafi það verið markmiðið hjá ykkur með þessu myndbandi að skapa sundrungu og deilur um landsliðið, þá hefur það vissulega tekist,“ segir Illugi og bætir við að persónulega ætti hann mjög erfitt með að fara...
InnlentÞrjú kórónuveirusmit í gær2. júlí 2020 Þrjú COVID-19 smit greindust síðasta sólarhring, tvö við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli og eitt úr sýnum sem Íslensk erfðagreining rannsakaði. Alls voru 1.000 sýni tekin í gær. 730 sýni voru tekin í landamæraskimun í gær á meðan Íslensk erfðagreining rannsakaði 92 sýni. Þá tók sýkla- og veirufræðideild Landspítalans 178 sýni, ekkert kórónuveirusmit greindist úr þeim sýnum. Virk smit á landinu eru...
Innlent„Besta leiðin til að afnema refsingar fyrir neysluskammta er að viðhalda refsingunum“2. júlí 2020 Pistill Kolbeins Óttarsson Proppé, sem birtist á Vísi í gær, hefur vakið upp hörð viðbrögð, en pistlinum fer þingmaður Vinstri grænna yfir ástæður þess af hverju hann samþykkti ekki frumvarp Pírata um afglæpvæðingu neysluskammta fíkniefna. Er óhætt að segja að samfélagsmiðlar logi vegna skrifa þingmannsins. „Besta leiðin til að afnema refsingar fyrir neysluskammta er að viðhalda refsingunum,“ skrifar sósíalsistaforinginn Gunnar...
InnlentÖkumaður í hraðakstri með falsað ökuskírteini2. júlí 2020 Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært tuttugu ökumenn fyrir of hraðan akstur á síðustu dögum. Einn þeirra framvísaði ökuskírteini sem reyndist vera falsað og er hann ekki með gild ökuréttindi. Hann var því, auk aksturs bifreiðar án réttinda og hraðakstursins, kærður fyrir skjalafals. Annar ók réttindalaus og þriðji ók á fjórum negldum hjólbörðum. Hans bíður því 160 þúsunda króna sektargreiðsla fyrir...
Innlent23 þúsund komin með ökuskírteinið í símann2. júlí 2020 Í gær var opnað fyrir umsóknir um stafrænt ökuskírteini í símann. Fjórum klukkustunum síðar höfðu um 12 þúsund manns sótt stafrænt ökuskírteini í snjallsímann sinn og nú hafa um 23 þúsund manns sótt þessa nýjung. Mikill áhugi virðist vera fyrir stafrænu skírteinunum, svo mikill að það hægðist á vefnum island.is vegna álags en hægt er að sækja um stafrænt ökuskírteini...