InnlentReykjavíkurborgBíó Paradís orðið eins og Titanic6. maí 2020 „Við erum eins og Titanic-skipið, það er búið að flæða inn í allar lestirnar og skipið er að sökkva og það er orðið erfitt að snúa því við,“ sagði Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 í morgun. Hún staðfesti að búið væri að segja upp öllum nema fimm starfsmönnum og þeir sem eftir stæðu væru...
InnlentStækkaður menningarpottur vegna COVID-196. maí 2020 Borgarráð hefur samþykkt að stækka menningarpott Reykjavíkurborgar og opnar nú fyrir umsóknir fyrir sjálfstætt starfandi listamenn til að mæta verkefna- og tekjumissi sem þeir verða fyrir vegna áhrifa COVID-19 á samfélagið, eins og segir í tilkynningu. Styrkir verða veittir til verkefna sem örva sköpunargleði, listræn verkefni, samræður og menningarlegt framboð í borginni til lengri og skemmri tíma. Tímabil og upphæð...
Innlent„Þegar ég söng í jarðarför eiginkonu hans var annar tónn í honum“6. maí 2020 Tónlistarkonan Una Stef spyr hvort fólk geri sér ekki grein fyrir mikilvægi listsköpunar. Undanfarið hefur töluvert verið fjallað um atvinnuleysi sem skapast hjá íslenskum listamönnum í kórónaveirufaraldrinum. Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, sagði í vikunni að tveggja metra reglan eigi að gilda að minnsta kosti til áramóta og í kjölfarið lýstu margir listamenn yfir áhyggjum sínum. Bubbi Morthens er einn þeirra og...
InnlentIðnó lokað – fjárhagslega ómögulegt að halda verkefninu áfram5. maí 2020 Þórir Bergsson og René Boonekamp, sem séð hafa um rekstur á Iðnó síðan árið 2017, tilkynntu á Facebook-síðu hússins í dag að þau hefðu ákveðið að loka húsinu og hætta öllum rekstri þar. „Á þessum fordæmalausu tímum reyndist það fjárhagslega ómögulegt að halda áfram verkefni okkar um að koma fólki saman,“ segir í færslunni. „Það sem liggur framundan er að...
InnlentHegningarhúsið verður opið almenningi29. apríl 2020 Ríkiseignir og Minjavernd hafa gengið frá undirritun samstarfssamnings um að hefja endurgerð á Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í sumar. Þetta kemur fram á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Húsið er friðað samkvæmt lögum um menningarminjar og þykir mikilvægt að viðgerð hússins taki mið af upprunalegri gerð þess, bæði hvað efnisval og handverk varðar. Framkvæmdir munu hefjast strax í sumar og eru þær...
InnlentKvikan heldur rafræna myndlistarsýningu: Allir geta tekið þátt26. apríl 2020 Kvikan, auðlinda- og menningarhús Grindavíkur heldur rafræna myndlistarsýningu og er öllum íbúum og velunnurum Grindavíkur velkomið að taka þátt í sýningunni. Hún fer þannig fram að allir áhugasamir skapa listaverk heima hjá sér og taka svo af því mynd og senda inn. Myndirnar verða til sýnis á heimasíðu Grindavíkurbæjar og á Facebook-síðu Kvikunnar. Listamenn eru hvattir til að merkja sér...
InnlentHafdís Björg safnar sumargjöfum fyrir börn sem fá engar: „Svo dýrmætt að leyfa börnum að vera börn“22. apríl 2020 Hafdís Björg Kristjánsdóttir, fimm drengja móðir, einkaþjálfari og margfaldur íslandsmeistari í fitness, safnar nú sumargjöfum fyrir börn sem fá enga slíka. „Það leituðu til mín þrjár mæður sem voru með mikinn kvíða yfir því að geta ekki gefið börnunum sínum sumargjöf þetta árið. Þetta týpíska allir vinirnir í leikskólanum/skólanum fá sumargjöf,“ segir Hafdís Björg í samtali við Mannlíf. „Það eru...
InnlentSteinunn, Jón Þorgeir og Kristín nýir stjórnendur hjá Þjóðleikhúsinu20. apríl 2020 Eftir skipulagsbreytingar síðustu mánaða í Þjóðleikhúsinu hafa nú verið ráðnir þrír nýir öflugir stjórnendur í Þjóðleikhúsið. Störf þeirra koma í stað þriggja annarra starfa sem voru aflögð sem hluti af áherslu- og skipulagsbreytingum í leikhúsinu. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Nýju starfsmennirnir eru allir afar reynslumiklir á sviði leikhúsa, menningar og þjónustu. Steinunn Þórhallsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri...
InnlentCovid-19Íslenskir dansarar svekktir á Spáni12. apríl 2020 „Við fáum allavega að útskrifast en það er auðvitað mjög svekkjandi að gera það ekki með eðlilegum hætti og upplifa lokaárið sitt svona. Þetta er ekki gaman, “ segir Katrín Birna Vignisdóttir, útskriftarnemi í dansi við listaháskóla í Barcelona, sem þarf nú að klára lokaprófin heiman frá sér eftir að skólahald háskólans sem hún útskrifast var lagt af vegna útbreiðslu...
InnlentCovid-19Hefur áhyggjur af Þjóðhátíð meðan hann jafnar sig á COVID12. apríl 2020 Eyjamenn vonast til að tíminn verði með þeim í liði og að hægt verði að halda Þjóðhátíð í eyjum með óbreyttu sniði í ár þrátt fyrir kórónaveirufaraldurinn sem gengur yfir landið. Ljóst þykir að stóru knattspyrnumótunum, Orkumótinu og Pæjumótinu sem haldin eru árlega í júnímánuði, verður frestað og hafinn er undirbúning þess að fresta þeim fram á sumarið. r Vilhjálmsson...
InnlentLeikstýrir fyrstu sjónvarpsmyndinni 74 ára gömul12. apríl 2020 Sjónvarpsmyndin Sveinsstykki verður frumsýnd á RÚV að kvöldi annars páskadags. Myndin byggir á samnefndu leikriti Þorvalds Þorsteinssonar, Arnar Jónsson leikur eina hlutverkið, Svein, og Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir. Þetta er í fyrsta sinn sem Þórhildur leikstýrir sjónvarpsmynd og hún hefur ekki leikstýrt kvikmynd síðan hún leikstýrði hinni geysivinsælu mynd Stella í orlofi árið 1986. Er hún að hasla sér völl á...
MannlífiðGengið með Guðjóni Samúelssyni – tilvalin afþreying um páskana fyrir alla fjölskylduna12. apríl 2020 Margir kjósa að nýta páskafríið til útivistar. Á dögunum var settur á laggirnar ratleikur þar sem þátttakendum gefst kostur á að njóta útiveru og íslensks menningararfs á sama tíma. Nemendur í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands bjuggu til leikinn í haust í námskeiðinu leikjavæðing og menningararfur. Leikurinn er tilvalin afþreying fyrir alla fjölskylduna. Hallgrímskirkja er eitt þekktasta verk Guðjóns og...