SlúðurHræsni biskupsins26. desember 2022 Athygli vakti að Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, notaði jólahugvekju sína til að fjargviðrast yfir því að þöggun væri í gangi varðandi Guð hinna kristnu. „Það hefur verið þöggun í gangi varðandi Guð kristinna manna,“ sagði Agnes sem er sjálf þekkt fyrir þöggun í ýmsum málum og er gríðarlega umdeild innan sem utan Þjóðkirkjunnar. Fjöldi fólks hefur snúið baki við Þjóðkirkjunni...
SlúðurBubbi veikur25. desember 2022 Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur haft þá reglu um áratugaskeið að heimsækja fanga á Litla-Hrauni á jólunum og gleðja þá með söng og hljóðfæraslætti. Þessi jólin varð ekki af heimsókninni vegna þess að Bubbi veiktist. Hann var með stíft tónleikahald í desember og eftir þorláksmessutónleikana var hann orðinn veikur. Hann komst því ekki á Hraunið til að gleðja þá sem þar...
SlúðurStærsta jólagjöf Erlu24. desember 2022 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra brást hárrétt við þegar hújn bað Erlu Bolladóttur fyrirgefningar fyrir hönd þjóðarinnar og greiddi henni rúmar 30 milljónir króna í bætur fyrir þá þjáningu sem gæsluvarðhaldið vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar hefur valdið henni. Aðrir sakborningar í málinu höfðu þegar fengið bætur en Erla var sniðgengin. Erla lýsti baráttu sinni í viðtali við Mannlíf í haust. Hún sagði...
SlúðurSólveig og rjúpan23. desember 2022 Atvinnurekendum hefur tekist að brjóta aftur þríeykið sem hafði boðað byltingu í samningum skjólstæðinga sinna. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er búinn að semja við langflesta launþega aðra en Eflingu. Eftir stendur Sólveig Anna Jónsdóttir formaður með kröfur sem engan hljómgrunn fá. Hún gerði Halldóri og félögum tilboð í vikunni en það var umsvifalaust slegið út af borðinu. Nú...
SlúðurStefáni sama um listamannalaun22. desember 2022 Rithöfundurinn Stefán Máni er gjarnan með eina bók á ári sem njóta vinsælda. Hann hefur þó ekki notið fastra ritlauna og ekki verið í sérstakri náð hjá þeim sem stýra úthlutunum. Rithöfundurinn var í viðtali við Egil Helgason í Kiljunni í gærkvöld þar sem hann lýsti því yfir að hann starfaði gjarnan við annað en skriftir og vildi hafa það...
SlúðurDagur pakkar saman21. desember 2022 Við lok ferils Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra í Reykjavík blasir við fremur skuggaleg staða í fjármálum borgarinnar. Meirihlutinn á hinu mesta basli við að koma skikk á málin. Það mun síðan koma til kasta Einars Þorsteinssonar, leiðtoga Framsóknarflokksins, eftir rúmt ár að axla ábyrgð sem borgarstjóri. Þessa dagana æfir hann sig fyrir embættið í fjarveru Dags sem staddur er...
SlúðurEinar og drulludelarnir20. desember 2022 Einar Kárason rithöfundur hefur lengi vel verið fastakúnni þar sem um er að ræða listamannalaun. Frá því hann kom fram á sjónarsviðið með það magnaða verk Þar sem Djöflaeyjan rís hefur hann gjarnan verið verðlaunaður af almenningi með föstum launagreiðslum hluta úr ári sem hafa tryggt honum framfærslu að nokkru marki. Undanfarin ár hefur lítið kveðið að Einari á sviði...
SlúðurUndarlegt ferðalag Birgis19. desember 2022 Birgir Þórarinsson, kjörinn þingmaður Miðflokksins og núverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, lagði á sig undarlegt ferðalag til Afganistan í byrhjun mánaðarins til að hitta Talibana að máli. Hann var að sögn fyrstur erlendra stjornmálamanna til að heimsækja þetta ríki öfgamanna sem forsmáir flest mannréttindi og niðurlægir konur sérstaklega. Milljónir landsmanna hafa flúið landið undan ofsóknum. Birgir komst að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt...
SlúðurBænaraugu Maríu18. desember 2022 Ársreikningur Samherja Holding, sem Þorsteinn Már Baldvinsson leiðir, inniheldur sterkan siðaboðskap. Þar er tekið af skarið með að fyrirtækið umberi ekkert svindl og svínarí. Hjá Samherja Holding er mikilvægt að unnið sé af heilindum og við líðum ekki spillingu af neinu tagi,“ vitnar Kjarninn í ársreikninginn og segir frá því að fyrirtækið er til rannsóknar í Namibíu og á Íslandi...
SlúðurEgill með Parkinson17. desember 2022 Söngvarinn og stórleikarinn, Egill Ólafsson, hefur undanfarin tvö ár glímt við Parkinson-sjúkdóminn. Þetta hefur sett mark sitt á líf hans og úthaldið hefur minnkað og getan til að syngja sömuleiðis. Þetta setur mark sitt á feril hans með Stuðmönnum. Egill segir frá því í viðtali við Fréttablaðið að hann hafi uppgötvað sjúkdóminn þegar hann var ásamt eiginkonu sinni, Tinnu Gunnlaugsdóttur,...
SlúðurMaría boðar gjaldþrot16. desember 2022 Þau áform fjárlaganefndar að rétta sjónvarpsstöðinni N4 100 milljónir króna af almannafé vöktu í senn reiði og athygli. Þá kom í ljós að sannkölluð frændhygli kom við sögu því Framsóknarmaðurinn Stefán Vagn Stefánsson, sem situr í fjarlaganefnd, er mágur Maríu Bjarkar Ingvadóttur eins og Mannlíf benti á eftir að málið komst í fjölmiðla. Fjárlaganefnd hrökk til baka eftir að velviljinn...
SlúðurBjarnabætur Katrínar15. desember 2022 Hart er sótt að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra þessa dagana og vinsældir hennar og flokks hennar hafa hríðfallið, ef marka má kannanir. Stjórnarandstaðan fer hamförum og Jóhann Páll Jóhannsson, alþingismaður Samfylkingar, sagðist í ræðu ekkert botna í því hvers konar stjórnmálamaður hún væri orðin. Katrín tók þessum ávirðingum af alkunnri prúðmennsku. Ástæðan fyrir þessum umskiptum er auðvitað dauðadans VG við Sjálfstæðisflokkinn...