Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

María boðar gjaldþrot

María boðar gjaldþrot
María Björk Ingva­dóttir. Mynd N4

Þau áform fjár­laga­nefndar að rétta sjón­varps­stöð­inni N4 100 millj­ónir króna af almannafé vöktu í senn reiði og athygli. Þá kom í ljós að sann­kölluð frænd­hygli kom við sögu því Fram­sókn­ar­mað­ur­inn Stefán Vagn Stef­áns­son, sem situr í fjar­laga­nefnd, er mágur Maríu Bjarkar Ingva­dóttur eins og Mannlíf benti á eftir að málið komst í fjöl­miðla.

Fjár­laga­nefnd hrökk til baka eftir að vel­vilj­inn komst í hámæli. Í stað þess að eyrna­merkja fyr­ir­tæk­inu pen­ing­ana verður Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra sendur tékk­inn og henni falið að útfæra styrk­inn á almennum grunni. En staða sjón­varps­stöðv­ar­innar er grafal­var­leg ef marka má bréf Maríu til fjár­laga­nefndar þar upp­lýsir hún að ef styrk­ur­inn fáist ekki blasi gjald­þrot við og stöðin muni þurfa að loka um ára­mót. „Rík­is­styrkur þessi mun gefa okkur von um að það tak­ist en ljóst að fleiri þurfa að koma að mál­inu, bæði sveit­ar­fé­lögin og “Angels-investors” sem eiga stöð­ina í dag,“ skrifar María Björk sem upp­lýsir jafn­framt að styrk­ur­inn einn og sér dugi ekki til bjargar og leggur til að N4 sam­ein­ist Rík­is­út­varp­inu og almenn­ingur taki við hinum beiska bikar.

Einn helsti bak­hjarl stöðv­ar­innar er Samherji sem greitt hefur fyrir dag­skrár­gerð að ein­hverju marki og þannig haft mikil áhrif. Svo er að skilja á bréfi Maríu að sveit­ar­fé­lög á Norð­ur­landi hafi brugð­ist N4 og ekk­ert fjár­magn sé að hafa þaðan lengur. Hugs­an­lega er staðan þannig núna að ef Samherji kemur ekki þessu fóst­ur­barni sínu til hjálpar muni stöðin fara í þrot …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Slúður