InnlentSamherji slekkur á stærsta fyrirtækinu – Bjargvætturinn gafst upp eftir fjögur ár14. júní 2023 Dótturfyrirtæki Samherja hefur boðað lokun stærsta fyrirtæki Hólmvíkinga, rækjuvinnslu Hólmadrangs. Dótturfyrirtæki Samherja, Snæfell, sem tók við rekstrinum árið 2019 og bjargaði vinnslunni frá því að fara í þrot. Fjórum árum síðar er allt að sigla í strand og 20 manns á Hólmavík missa vinnuna. Við blasir stóráfall fyrir byggðina. Þorsteinn Már Baldvinsson fékk hrós fyrir að taka við rækjuvinnslunni. Nú...
InnlentLilja Rafney gagnrýnir Vinstri græna: „Olíusparnaður togara má ekki vera á kostnað lífríkisins“25. maí 2023 Varaþingmaður Vinstri grænna gagnrýnir harðlega frumvarp sem leyfir öfluga togara, með öfluga botndræg veiðarfæri að veiða á grunnslóð við Ísland. Segir hún að frumvarpið sé í boði Vinstri grænna. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norð-vesturkjördæmi, er harðorð gagnvart félögum sínum í flokknum vegna frumvarps sem er á „lokametrunum“ en þar er leitast til þess að leyfa...
InnlentÁskell sviptur veiðileyfi: „Landhelgisgæsla hefur kært brot til lögreglustjórans á Suðurnesjum“6. apríl 2023 Togarinn Áskell ÞH-48 hefur verið sviptur veiðileyfi í fjórtán daga, frá 1.maí til 14.maí næstkomandi. RÚV greindi frá. Veiðieftirlitsmaður Fiskistofu notaðist við dróna til þess að góma bátsmenn við brottkast. Dróninn flaug yfir togaranum í 48 mínútur og á þeim tíma var 74 fiskum hent aftur í sjóinn en brottkast hefur tíðkast lengi. Samkvæmt lögum á að landa öllum afla...
LandiðTveir línubátar á Fáskrúðsfirði lang aflahæstir á síðasta ári: „Báðir mannaðir miklu úrvalsfólki“25. janúar 2023 Línubátar Loðnuvinnslunnar, Sandfell og Hafrafell komu samtals að landi á síðasta ári með ríflega fjögur þúsund og níu hundruð tonn af afla. Eru bátarnir því aflahæstir slíkra báta á landinu. Austurfrétt segir frá málinu. Þar kemur fram að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem þessir bátar toppi listann yfir aflamestu bátanna yfir árið. Frá því að Sandfellið kom til...
InnlentÓli Ufsi segir Svandísi í ruglinu – Sjómenn sem þora segi allir það sama: „Grisjum þennan stofn“1. nóvember 2022 Ólafur Jónsson eða Óli Ufsi eins og hann er oft kallaður, fyrrverandi skipstjóri, segir að nóg sé af fiski á miðunum og segir Hafró og Svandísi Svavarsdóttur í „algjöru rugli með ráðgjöfina.“ Ólafur birti ljósmynd af hrognum á Facebook-síðu sinni og skrifaði eftirfarandi texta við myndina: „Aldrei sést önnur eins veiði í Buktinni og sýnir okkur svo sannarlega að HAFRÓ...
InnlentFrosti Logason kominn á sjóinn og er eldhress: „Ég var alveg blautur á bak við eyrun“5. ágúst 2022 „Þetta er rosalegt ævintýri. Mig hefur alltaf dreymt um að prófa þetta en aldrei tími til fyrr en núna,“ segir Frosti Logason fjölmiðlamaður sem stundar sjómennsku á línubátnum Vésteini GK fyrir austan land. Frosti er þekktur sem fjölmiðlamaður og gjarnan kenndur við þáttinn Harmageddon sem hann stjórnaði um langt árabil. Hann er nú hættur hjá fjölmiðlarisanum Sýn og rær á...
InnlentSvandís vill ekki tjá sig fyrr en Samkeppniseftirlitið hefur lokið skoðun15. júlí 2022 Áhyggju- og gagnrýnisraddir heyrast víða í samfélaginu vegna fyrirhugaðra kaupa Síldarvinnslunnar á útgerðinni Vísi. Forsætisráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af samþjöppun í sjávarútvegi en matvælaráðherra, sem sjávarútvegsmál heyra undir, telur ekki tímabært að tjá sig um málið fyrr en Samkeppniseftirlitið lýkur skoðun sinni. Talsvert hefur verið fjallað um yfirvofandi kaup Síldarvinnslunnar á útgerðinni Vísi í Grindavík í vikunni. Samherji á...
InnlentFormaður Verkalýðsfélags Grindavíkur ætlar að treysta því að loforð haldi: „Við þekkjum þessa sögu“14. júlí 2022 Um það bil 200 starfsmenn útgerðarinnar Vísis eru félagsmenn í Verkalýðsfélagi Grindavíkur, samkvæmt formanni félagsins. Í ljósi frétta af yfirvofandi kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi segist hann vilja vera bjartsýnn og treystir því að Vísir verði áfram í Grindavík, enda sé bærinn bæði vel staðsettur og vinnslan afar vel búin tæknilega. Hann segist þó muna Gugguna á Ísafirði og loforðin sem...
InnlentKatrín og Bjarni ósammála um viðskipti stórútgerða12. júlí 2022 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segist hafa áhyggjur af því að samþjöppun í sjávarútvegi verði of mikil eftir kaup Síldarvinnslunnar á útgerðinni Vísi í Grindavík. Þetta kemur fram á RÚV. Katrín segir meðal annars að Samkeppniseftirlitið og Fiskistofa séu með það til skoðunar hvort aflaheimildir fari yfir kvótaþakið eftir kaupin. Hún segist hafa þá skoðun að endurskoða verði regluverkið, bæði varðandi kvótaþak...
InnlentFannar vonar að fyrirheit Samherja gangi eftir í Grindavík: „Þetta kemur svona flatt upp á okkur“11. júlí 2022 Í gær bárust fregnir af því að Síldarvinnslan, sem félög í eigu útgerðarfyrirtækisins Samherja eiga ráðandi hlut í, sé komin á fremsta hlunn með að kaupa útgerðarfyrirtækið Vísi í Grindavík. Kaupverð er 31 milljarður króna. Fullyrt hefur verið að Vísir og kvótinn verði áfram í Grindavík og hagsmunir bæjarbúa í forgrunni. Stjórn Vísis muni sitja áfram og fyrirtækið verða dótturfélag...
InnlentMenn vöknuðu þegar ormar skriðu upp úr þeim: „Ég var alveg að drepast“17. júní 2022 Nokkur dæmi eru um að hringormar hafi komist í fólk og valdið usla í meltingarvegi. Elías Svavar Kristinsson, sjómaður frá Dröngum, rifjar upp slíkt tilvik í hlaðvarpinu Sjóaranum þar sem félagi hans veiktist illa eftir að hafa fengið í sig lifandi hringorm. Þetta gerðist við loðnuveiðar og menn voru gjarnan að gæða sér á hráum loðnuhrognum. Þá smitaðist einn af...
InnlentNíu verkefni hlutu styrk Fiskeldissjóðs – Til að mæta vaxandi kröfum íbúa30. maí 2022 Stjórn Fiskeldisjóðs hefur úthlutað öðru sinni styrkjum til eflingar innviða og atvinnulífs í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað. Að þessu sinni var úthlutað styrkjum til níu verkefna í sex sveitarfélögum, samtals 185,1 milljónir króna. Úthlutun á fyrra ári nam 105 milljónum króna segir í úthlutun Fiskeldissjóðs 2022. Eftirfarandi níu verkefni frá sex sveitarfélögum hlutu styrk: Vatnsveita í Bolungarvík, bygging...