Dótturfyrirtæki Samherja hefur boðað lokun stærsta fyrirtæki Hólmvíkinga, rækjuvinnslu Hólmadrangs. Dótturfyrirtæki Samherja, Snæfell, sem tók við rekstrinum árið 2019 og bjargaði vinnslunni frá því að fara í þrot. Fjórum árum síðar er allt að sigla í strand og 20 manns á Hólmavík missa vinnuna. Við blasir stóráfall fyrir byggðina.

Á vef Samherja segir að rekstur Hólmadrangs hefur frá þeim tíma verið erfiður og Snæfell hafi stutt við reksturinn með ýmsum hætti, með það að markmiði að halda starfseminni gangandi. Þannig hafi verið tryggt að þungur rekstur Hólmadrangs hafi ekki orðið fyrirtækinu að falli. Fullyrt er að tapa hafi verið af rekstrinum öll árin og ekki greiddur út arður. Á síðasta ári töpuðust 205 milljónir króna og er eigið fé fyrirtækisins neikvætt um 28 prósent. Ekki hefur verið greiddur út arður úr félaginu frá því Snæfell kom að rekstrinum.
Viðvarandi taprekstur hefur verið á síðustu árum. Tap síðasta árs var 205 milljónir króna samkvæmt ársreikningi.
Eigið fé var neikvætt um 360 milljónir króna í árslok 2022 og eiginfjárhlutfall neikvætt um 28 prósent. Helstu eignir Hólmadrangs felast í húsnæði, búnaði og birgðum.
Hólmadranur á engar veiðiheimildir og allt hráefni sem unnið er í rækjuvinnslu Hólmadrangs hefur verið innflutt frá Noregi og Kanada. Samherjamenn segja að staðsetning vinnslunnar á Hólmavík sé á margan hátt óhagstæð.
Þá segir að markaðsaðstæður á sölu kaldsjávarrækju hafi verið erfiðar frá upphafi heimsfaraldursins og ekki er talið að það breytist á næstu misserum. Þá telur stjórn Hólmadrangs að komið er að verulegri endurnýjun húsnæðis og búnaðar, eigi vinnslan að verða samkeppnishæf. Samkvæmt mati sérhæfðs aðila sé kostnaðurinn á nýjum búnaði ekki undir 500 milljónum króna. Við þessa fjárhæð bætist svo mikill kostnaður vegna endurnýjunar á húsnæði. Það er mat stjórnar Hólmadrangs að reksturinn standi ekki undir slíkri fjárfestingu.
Uppsagnir um mánaðarmót
Í ljósi stöðunnar ákvað stjórn Hólmadrangs að stöðva rækjuvinnsluna um næstu mánaðamót. Starfsfólk var í dag upplýst um stöðu mála og að óbreyttu komi til uppsagna um mánaðamótin í samræmi við gildandi starfssamninga og reglur um hópuppsagnir.
Stjórn Hólmadrangs hvetur alla aðila er koma að atvinnumálum Strandabyggðar til að kanna gaumgæfilega möguleika á annarri starfsemi í húsnæði félagsins, og mun leggja til ráðgjafaþjónustu í tengslum við slíka vinnu. Sérhæfður aðili hefur verið ráðinn til verkefnisins, sem þekkir vel til atvinnumála Strandabyggðar.
Upplýst er á vef Samherja að veitarstjórn Strandabyggðar og fyrirtækið Íslensk verðbréf hafi undirritað viljayfirlýsingu um fiskeldi og þararækt. Hólmadrangur hefur að sögn þegar rætt við ÍV um hugsanlega aðkomu að þessu verkefni sem gæti opnað möguleika á nýjum atvinnutækifærum á staðnum með nýtingu þeirra fasteigna sem fyrir eru.
Að mati stjórnar Hólmadrangs liggja hugsanleg tækifæri fyrir svæðið ekki síður í mögulegri uppbyggingu ferðaþjónustu, sé litið til vaxandi fjölda ferðamanna og aðdráttarafls svæðisins fyrir ferðamenn.































Athugasemdir