InnlentPáll hjólar í Sindra: „Af hverju heldurðu fram þessari staðleysu?“12. apríl 2020 Páll Magnússon, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, segir ásaknir Sindra Ólafsson, ritstjóra Eyjafrétta, á hendur sér ekki eiga við rök að styðjast. Páll vísar þar til pistils sem Sindri birti í Eyjafréttum, þar sem hann segir þingmanninn m.a. hafa notað ýmis tækifæri til að rýra trúverðugleika sinn sem ritstjóra. Þetta vill Páll ekki kannast við. „Hvar og hvenær hef ég gert...
Innlent„Árásir þingmannsins og bæjarstjórans á mig persónulega eru í besta falli vindhögg“12. apríl 2020 „Árásir þingmannsins og bæjarstjórans á mig persónulega eru í besta falli vindhögg. Þau hvetja mig til þess að halda áfram að vinna mína vinnu. Árásir á fyrirtækið sem réði mig í vinnu eru alvarlegri, fyrirtæki sem er með 14 einstaklinga að jafnaði á launaskrá í hverjum mánuði. Þær árásir þurfa þessir kjörnu fulltrúar vonandi einhvern tímann að svara fyrir.“ Þetta...
InnlentEr Ármann á útleið?11. apríl 2020 Ágreiningur innan raða Sjálfstæðismanna í Kópavogi er sagður geta leitt til þess að Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri hverfi frá störfum. Fréttablaðið slær upp frétt þess efni í blaðinu í dag og segir rekur ástæðurnar til meints trúnaðarbrests og misjafnar skoðanir á samstarfsflokki í bæjarstjórn. Í blaðinu er því haldið fram að meintur trúnaðarbrestur hafi átti sér stað fyrir rúmum mánuði...
InnlentCovid-19„Falski“ bakvörðurinn á framboðslista í síðustu kosningum – „Harmleikur“ segir fyrrverandi samstarfsmaður10. apríl 2020 Kona á fertugsaldri, sem handtekin var í dag og sleppt úr haldi lögreglunnar á Vestfjörðum seinni partinn, var á framboðslista stjórnmálaflokks á Suðvesturhorninu og tók þátt í stjórnmálum í bæjarfélaginu sem hún býr í samkvæmt öruggum heimildum Mannlífs. Sjá einnig: Bakvörður með falsaða pappíra handtekinn – verður skimaður fyrir Covid-19 Konan var handtekin grunuð um hafa framvísað fölsku starfsleyfi sem...
Innlent„Rekstrarleg ábyrgð RÚV er ekki til staðar og reksturinn míglekur“8. apríl 2020 „Almenningur í landinu er með nauðungaráskrift að Ríkisútvarpinu. Peningarnir fara mikið til í framleiðslu á afþreyingu í beinni samkeppni við fjölmiðla sem ýmist verða að treysta á eigin rekstur eða efnahag eigenda sinna. Rök þeirra sem vilja veg Ríkisútvarpsins sem mestan eru gjarnan þau að stofnunin gegni menningarlegu hlutverki og tryggi almannavarnir. Aðeins lítill hluti framleiðslunnar í sjónvarpshluta RÚV getur...
InnlentHagsmunir eiginkonu ráðherra ekki tilgreindir8. apríl 2020 Ágústa Johnson, eiginkona Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra, hefur fengið yfir 329 milljónir króna í arðgreiðslur af Bláa lóninu. Stundin segir frá þessu í dag. Félag Ágústu, Bogmaðurinn ehf., fær greiðslurnar. Félagið var áður að helmingi í eigu Guðlaugs Þórs en síðan fært að fullu í eigu Ágústu. Stundin upplýsir að umræddar arðgreiðslur nái til áranna 2012 til 2019. Í hagsmunaskráningu...
HeimurBoris Johnson enn á gjörgæslu og gefið súrefni8. apríl 2020 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, dvaldi á gjörgæslu í nótt, aðra nóttina í röð, að því er fram kemur á vef bresku fréttastofunnar BBC. Eins og kunnugt er greindist forsætisráðherrann með Covid-19 smit fyrir tólf dögum og var fluttur á gjörgæslu í gærdag, mánudag, í samráði við lækna. Fylgst er náið með líðan Johnson, sem hefur enn sem komið er ekki...
InnlentÞorsteinn Víglundsson hættir þingmennsku8. apríl 2020 Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, hefur tekið ákvörðun um að segja af sér þingmennsku. Þessu segir hann frá á Facebook-síðu sinni. Hann segist hafa tekið ákvörðunina að vel íhuguðu máli og hefur samþykkt að taka að sér spennandi verkefni á vettvangi atvinnulífsins. Hann mun hefja störf á nýjum vettvangi síðar í þessum mánuði. „Síðdegis í gær tilkynnti ég Steingrími J. Sigfússyni,...
InnlentCovid-19„Það er svo mikil seigla í Íslendingum“5. apríl 2020 Það er svo mikilvægt þegar maður er minntur á hverfulleika efnahagslífsins að muna hvað við eigum. Þá sér maður þessa seiglu í samfélaginu, samheldnina og fólkið sem stendur í ströngu, til dæmis í heilbrigðisþjónustunni, hjá almannavörnum, í skólunum og verslunum þar sem starfsmenn standa í framlínunni og þurfa að takast á við það að mæta fólki allan daginn. Fólk í...
HeimurBoris Johnson lagður inn á sjúkrahús5. apríl 2020 Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hefur verið lagður inn á sjúkrahús til rannsókna, en tíu dagar eru síðan hann greindist með COVID-19 kórónaveiruna. Johnson var lagður inn nú í kvöld samkvæmt læknisráði, eins og segir í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherra. Johnson hefur sinnt störfum sínum heiman frá sér að Downingsstræti 10 frá því að hann greindist. Sjá einnig: Boris Johnson greinist...
InnlentÖssur á friðarstóli5. apríl 2020 Það hefur farið lítið fyrir Össuri Skarphéðinssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, undanfarið. Össur var um áratugaskeið afar áberandi í opinberri umræðu og sýndi í senn snerpu og vopnafimi í átökum við pólitíska andstæðinga. Nú situr hann á friðarstóli á Vesturgötu. Hann er þó ekki aðgerðarlaus því undanfarin misseri hefur hann unnið að rannsókn á grænlensku samfélagi með það fyrir augum að efla...
InnlentCovid-19Katrín um sóttkvína: „Bara tímaspursmál að eitthvað svona gæti gerst“5. apríl 2020 Fjölmiðlar greindu frá því á dögunum að Covid-19 smit hafi komið upp í skóla eins af þremur sonum Katrínar Jakobsdóttur, þurfti hann að fara í sóttkví og flutti ásamt föður sínum út af heimilinu þar til fyrirskipaðri sóttkví lauk, tveimur vikum eftir að drengurinn hafði verið útsettur fyrir smiti. „Ég var í vinnunni og maðurinn minn hafði strax samband við...