Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Rekstrarleg ábyrgð RÚV er ekki til staðar og reksturinn míglekur“

„Rekstrarleg ábyrgð RÚV er ekki til staðar og reksturinn míglekur“
Reynir Trausta­son, editor of Mannlíf.

„Almenn­ingur í land­inu er með nauð­ung­ar­á­skrift að Rík­is­út­varp­inu. Pen­ing­arnir fara mikið til í fram­leiðslu á afþr­ey­ingu í beinni sam­keppni við fjöl­miðla sem ýmist verða að treysta á eigin rekstur eða efna­hag eig­enda sinna. Rök þeirra sem vilja veg Rík­is­út­varps­ins sem mestan eru gjarnan þau að stofn­unin gegni menn­ing­ar­legu hlut­verki og tryggi almanna­varnir. Aðeins lít­ill hluti fram­leiðsl­unnar í sjón­varps­hluta RÚV getur flokk­ast undir boð­lega menn­ingu. Þar er sum­part um að ræða jötu fyrir gæð­inga stofn­un­ar­innar sem mis­fara sumir með dag­skrár­vald,“

segir Reynir Trausta­son rit­stjóri Mannlífs í leið­ara sínum, þar sem hann fer yfir stöðu fjöl­miðla í dag, sem flestir berj­ast í bökkum í sam­keppni við þann sem er á fram­færi rík­is­ins.

Menningin er á Rás 1, skvaldrið á Rás 2

Reynir segir að það sem flokk­ast sem menn­ing, sé sinnt af Rás 1 og hafi sú stöð verið öflug á menn­ing­ar­svið­inu. Staðan sé önnur á Rás þar sem „byggir aftur á móti að miklu leyti á inni­halds­litlu skvaldri og gjafa­leikjum þar sem pen­ingar utan úr bæ ráða stundum umfjöllun,“ að sögn reyn­ist, og því sé eng­inn munur á þeirri stöð og öðrum útvarps­stöðvum. „Engin ástæða er fyrir ríkið til að halda úti sam­keppni við afþrey­ing­ar­miðla á frjálsum mark­aði,“ segir Reynir og bætir við að á þetta hafi verið bent árum saman en ekk­ert gerst.

Reynir veltir upp þeirri spurn­ingu af hverju ríkið fari ekki í sam­keppni í öðrum atvinnu­greinum, til dæmis opni ísbúð eða veip­sjoppu. Að mati Reynis er svarið aug­ljóst: „Það er ekki við hæfi og rekst­ur­inn yrði ekki gæfu­legur. Það er raunar hinn almenni vandi RÚV. Rekstr­ar­leg ábyrgð er ekki til staðar og rekst­ur­inn míg­lekur.“

RÚV rekið með tapi fyrir fjármuni almenning

Reynir segir rekstur RÚV lengst hafa verið rek­inn með gríð­ar­legu tapi, en ávallt geta sótt pen­inga í sjóði almenn­ings, óráðsía sé í rekstri og eng­inn beri ábyrgð. „Þegar reynt var að koma böndum á stofn­un­ina var gripið til þess að selja lóðir og hús­næði stofn­un­ar­innar. Pen­ing­arnir fóru í að greiða niður skuldir og halda áfram að fram­leiða og sýna dag­skrá sem að mestu leyti er í sam­keppni við fjöl­miðla sem ekki eiga slíkan bak­hjarl sem íslenska ríkið er,“ segir Reynir og bætir við að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi staðið fast um sitt og sína þrátt fyrir að halda á lofti

„því falska flaggi að hann standi með frelsi ein­stak­lings­ins og hamli gegn rík­is­rekstri. Flokk­ur­inn hefur samt sem áður verið hýs­ill fyrir Rík­is­út­varpið. Flokk­ur­inn hefur verið ráð­andi í fyr­ir­bær­inu um ára­bil og gætt þess vand­lega að koma sínu fólki að jöt­unni. Á vakt flokks­ins hefur stofn­unin blásið út í stað þess að vera sett inn í þann ramma sem eðli­legur getur talist. Hræsnin hefur verið nær algjör.“

Lýsir Reynir yfir ánægju sinni með fjöl­miðla­frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra, sem enn hefur ekki verið afgreitt á Alþingi.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist hafa staðið í vegi fyrir fram­gangi máls­ins. Boðberar frels­is­ins stóðu gegn því að frelsið yrði tryggt. Óli Björn Kárason, alþing­is­maður og for­maður fjár­laga­nefndar, þekkir betur en flestir hversu erfitt er að reka fjöl­miðla. Hann hefur skil­greint sig lengst til hægri á lit­rófi stjórn­mál­anna og skapað sér þá ímynd að hann sé umfram annað tals­maður einka­fram­taks og frelsis. Nú virð­ist staðan vera sú að hann sé á góðri leið með að stöðva það rétt­læt­is­mál sem tryggt gat bættar lífslíkur frjálsra fjöl­miðla og rétt af sam­keppni sem ann­ars er von­lítil. Hann og flokks­bræður hans eiga enn tæki­færi til að leggj­ast á árarnar og blása lífi í íslenska fjöl­miðla.“

„Þarna eru miklir fjár­munir sem eðli máls­ins sam­kvæmt ættu fremur að renna til aðila sem bera í raun ábyrgð á rekstri fjöl­miðla sinna“

Endar Reynir leið­ara sinn á að lausnin felist í að koma skikk á rekstur RÚV, taka eigi hana af aug­lýs­inga­mark­aði og banna allar kost­anir á efni, Rás 2 eigi að fara í hendur einka­að­ila og skerpa þarf á menn­ing­ar­legu hlut­verki RÚV:

„Þarna eru miklir fjár­munir sem eðli máls­ins sam­kvæmt ættu fremur að renna til aðila sem bera í raun ábyrgð á rekstri fjöl­miðla sinna,“ segir Reynir og telur brýnt að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hjálpi Lilju við að koma frum­varp­inu í gegn á þingi.

„Neyðin blasir við. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra verður að hjálpa mennta­mála­ráð­herra sínum við að koma mál­inu í gegn, með til­stilli stjórn­ar­and­stöð­unnar ef með þarf. Það þarf víð­tæka sam­stöðu til að tryggja að fjöl­miðlun á Íslandi fái þrif­ist og eigi sér lífs­von. Veiran má ekki verða afsökun fyrir því að gera ekki neitt. Í næstu kosn­ingum kann að verða tíma­bært að refsa þeim sem veifað hafa röngu flaggi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum