Innlent„Fólkið á biðlistum það getur ekkert beðið lengur. Þeirra þjáningum verður að linna“2. maí 2019 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, beindi fyrirspurn til fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar um hvort hann muni beita sér fyrir samningum við sjálfstætt starfandi heilbrigðisþjónustuaðila.
Innlent17 íslenskir dómarar heita yfirvöldum „trú og hlýðni“2. maí 2019 Allir starfandi dómarar við Hæstarétt Íslands og Landsrétt hafa undirritað nýrri útgáfu drengskaparheits dómara þar sem þeir heita að „að halda stjórnarskrá lýðveldisins Íslands“. Þetta er í stað eldra drengskaparheits sem lofar að dómari verði „trú/ r og hlýðin/ n stjórnvöldum“ 17 starfandi héraðsdómarar hafa hins vegar undirritað heit um hlýðni við yfirvöld.
InnlentFormaður ÖBÍ: „Ég styð Báru Halldórsdóttur, sem í dag er krossfari öryrkja ofsótt af valdhöfum“2. maí 2019 „Ég styð Báru Halldórsdóttur, sem í dag er krossfari öryrkja ofsótt af valdhöfum sem í fáránleika sínum og örvæntingu hamast við að reyna að draga athygli almennings frá þeirri ömurlegu staðreynd að þau opinberuðu níðingshátt sinn og halda honum svo áfram” skrifar Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ, á Facebook.
InnlentFramtíð nýs Herjólfs í algjöru uppnámi30. apríl 2019 Vegagerðin hefur innkallað bankaábyrgðir vegna smíði nýs Herjólfs sem ætlað er að sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Svo gæti farið að samningum um smíði ferjunnar verði rift.
InnlentÞriðji orkupakkinnAðstoðarmaður þingflokks Pírata sakar Miðflokkinn um nasískar aðferðir30. apríl 2019 „Að magna upp hræðsluna við eitthvað óskilgreint, flókið og útlenskt er sama taktík og nasistar notuðu við að útrýma gyðingum, sósíalistum, hommum og fötluðum,“ skrifar Eiríkur Rafn Rafnsson, aðstoðarmaður þingflokks Pírata á hópa sem kallast Pírataspjallið. Facebook-hópurinn er óformlegur umræðuvettvangur flokksins með tæplega þrettán þúsund meðlimi.
InnlentMálefni hælisleitenda „tragískur spegill á stefnu stjórnvalda“28. apríl 2019 „Það er endalaust verið að moka fólki til Grikklands án þess að við þurfum þess,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona Þorsteins Víglundssonar félags- og jafnréttismálaráðherra, í Silfrinu á RÚV í morgun. Hún starfar nú hjá Ríkissaksóknara. „Mér finnst þetta tragískur spegill á stefnu stjórnvalda.“
InnlentKosningaáróðurssíða úr dvala til að berjast fyrir einkarekstri í heilbrigðismálum23. apríl 2019 Facebook-síðan Kosningar er vöknuð úr dvala til að tala fyrir framkvæmd liðskiptaaðgerða á einkareknum stofum hér á landi.
SkoðunAðsend skoðunAð byggja hús á sandi22. apríl 2019 Höfundur / Eva H. Baldursdóttir Þú hefur rétt á eigin skoðunum, en ekki eigin staðreyndum sagði Daniel nokkur Moyhan, fyrrum þingmaður, sendherra og pólitískur ráðgjafi fjögurra bandaríkjaforseta. Þó heimurinn sé eflaust um margt flóknari en sá ytri heimur sem við skynjum með skynfærunum fimm, eru sumir hlutir hafnir yfir nokkurn vafa. Þannig erum við sammála um að jörðin sé kringlótt,...
InnlentFjórir af fimmtán hæstu útsvarsgreiðendum í Garðabæ búa beinlínis hlið við hlið21. apríl 2019 Fjórir af fimmtán þeirra sem hæstar útsvarsgreiðslur greiða í Garðabæ búa beinlínis hliðin á hvor öðrum samkvæmt athugun Stundarinnar . Þá búa tíu þeirra í sama hverfinu. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstýra Stundarinnar, gerir aukna stéttaskiptingu á Íslandi og hraða samþjöppun auðs að umfjöllunarefni í nýjum leiðara Stundarinnar.
InnlentReykjavíkurborgVigdís Hauksdóttir vill standa með „stóra meirihlutanum“ og „almennri skynsemi“18. apríl 2019 „Ég hef sagt það áður – lokunarmálin í miðborginni eru löngu orðin þráhyggja og á ekkert skylt við almenna skynsemi” skrifaði Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, á Facebook í morgun . Þá skoðun tjáir Vigdís vegna fyrirhugaðar lokunnar hluta Laugavegs fyrir bifreiðaumferð.
InnlentStjórnmálaflokkum boðið að kaupa umfjöllun um pólitískt hitamál17. apríl 2019 DV bauð þeim stjórnmálaflokkum sem eiga sæti á Alþingi að kaupa umfjöllun um þriðja orkupakkann sem er eitt heitasta deilumálið í pólitíkinni um þessar mundir. Slíkt tilboð er líklegt til að brjóta í bága við siðareglur blaðamanna.
InnlentÞingmaður varð fyrir aðkasti í Hagkaup17. apríl 2019 „Aldrei áður hafði ég staðið augliti til auglitis við netbræðina eins og hún lítur út í raunveruleikanum. Svona leit hann þá út, reiði maðurinn í athugasemdakerfunum.“