InnlentSegir hlerunina enga frétt: „Sjálfstæðisflokkurinn er spilltur. Og Bjarni Benediktsson gerspilltur“13. nóvember 2024 Gunnar Smári Egilsson segir aðalfrétt vikunnar, hlerunarmál Jóns Gunnarssonar, ekki hafa verið nein frétt, því allir viti að Sjálfstæðisflokkurinn er spilltur. Í færslu sem Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson skrifaði á Facebook í gær nefnir hann annað spillingarmál sem tengist Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra. Minnir hann á Klaustursmálið þarsem Gunnar Bragi Sveinsson sagði frá loforði Bjarna um sendiherrastöðu gegn því að hann...
InnlentÞórður Snær sagði konur vera lævísar og undirförular tíkur: „Nota kynlíf til að stjórna körlum“13. nóvember 2024 Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavíkukjördæmi norður, viðurkenndi í Spursmálum Morgunblaðsins að hafa stundað óhróðursskrif gegn konum á síðunni www.thessarelskur.blogspot.com.Þáttastjórnandinn, Stefán Einar Stefánsson dró upp bloggfærslur frá árunum 2006 og 2007 þar sem ummælin voru borin fram undir dulnefnunu German steel. „Konur eru flugklárar, miklu klárari en einfeldningarnir við sem getum mest átt þrjú áhugamál, þær taka...
InnlentBjarni neitar því að vera vanhæfur: „Eigum enga hluti í Hval hf“12. nóvember 2024 Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og sitjandi matvælaráðherra, telur sig vera hæfan að veita Hval hf. leyfi til hvalveiða. Það hefur gustað mikið um Bjarna Benediktsson síðan í gær en þá birti Heimildin leyniupptökur af Gunnari Bergmann Jónssyni en hann er sonur Jóns Gunnarssonar sem var nýlega skipaður aðstoðarmaður Bjarna í sjávarútvegsmálum. Á upptökunum má heyra Gunnar meðal annars tala um vanhæfni...
InnlentÖssur rífur Sjálfstæðisflokkinn í sig: „Þegar menn standa í skít upp að hálsi …“12. nóvember 2024 Össur Skarphéðinsson rífur Sjálfstæðisflokkinn í sig í nýrri Facebook-færslu þar sem hann tekur fyrir hlerunarmál Jóns Gunnarssonar. Líffræðingurinn og fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson skrifaði í dag harðorða Facebook-færslu þar sem hann talar um „súrrealisma í boði Sjálfstæðisflokksins“: „Súrrealismi í boði Sjálfstæðisflokksins Súrrealískt er að sjá að þegar ísraelskir leyniþjónustumenn fletta ofanaf hrossakaupum og spillingu innan Sjálfstæðisflokksins þá bregst sá...
InnlentÞekktir tjá sig um hlerunarmálið: „Jón er birtingarmynd spillingar“12. nóvember 2024 Fátt annað er talað um á kaffistofum landsins en hlerunarmál Jóns Gunnarssonar en fjölmargir landsmenn eru afar ósáttir við uppljóstrun Heimildarinnar, ef dæma má út frá samfélagsmiðlunum. Hér má sjá nokkur viðbrögð þjóðþekktra einstaklinga sem birtust á Facebook. Björn Þorláksson, rithöfundur, frambjóðandi Flokks fólksins og starfsmaður Samstöðunnar spyr hvort um sé að ræða besta vin aðal, en nýútkomin bók hans...
InnlentLeyniupptökur ljóstra upp um vinagreiða og hrossakaup : „Allir aðrir verða brjálaðir yfir þessu“11. nóvember 2024 Gunnar Bergmann, sonur og viðskiptafélagi Jóns Gunnarssonar þingmanns, staðhæfir í leynilegum upptökum manns sem þóttist vera erlendur fjárfestir, að Jón hafi samþykkt beiðni Bjarna Benediktssonar um að taka fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, gegn því að hann kæmist í aðstöðu til að veita Hvali hf veiðleyfi og tryggja þannig vini sínum, Kristjáni Loftssyni leyfið. Þetta kemur fram í nýrri frétt...
InnlentKaren leitar að útlendingavandamálinu: „Hefur knúið áfram hagvöxt og efnahagslega þróun landsins“11. nóvember 2024 Karen Kjartansdóttir stjórnendaráðgjafi bendir á tölulegar staðreyndir þegar kemur að meintu „útlendingavandamáli“ sem flokkar á borð við Miðflokkinn, Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna hafa talað um í aðdraganda þingkosninga. Bendir Karen, sem að undanförnu hefur verið dugleg að taka upp hanskann fyrir hælisleitendur og innflytjendur hér á landi, á að atvinnuþátttaka erlendra ríkisborgara á Íslandi, sé hærri en hjá innfæddum Íslendingum. „Hvert...
InnlentGunnar er fórnarlamb svissnesku tálbeitunnar – Jóhann Páll kemur af fjöllum11. nóvember 2024 Fasteignasalinn Gunnar Bergmann Jónsson er sá sem blekktur var af meintum „fjárfesti“ frá Sviss fyrir tveimur mánuðum síðan, til að segja frá baktjaldarmakki föður síns, Jóns Gunnarssonar og sitthvað fleira. Sjá einnig: Leynilegar upptökur með syni Jóns um baktjaldamakk: „Hafði dregið son minn á asnaeyrunum“ Sagt var frá því í morgun að Jón Gunnarsson, fráfarandi alþingismaður og aðstoðarmaður matvælaráðherra, hafi...
InnlentLeynilegar upptökur með syni Jóns um baktjaldamakk: „Hafði dregið son minn á asnaeyrunum“11. nóvember 2024 Jón Gunnarsson, fráfarandi alþingismaður og aðstoðarmaður matvælaráðherra, segir í færslu á Facebook að sonur hans hafi verið blekktur af svissneskum fjárfesti til að upplýsa um málefni föður síns og baktjaldasamninga varðandi ákvörðun hans um að taka baráttusæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum. Sonur Jóns hafi hitt manninn undir þeim formerkjum að þeir myndu eiga viðskipti. „Fyrir tveimur mánuðum hafði „svissneskur...
MenningLætur eldræður Sigurðar og séra Davíðs pirra sig: „Sjálfsagt er hægt að lesa texta með tilþrifum“8. nóvember 2024 Brynjar Níelsson lætur eldræður tveggja stjórnmálaandstæðinga sinna fara í taugarnar á sér. Lögmaðurinn Brynjar Níelsson skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hann agnúast út í tvær ræður sem vakið hafa athygli nýverið. Annars vegar lét hann eldræðu Sigurðar Inga Jóhannsson um innflytjendur í þætti RÚV þar sem rætt var við formenn flokkanna sem bjóða sig fram til Alþingis í komandi...
InnlentFáir treysta Sigurði Inga í efnahagsmálum – Kristrún Frostadóttir nýtur yfirgnæfandi trausts8. nóvember 2024 Kristrúin Frostadóttir nýtur langmests trausts landsmanna þar sem kemur að efnahagsmálum. Í skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Samfylkinguna kemur í ljós að 37,5 prósent landsmanna telja að Kristrúnu sé best treystandi til að leiða efnahagsmálin. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fær næstbesta niðurstöðu í könnuninn. 17.5 prósent aðspurðra töldu hann vera hæfastan til að leiða þjóðina í efnahagsmálum. 17 prósent...
InnlentSamfylkingin krefst leiðréttingar á frétt Viðskiptablaðsins um fyrri störf frambjóðenda7. nóvember 2024 Samfylkingin krefst þess að Viðskiptablaðið leiðrétti netfrétt sína sem birtist í gær, sem fjallaði um fyrri störf efstu frambjóðenda flokksins. Viðskiptablaðið staðhæfir í frétt sinni í gær að aðeins 6,7 prósent af efstu frambjóðendum Samfylkingarinnar kæmur úr störfum á almennum vinnumarkaði. Þetta segir flokkurinn vera rangt, í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla í dag. Samkvæmt henni koma 20 prósent...