InnlentDómsmálaráðuneytið um fund Brynjars og Namibíumanna: „Umfjöllunarefnið er í eðli sínu viðkvæmt“23. september 2022 Dómsmálaráðuneytið svaraði kæru blaðamanns Mannlífs vegna synjunar ráðuneytisins á gögnum og upplýsingum er vörðuðu fund embættismanna ríkisstjórnar Namibíu og Brynjars Níelssonar, aðstoðarmanns Dómsmálaráðherra í sumar. Brynjari sagði á Facebook að embættismennirnir hafi viljað ræða Samherjamálið en fékkst ekki til að segja meira. Fimm spurningar, þrjú svör Mannlíf sendi upprunalega fimm spurningar og bað um að fá að sjá minnisblað frá...
InnlentEnginn virðist ætla í formannsslag við Kristrúnu: „Nei það hef ég ekki hugsað mér“18. september 2022 Enn sem komið er Kristrún Frostadóttir ein í formannsframboði hjá Samfylkingunni en flokkurinn heldur landsþing í október. Logi Einarsson, núverandi formaður flokksins ákveðið að stíga af stalli sem formaður nú í haust og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur gefið það út að hann hyggist ekki bjóða sig fram þrátt fyrir mikinn stuðning. Helga Vala Helgadóttir, leikkona og þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur...
InnlentLandsfundi ungliðahreyfingar Viðreisnar lauk í gær: „Ísland er hætt að virka“18. september 2022 Landsfundi Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, lauk í gær. Á fundinum var kosið í nýja framkvæmdastjórn og félagastjórn Uppreisnar. Þá voru Uppreisnarverðlaunin einnig veitt og Uppreisn sendir frá sér stjórnmálaályktun um stöðu íslensks samfélags. Framkvæmdastjórn Uppreisnar. Á mynd vantar Draumey Ósk. Við upphaf Landsfundar veitti félagið Uppreisnarverðlaunin í fjórða sinn. Verðlaunin eru árlega veitt sem viðurkenning á og þakklætisvott fyrir óeigingjarnt starf...
InnlentSegir hlutverk Bjarna að svelta heilbrigðiskerfið: „Takk Katrín fyrir að gera honum þetta kleift“13. september 2022 Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamaður segir helsta hlutverk Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sé að svelta heilbrigðiskerfið. Þakka Katrínu fyrir að gera honum það kleift. Í færslu á Facebook við frétt Fréttablaðsins þar sem Bjarni dásamar einkavæðingu í heilbrigðisgeiranum, segir Illugi að þarna megi sjá eitt helsta hlutverk Bjarna í pólitík. Þakkar hann svo Katrínu og fleirum í Vinstri grænum. „Þarna er...
InnlentÞórunn og dóttir hennar hættar varaþingmennsku fyrir Flokk fólksins – Tengjast báðar hrossamálinu6. september 2022 Oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi segir alla í flokknum í sjokki yfir tengslum varaþingmanns hans við meint dýraníð í Borgarfirði. Vísir hafði það eftir Ingu Sæland, formann Flokks fólksis, að henni hefði blöskrað tengsl hennar við dýraníðsmálið og beðið hana að stíga til hliðar, sem hún hafi gert. Varaþingmaðurinn, Þórunn Björg Bjarnadóttir, landbúnaðarverkakona skipaði annað sæti lista flokksins í Norðvesturkjördæmi...
InnlentHelga Vala svarar Þorsteini Pálssyni fullum hálsi: „Réttlætismál og þarna stöndum við föstum fótum“1. september 2022 Helga Vala Helgadóttir þvertekur fyrir það að Samfylkingin hafi tekið ESB-aðild af dagskrá líkt og Þorsteinn Pálsson heldur fram. Þorsteinn Pálsson, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, veltir fyrir sér næstu ríkisstjórn Íslands í pistli í Fréttablaðinu í dag. Þar segir hann að Samfylkingin geti gengið inn í ríkisstjórnina sem nú er til staðar, í stað Vinstri grænna sem virðist vera að fjarlægjast...
InnlentÖll merki um að Kristrún ætli fram – Boðar fund með stuðningsmönnum18. ágúst 2022 Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, mun ekki bjóða sig fram til formennsku í Samfylkingunni. Hann staðfestir þetta í samtali við Fréttablaðið. Dagur segist þó ekki útiloka þátttöku í þjóðmálunum seinna meir. Logi Einarsson hyggst hætta sem formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í október. Á sama fundi verður því kosið um arftaka hans, en þau nöfn sem hafa hve mest verið...
InnlentBrynjar neitar að upplýsa um leynifund sinn með saksóknara Namibíu: „Shit, hvað þú ert lame“26. júlí 2022 Hörkudeilur hafa staðið á á milli lögmannsins Sveins Andra Sveinssonar og Brynjars Níelssonar, aðstoðarmanns dómsmálaráðherra, vegna fundar sem Brynjar átti með saksóknara Namíbíu í dómsmálaráðuneytinu. Sveinn Andri hefur krafið Brynjar skýringa á því á Facebook hvert hafi verið fundarefnið og hvort rætt hafi verið um málefni Samherjamanna sem sæta lögsókn fyrir meintar mútur í Namibíu. Brynjar segir fundinn hafa verið...
HeimurAfsögn Boris Johnson: „Ég óska honum samsvarandi eymdar og hann hefur úthlutað öðrum á ferli sínum“7. júlí 2022 Öll spjót hafa staðið að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, undanfarið og mikill þrýstingur á að hann segi af sér. Er það vegna raða hneykslismála og umdeildra ákvarðana, sem má segja að hafi byrjað með gleðskap sem haldinn var í bústað Johnson og höfuðstöðvum ríkisstjórnarinnar í Downingstræti 10 í júní árið 2020, þegar strangt samkomubann var í gildi í Bretandi. Johnson...
InnlentÖssur vill nýjan formann í stað Loga: „Flokkurinn hefur hrakist eins og sprek“15. júní 2022 „Hvenær ætlar Samfylkingin að kalla þessa efnilegustu konu íslenskra stjórnmála til forystu?“ spyr Össur Skarphéðinsson, fyrrum formaður Samfylkingarinnar, og alþingismaður og ráðherra til margra ára. Spurninguna ber hann upp í pistli sem hann skrifar á Facebook-síðu sína og vísar þar til Kristrúnar Frostadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar. „Hnífskarpur greinandi með pólitíska framtíðarsýn sem hefur svo sárlega skort síðustu árin, þegar flokkurinn hefur...
InnlentHúsnæðisátak í sáttmála nýs meirihluta7. júní 2022 Nýr meirihluti Framsóknar, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar í Reykjavík var kynntur í gær en samstarfssáttmálinn er sá lengsti í sögunni, eða 34 blaðsíður. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sagði í samtali við Fréttablaðið að samstarf milli flokkanna sé mjög áhugavert. „Það hefur virst spenna á milli þeirra í þinginu. Þannig ef samstarf þeirra í sveitarstjórnum gengur...
InnlentSegir Helga Hrafn hafa bannað sér að bjóða sig fram: „Fékk nóg af hræsninni sem gegnsýrir Pírata“4. júní 2022 Fyrrum þingmaður Pírata, fréttamaðurinn og grínistinn Gunnar Hrafn Jónsson henti sprengju á Facebook-vegginn sinn í dag. Upp úr þeirri sprengju spruttu upp mikið rifrildi meðal Pírata. Gunnar Hrafn JónssonMynd: Althingi.is Í færslunni heldur Gunnar Hrafn því fram að þegar Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, hafi tekið við sem leiðtogi flokksins fyrir þarsíðustu kosningar, hafi verið hans fyrsta verk að...