Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Landsfundi ungliðahreyfingar Viðreisnar lauk í gær: „Ísland er hætt að virka“

Landsfundi ungliðahreyfingar Viðreisnar lauk í gær: „Ísland er hætt að virka“
Fram­kvæmda­stjórn Upp­reisnar. Á mynd vantar Draumey Ósk.

Lands­fundi Upp­reisnar, ung­liða­hreyf­ingar Við­reisnar, lauk í gær. Á fund­inum var kosið í nýja fram­kvæmda­stjórn og félaga­stjórn Upp­reisnar. Þá voru Upp­reisn­ar­verð­launin einnig veitt og Uppreisn sendir frá sér stjórn­mála­á­lyktun um stöðu íslensks sam­fé­lags.

Fram­kvæmda­stjórn Upp­reisnar. Á mynd vantar Draumey Ósk.

Við upp­haf Lands­fundar veitti félagið Upp­reisn­ar­verð­launin í fjórða sinn. Verð­launin eru árlega veitt sem við­ur­kenn­ing á og þakk­læt­is­vott fyrir óeig­in­gjarnt starf í þágu frelsis, jafn­réttis og opn­ara sam­fé­lags, en það eru grunn­gildi félags­ins. Verð­launin eru veitt í tvennu lagi, ann­ars vegar til ein­stak­lings og hins vegar til fyr­ir­tækis eða félaga­sam­taka.

Hand­hafar Upp­reisn­ar­verð­laun­anna.

Í flokki ein­stak­linga var það Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem fékk verð­launin. Hlaut hann verð­launin einkum fyrir fram­lag sitt til alþjóða­sam­starfs, frjáls­lyndis og þátt hans í því að ungt fólk hlaut sæti ofar­lega í Reykja­vík­ur­kjör­dæmum í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum.

Í flokki félaga­sam­taka voru það Lands­sam­tökin Þroska­hjálp sem fékk verð­launin fyrir her­ferð­ina sína Hvað er planið? þar sem ljósi er varpað á stöðu fatl­aðra ung­menna þegar kemur að námstæki­færum að loknu námi af starfs­brautum fram­halds­skól­anna. Uppreisn tekur heils­hugar undir þessa áskorun og mik­il­vægi þess að ungt fólk með fatl­anir sé gefið pláss í atvinnu­líf­inu og sam­fé­lag­inu í heild.

Þá sendi Uppreisn frá sér stjórn­mála­á­lyktun en þar lýsir ung­liða­hreyf­ingin þungum áhyggju yfir stöðu íslensks sam­fé­lags. Segir í álykt­un­inni að grunn­stoðir sam­fé­lags­ins séu að bogna undan álagi vegna kerfis sem hætt er að virka fyrir almenna borg­ara. Farið er yfir stöðu hús­næð­is­mark­að­ar­ins í álykt­un­inni, heil­brigð­is­kerfið og vaxta­hækk­ana. Hér fyrir neðan má sjá ályktun Upp­reisnar í heild sinni:

„Uppreisn, ung­liða­hreyf­ing Við­reisnar, lýsir þungum áhyggjum yfir stöðu íslensks sam­fé­lags. Það er fyrir löngu orðið ljóst að grunn­stoðir sam­fé­lags­ins eru að bogna undan álagi vegna kerfis sem hætt er að virka fyrir hinn almenna borg­ara. 

Þegar litið er til hús­næð­is­mark­að­ar­ins eru vextir búnir að hækka upp úr öllu valdi og eru aftur í engu sam­ræmi við þau ríki sem við berum okkur saman við. Fast­eigna­mark­að­ur­inn er hættur að virka og fólk farið að seinka flutn­ingum úr for­eldra­húsum. Uppreisn lýsir ekki bara áhyggjum yfir auknum fjölda vand­ræða­legs einnar nætur gam­ans heldur líka þeim lang­tíma áhrifum sem það mun hafa. Það að fólk seinki flutn­ingum úr for­eldra­húsum gerir að verkum að fólk stofnar seinna til fjöl­skyldu. Til langs tíma mun það hafa nei­kvæðar afleið­ingar á líf­eyr­is­sjóðs­kerfið okkar, þegar sú kyn­slóð sem núna á í erf­ið­leikum með að eign­ast sína fyrstu fast­eign fer á eft­ir­laun. 

Heil­brigð­is­kerfið er líka hætt að virka fyrir fólk. Enda­lausar fréttir af mann­eklu og lausum samn­ingum í heil­brigð­is­kerf­inu sýna okkur að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er ekki í stakk búin til að efla heil­brigð­is­kerfið. Þess í stað ákveða þau að banna bragð­bætta nikótín­púða. Nýir samn­ingar við sér­greina­lækna, sjúkra­þjálf­ara og fleiri heil­brigð­is­stéttir hafa enn ekki komið fram og áhuga­leysi heil­brigð­is­ráð­herra virð­ist vera algjört. Til að mynda gleymdi hann í byrjun þessa mán­aðar að fram­lengja þá und­an­þágu sem not­ast hefur verið við meðan samn­ingar eru lausir. 

Það er öllum ljóst að Ísland er hætt að virka eins og við eigum skilið að það virki. Verð­bólga er í hæstu hæðum og aðal­lega er keyrð áfram af hús­næð­is­skorti. Kaldur vetur kjara­við­ræðna er framundan og rík­is­stjórnin getur ekki einu sinni komið sér saman um það hvernig skattaum­hverfi hún vill. Það er því ljóst að rík­is­stjórn þriggja íhalds­flokka, sem geta ekki komið sér saman um neitt nema hver eigi að sitja hvar við rík­is­stjórn­ar­borðið, er ekki starfi sínu vaxin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ