Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Brynjar neitar að upplýsa um leynifund sinn með saksóknara Namibíu: „Shit, hvað þú ert lame“

Mynd/samsett
Mynd/sam­sett

Hörku­deilur hafa staðið á á milli lögmannsins Sveins Andra Sveins­sonar og Brynjars Níels­sonar, aðstoðar­manns dómsmála­ráðherra, vegna fundar sem Brynjar átti með saksóknara Namíbíu í dómsmála­ráðuneytinu. Sveinn Andri hefur krafið Brynjar skýringa á því á Facebook hvert hafi verið fundar­efnið og hvort rætt hafi verið um málefni Samherja­manna sem sæta lögsókn fyrir meintar mútur í Namibíu. Brynjar segir fundinn hafa verið einkafund. Saksókn­arinn hafi verið í einka­erindum.

„En af hverju er pólitískur aðstoðar­maður að funda með fulltrúum ákæru­valds frá Namibíu sem eru í embættis­erindum á Íslandi?“ spyr Sveinn Andri á Facebook-síðu Brynjars.

Brynjar fullyrti þá að saksókn­arinn og hans fólk hafi verið á Íslandi í sumar­leyfi en dúkkað upp í ráðuneytinu. HAnn neitar að upplýsa um fundar­efnið en segist hitta hina og þessa án þess að um sé að ræða embættis­erindi.

„Sveinn A Sveinsson við getum orðað það þannig. Virkaði á mig eins og þau væru í sumarfríi og vildu heilsa upp á. Svona svipað og þegar ég og ráðherrann heilsum upp á Ögmund Jónasson vin okkar Það er ekki í opinberum erinda­gjörðum,“ svaraði Brynjar.

Ásökun um lygar

Sveinn Andri sótti fast að Brynjari um efni fundarins og tilurð en fékk ekki efnisleg svör.

„Brynjar Níelsson ég þarf að bera þetta undir vini mína stjórnarraðinu; þegar embættis­menn óska eftir fundi í ráðuneytinu og hitta þar embættis­menn, er ekki um að ræða embættis­erindi heldur einka­erindi. Geggjað stöff“.

Brynjar varði sig með því að Namibíu­mennirnir hefðu einfaldega bankað upp á í ráðuneytinu án þess að vita hvern þeir myndu hitta fyrir.

„Sveinn A Sveinsson embættis­erindi gerast ekki þannig að bankað ér upp á og enginn veit að þú ert á staðnum,“ skrifar Brynjar og var umsvifa­laust krafinn frekari skýringa á því og sakaður um lygar í leiðinni.

„Brynjar Níelsson þannig að þegar forstjóri Landhelgis­gæslunnar óskar eftir fundi strax með ráðherra vegna einhvers sem ekki má bíða, er hann þá í einka­erindum í ráðuneytinu? Þú festist æ meira í eigin þvættingsvef,“ skrifar Sveinn Andri.

Málið verður sífellt dular­fyllra eftir því sem líður á deiluna. Brynjar útskýrir þá fundinn með því að sendi­mennirnir kunni að hafa verið bæði í einka­erindum og opinberum.

„… Hann getur bæði verið í einka­erindum og opinberum. Eins og ég sagði áðan þá var þetta fólk ekki í heimsókn í opinberum erinda­gjörðum og þú mátt kalla þetta hvað sem þú vilt. Ég kalla þetta heimsókn,“ skrifar Brynjar aðstoðar­maður.

Deilan heldur áfram og færist í aukana.

„Brynjar Níelsson reyndu þetta ekki. Embættis­maður sem mætir á fund í ráðuneyti og er ekki einka­erindum er í embættis­erindum. Punktur. Skiptir engu máli þó að fundurinn hafi ekki verið á dagskrá. Saksóknari Namibíu hefur augljós­lega ekki verið í einka­erindum á fundi með þér sem stað­gengli ráðherra og öðrum embættis­mönnum“.

Ásakanir um lygar og rang­færslur gengu síðan á víxl.

„Það er enginn að skrökva þótt menn líti mismun­andi à hlutina. Ef þú hefðir setið þennan fund hefðir þú tæplega litið á að þetta fólk væri í embættis­erindum“.

Undir miðnætti í gærtkvöld stóð deilan enn og var komin út í ásakanir á báða bóga.

„Sveinn A Sveinsson þú ert alltaf með sömu frasana. Það hefur aldrei nokkur maður tekið mark á þér þótt við förum langt aftur tímann,“ skrifar Brynjar.Sveinn Andri lét Brynjar ekkert eiga inni hjá sér í deilunni og brá fyrir sig enskri tungu til að árétta sín mál.„Shit hvað þú ert lame. Reynir endalaust að snúa þig út úr eigin lygi. Saksóknari sem mætir á fundi ráðuneytinu til að ræða Samherjamalið er augljós­lega í embættis­erindum en ekki einka,# skrifar hann.Enn eru lesendur engu nær um það hvaða erindi aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra og embættis­menn ráðuneytisins áttu við saksóknara Namibíu og meðreiðar­fólk hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið