MannlífiðBragðgóð baunabuff7. janúar 2019 Baunabuff eru hollur og góður matur sem er t.d. gott að eiga í frysti og grípa til þegar lítill tími er til stefnu. Baunir hafa hátt prótínhlutfall og eru stútfullar af næringarefnum og trefjum. Þær eru ódýr matur og því vel til þess fallnar að drýgja t.d. pottrétti og súpur. Niðursoðnar baunir eru þægilegur kostur þegar tíminn er naumur en það er miklu ódýrara að leggja þurrkaðar baunir í bleyti, sjóða þær og skipta þeim niður í hæfilega skammta og frysta. Þannig er fljótlegt að grípa til þeirra þegar á þarf að halda. Linsubaunir þarf ekki að leggja í bleyti, þær eru því einskonar skyndibaunir sem er mjög hentugt að nota með litlum fyrirvara.
MannlífiðLjúffengar sósur sem allir þurfa að kunna að búa til20. desember 2018 Sósur spila stórt hlutverk þegar á að slá í gegn með steikinni. Hér höfum við tvær frábærar uppskriftir að ljúffengum sósum og má segja að þetta séu þær sósur sem allir ættu að eiga uppskrift að.
MannlífiðSteik fyrir sælkera16. desember 2018 Jólin eru sá tími sem fólk er hvað vanafastast með sinn mat en alltaf er gaman að reyna að koma á óvart með einhverjum litlum nýjungum, þarf ekki að vera mikið; ný sósa, nýr kryddhjúpur á kjötið eða nýjar kartöflur. Um að gera er að festast ekki alltaf í því sama. Hér er jólasteikin færð í nýjan búning.
MannlífiðKryddaður kakóbolli13. desember 2018 Eitt af því sem margir tengja við jólahátíðina er heitt súkkulaði. Þá er gaman að bjóða upp á kakó með ekta súkkulaði og þeyttum rjóma. Hér er uppskrift að krydduðu kakói fyrir þá sem vilja prófa slíkt og nokkrar tillögur að annars konar bragðefni.
MannlífiðSjúkleg súkkulaðikaka með lakkríssírópi12. desember 2018 Íslendingar eru margir sólgnir í lakkrís og því vinsælt að blanda honum saman við ýmislegt góðgæti eins og súkkulaði. Hér er yndisleg kaka fyrir þá sem elska lakkrís og súkkulaði.
MannlífiðMarenstoppar með heslihnetum og súkkulaði5. desember 2018 Meðfylgjandi er uppskrift að gómsætum marenstoppum með heslihnetum og súkkulaði. Er ekki tilvalið að baka þessa fyrir jólin?
MannlífiðKlassískir og hátíðlegir forréttir26. nóvember 2018 Hátíðlegt er að bjóða upp á forrétti áður en jólasteikin er borin á borðið. Hér höfum við uppskriftir að þremur klassískum forréttum úr tilraunaeldhúsi Gestgjafans.
MannlífiðVegan-kaka í glæsilegu kökublaði Vikunnar25. nóvember 2018 Kökublað Vikunnar sem margir bíða spenntir eftir ár hvert er komið í verslanir. Sigríður Björk Bragadóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Salt eldhúss, er ein þeirra sem deilir uppskrift í blaðinu en hún er að eigin sögn forfallin smákökubakari. Hér bakar hún ljúffenga vegan-köku.
MannlífiðSmákökur sem bráðna í munni21. nóvember 2018 Jólin verða seint fullkomnuð ef ekki eru smákökur í húsinu, bökunarlyktin ein og sér er til þess fallin að koma flestum í jólaskap í myrkasta skammdeginu. Meðfylgjandi er uppskrift að gómsætum Alfajores-smákökum sem bráðna í munni.
MannlífiðHaustlegir pottréttir18. nóvember 2018 Pottréttir eru þægilegur og góður matur. Ekki missa kjarkinn þótt hráefnislistinn í uppskriftinni sé stundum langur, eldunin er yfirleitt einföld og oft er bara notaður einn pottur. Það má líka gera stóra skammta og geyma til næsta dags því pottréttir eru jafnvel betri daginn eftir. Gott er að hafa í huga að því lengur sem pottréttir fá að malla við vægan hita, því betri verða þeir.
MannlífiðSkonsur sem gleðja11. nóvember 2018 Breskar skonsur (scones) er fljótlegt að útbúa og gaman að baka. Það er eitthvað svo notalegt við nýbakaðar skonsur og tekur innan við 20 mínútur að skella í einföldustu gerð. Hægt er að leika sér endalaust með uppskriftirnar og bæta við því sem hugurinn girnist, t.d. súkkulaði, ávöxtum og hnetum.
MannlífiðNautahakk – þægilegt og alltaf gott4. nóvember 2018 Nautahakk er þægilegt hráefni að grípa til í miðri viku en einnig er hægt að nota það í sparilega rétti. Hér eru frábærar og einfaldar uppskriftir úr smiðju Gestgjafans.