InnlentVerið að rannsaka Samherja í þremur löndum18. nóvember 2019 Frá því að ljósi var varpað á athæfi Samherja í Namibíu í umfjöllun Stundarinnar og Kveiks hefur ansi margt gerst. Greint hefur verið frá því að spillingarlögreglan í Namibíu, og eftir atvikum önnur þarlend yfirvöld, hafi haft fyrirtækið og helstu stjórnendur þess til rannsóknar um nokkurt skeið. Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi verkefnastjóri Samherja í Namibíu, hefur stöðu uppljóstrara þar samkvæmt lögum...
InnlentStofnun dótturfélaga nauðsynleg til að hleypa fjárfestum að18. nóvember 2019 Stjórn Isavia samþykkti fyrir helgi að stofna sérstök dótturfélög utan um ólíka starfsemi. Verður þá samkeppnisrekstur á Keflavíkurflugvelli aðskilinn frá rekstri innanlandsflugvalla og flugleiðsögukerfi á Norður-Atlantshafi. Fríhöfnin verður áfram rekin í sömu mynd.
HeimurSamherjamálið: Bankareikningar mútuþega í Namibíu frystir18. nóvember 2019 Bankareikningar tveggja svokallaðra hákarla í Naibíu hafa verið frystir vegna rannsóknar á meintri mútuþægni þeirra í Samherjamálinu.
InnlentBókin „Ekkert að fela“ um Samherjamálið kemur út í dag18. nóvember 2019 Bókin Ekkert að fela – Á slóð Samherja í Afríku eftir Aðalstein Kjartansson, Helga Seljan og Stefán Aðalstein Drengsson kemur út í dag á vegum Vöku Helgafells.
InnlentRannsókn fjárfestingarleiðarinnar gæti náð yfir Samherja17. nóvember 2019 Í vikunni var greint frá því að þrír stjórnmálaflokkar hefðu lagt fram þingsályktunartillögu um að skipuð verði sérstök þriggja manna rannsóknarnefnd Alþingis sem á að rannsaka hina svokölluðu fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Á meðal annarra sem nýttu sér fjárfestingarleiðina var félag í eigu Samherja.
InnlentBilun í netþjónustu Nova15. nóvember 2019 Bilun veldur því að netþjónusta Nova liggur niðri. Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur netið legið niðri í um 30 mínútur. Mikil álag er á þjónustuveri Nova en samkvæmt símsvara Nova er verið að vinna hörðum höndum að viðgerð.
InnlentGunnar Bragi gagnrýnir stríðsfyrirsagnir fjölmiðla: „Athygliskeppnin er eins og aurskriða sem engu eirir“15. nóvember 2019 Gunnar Bragi Sveinsson, varaformaður Miðflokksins, segist hugsa til starfsmanna Samherja sem horfi nú á stríðsfyrirsagnir um fyrirtækið og stjórnendur þess í fjölmiðlum. Hann gagnrýnir fjölmiðla og segir það galið að ætla að styrkja þá með ríkisfé.
Innlent„Þessi frétt er algjörlega röng“15. nóvember 2019 Í tilkynningu frá Síldarvinnslunni hf segir að fréttir um að framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hafði beðið Samherja um ráð til að blekkja út veiðiheinildir séu byggðar á misskilningi.
InnlentGagnrýnir að SA hafi ekki tjáð sig um Samherjamálið: „Munur á að græða peninga og vera gráðugur“15. nóvember 2019 Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og fyrrverandi varaformaður Samtaka atvinnulífsins (SA) segir að Samherjamálið láti viðskiptalífið í heild sinni líta illa út. Margrét vill að samtökin stígi fram fyrir hönd atvinnulífsins og lýsi því yfir að mál Samherja sé með öllu óásættanlegt og að svona starfi ekki alvöru fyrirtæki. Margrét var í viðtali í Morgunútvarpinu í morgun og Kjarninn fjallaði einnig...
InnlentBÍ stefnir Árvakri fyrir félagsdóm15. nóvember 2019 Blaðamannafélag Íslands hefur stefnt Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins fyrir félagsdóm vegna verkfallsbrota sem framin voru síðasta föstudag þegar verkfallsaðgerðir BÍ stóðu yfir.
InnlentSamherji opinberaður15. nóvember 2019 Sjávarútvegsrisinn Samherji er eitt stærsta og áhrifamesta fyrirtæki á Íslandi. Fyrirtækið teygir anga sína víða og stjórnendur þess hafa ekki farið leynt með vilja sinn til að hafa mikil áhrif í samfélaginu sem þeir búa í. Samherji hefur nú verið opinberað fyrir að hafa greitt mútur til að komast yfir kvóta í Namibíu og stundað stórfellda skattasniðgöngu til að hámarka...
InnlentGunnþór bað Samherjamenn um ráð til að blekkja Grænlendinga: „Reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum“15. nóvember 2019 „Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinir okkar í Grænlandi, Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjárfestingum, veiðum, vinnslu og hafnarmannvirkjum ef menn myndu vera setja upp fiskimjöls og uppsjávarverksmiðju í Ammasalik austurströnd Grænlands.“