Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þessi frétt er algjörlega röng“

Í til­kynn­ingu frá Síld­ar­vinnsl­unni hf segir að fréttir um að fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar hafði beðið Samherja um ráð til að blekkja út veiði­heinildir séu byggðar á mis­skiln­ingi.

„Þessi frétt er algjörlega röng“
Myndir /EPA|epa07399016 A model pres­ents a creation from the Fall/Winter 2019/20 Women’s collection by Italian designer Maria Grazia Chiuri for Dior fas­hion house during the Paris Fashion Week

Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað, óskaði eftir leið­bein­ingum frá stjórn­endum Samherja varð­andi það hvernig blekkja mætti Græn­lend­inga til að kom­ast yfir veiði­heim­ildir og vel­vild heima­manna. Frétta­blaðið segir frá þessu og vísar í tölvu­póst frá Gunnþóri til til Aðal­steins Helga­sonar, Jóhann­esar Stef­áns­sonar og ann­ars starfs­manns Samherja.

Síld­ar­vinnslan hefur nú sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem segir að um vill­andi og rangan frétta­flutn­ing sé að ræða.

„Þessi frétt er algjör­lega röng og í reynd­inni merki­legt hvernig blaða­maður getur lesið þetta út úr þeim tölvu­pósti sem vitnað er til,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni.

Þar segir einnig að tölvu­póst­ur­inn hafi ein­fald­lega snú­ist um að fá ráð hvað upp­bygg­ingu og rekstur vinnslu­fyr­ir­tækja varðar en að sam­skiptin hafi verið slitin úr sam­hengi.

Til­kynn­ing­una má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Í morgun birt­ist frétt um að Gunnþór Ingvason fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar hefði óskað eftir leið­bein­ingum frá Samherja hinn 30. apríl árið 2014 varð­andi það hvernig blekkja mætti Græn­lend­inga til að kom­ast yfir veiði­heim­ildir og kvóta. Þessi frétt er algjör­lega röng og í reynd­inni merki­legt hvernig blaða­maður getur lesið þetta út úr þeim tölvu­pósti sem vitnað er til.

Síld­ar­vinnslan hf. hefur átt í far­sælu sam­starfi við Græn­lend­inga frá árinu 2003 við rekstur útgerð­ar­fyr­ir­tækis. Árið 2012 festi stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Græn­lands, Polar Seafood, kaup á meiri­hlut­anum í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu sem þá fékk nafnið Polar Pelagic, en Síld­ar­vinnslan á þriðj­ungs hlut í því. Stjórn Polar Seafood hefur alla tíð sinnt öllum sam­skiptum fyr­ir­tæk­is­ins við græn­lensk stjórn­völd. Stjórn­ar­for­maður Polar Seafood er Henrik Leth en hann hefur lengi verið einn af helstu for­ystu­mönnum græn­lensks sjáv­ar­út­vegs.

Árið 2014 hafði Henrik Leth sam­band við Gunnþór Ingvason og tjáði honum að á Græn­landi væri í umræð­unni að ein­hverjir áform­uðu að koma upp fiski­mjöls- og upp­sjáv­ar­vinnslu í Amma­salik á aust­ur­strönd lands­ins.  Taldi Henrik þessi áform mjög óraun­hæf og áleit að þau væru sett fram í þeim til­gangi að ná kvóta hjá græn­lenskum stjórn­völdum. Til þess að fá nán­ari upp­lýs­ingar um tækni­leg mál­efni og kostnað við upp­bygg­ingu eins og þessa leit­aði hann til Gunnþórs Ingva­sonar. Gunnþór vissi að Samherji hefði nýlega látið gera áætl­anir um slíka upp­bygg­ingu í Marokkó og ein­fald­ast væri að skoða þær. Sendi hann Sam­herj­a­mönnum tölvu­póst þar sem hann bað um að fá þessar upp­lýs­ingar þó þær ættu við um upp­bygg­ingu í Afríku. Þar með var mál­inu lokið að hans hálfu.

Henrik Leth segir eft­ir­far­andi um þetta: „Ég leit­aði til Gunnþórs um upp­lýs­ingar ein­fald­lega vegna þess að Síld­ar­vinnslan hefur mikla reynslu og þekk­ingu á upp­bygg­ingu og rekstri vinnslu­fyr­ir­tækja. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að hægt væri að búa til svona nei­kvæða frétt um greið­vikni hans í minn garð. Þetta er sorg­legt dæmi um óvönduð vinnu­brögð fjöl­miðla.“ 

Af fram­an­sögðu má ljóst vera að orð Gunnþórs Ingva­sonar í tölvu­póst­inum voru slitin úr sam­hengi í umræddri frétt. Síld­ar­vinnslan harmar þann vill­andi og meið­andi mál­flutn­ing sem birt­ist í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ