MannlífiðKlikkað góðar kúrbítsmúffur10. maí 2020 Múffur eru handhægar og þægilegar í nestisboxið og eru einstaklega fljótlegar og einfaldar í bakstri, tekur varla meira en 30-40 mínútur. Það er því tilvalið að skella í þær að morgni ferðadags og hafa með sér brakandi ferskar eða eiga frystar og láta þær þiðna í bakpokanum.
MannlífiðMúffur eru fullkomið nesti9. maí 2020 Múffur eru handhægar og þægilegar í nestisboxið og eru einstaklega fljótlegar og einfaldar í bakstri, tekur varla meira en 30-40 mínútur. Það er því tilvalið að skella í þær að morgni ferðadags og hafa með sér brakandi ferskar eða eiga frystar og láta þær þiðna í bakpokanum.
MannlífiðGrill og götumatur í nýjasta Gestgjafanum6. maí 2020 Gestgjafinn er kominn í sumarskap og nýjasta blaðið tileinkað grilli og götumat. Safaríkar steikur, glóðvolgt grænmeti og sjávarréttaspjót eru meðal þess við grillum í blaðinu. Síðan tökum við bragðlaukana í ferðalag með geggjuðum götumat frá Suður-Ameríku.
MannlífiðBlómkálssteikur – fljótlegur sælkeragrænmetisréttur6. maí 2020 Þetta góða hráefni býður upp á ótal möguleika í eldamennsku og er að auki hagkvæmt fyrir budduna. Blómkálssteikur er frábær létt aðalmáltíð eða dýrindis meðlæti sem töfra má fram með lítilli fyrirhöfn.
MannlífiðGeggjuð sítrónuformkaka með bláberjum sem allir elska með kaffinu og í lautarferðina5. maí 2020 Fátt er betra en heimalöguð formkaka með kaffinu. Þær hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina og þótt þær séu frábærar á kaffihlaðborð eru þær líka sniðugar til að taka með í ferðalagið. Gott er þá að pakka þeim vel inn í smjörpappír og binda fyrir en formköukr haldast mjúkar og góðar við stofuhita í nokkra daga. Í þessa köku má auðveldlega skipta út bláberjunum fyrir önnur ber, hindber passa sérstaklega vel í uppskriftina en einnig má nota brómber.
MannlífiðGeggjaður nauta-fillet hamborgarasamloka sem gælir við bragðlaukana3. maí 2020 Hamborgarar eru vinsælir á grillið og þótt úti sé kannski ekki mjög heitt þá er alveg kominn tími til að grilla eitthvað gott. Hér er afar sniðug og svolítið örðuvísi uppskrift að hamborgara. Í stað hefðbundins nautahakks er notað nauta-fillet sem skorið er í þunnar sneiðar og í raun má segja að hamborgarinn sé meira svona hamborgara samloka.
Mannlífið„Almennt fæ ég mér alltaf það skrítnasta á hverjum matseðli“3. maí 2020 Alma Dagbjört Möller landlæknir hefur sannarlega verið í sviðsljósinu undanfarnar vikur og framtak þríeykisins í framlínunni vakið athygli á heimsvísu. Alma er fyrsta konan til að gegna embætti landlæknis og fyrra var hún í léttu viðtali í Gestgjafanum um matarminningar og -venjur en hún hefur meðal annars smakkað skordýr, naggrís og krókódíl sem hún segir að sé afbragðsmatur.
MannlífiðÆðislegur sinnepskjúklingur með beikoni29. apríl 2020 Kjúklingur og beikon er hráefni sem margir elska og þegar sinnepi er bætt við þá verður blandan enn betri. Hér er afar einfaldur og sniðugur réttur sem gælir við bragðlaukana. Gott er að bera þennan rétt fram t.d. með kartöflumús eða kúskús og einnig er gott að hafa salat með.
MannlífiðÍ höfuðið á blautasta bletti á Íslandi28. apríl 2020 Frumkvöðlastarfsemi heldur áfram sem aldrei fyrr þrátt fyrir ástandið og eigendur Smiðjunnar brugghúss í Vík í Mýrdal hafa þurft að bregðast við ástandinu vegna heimfaraldursins eins og aðrir. Hingað til hafa þau aðeins bruggað bjór sem seldur hefur verið á krana en kynna nú til leiks fjóra nýja dósabjóra. Þau vonast eftir breytingu á lögum til að mega selja þessa nýju afurð út úr húsi hjá sér.
MannlífiðIndverskur kjúklingur á naan-brauði – Frábær og einfaldur réttur á grillið í góðviðrinu28. apríl 2020 Ef ekki er tími til að draga fram grillið í dag þá hvenær? Hér er sniðugur og einfaldur réttur sem hentar vel að henda á grillið með litlum fyrir vara og tilvalið er að borða út á palli, kannski með ullarteppið vafið um sig. Rétturinn er í einskonar götumatarstíl þar sem hægt er að borða hann með höndunum. Með þessum rétti passar vel að drekka góðan bjór eða bara engiferöl. Fyrir þá sem hafa aðeins meiri tíma má líka skella í lítinn fljótlegan eftirrétt eins þessa tiramísú sem tekur bara 15 mínútur að laga og þá er máltíðin fullkomnuð.
MannlífiðGeggjaður lax með rjómalagaðri paprikusósu – tekur bara korter að elda27. apríl 2020 Margir elda fiskrétti á mánududögum og er það ýsan sem oftast verður fyrir valinu en gaman er að breyta til og hér er ein alveg dúndurgóð uppskrift sem sló í gegn í tilraunaeldhúsi Gestgjafans, því hún er ekki bara hrikalega bragðgóð heldur líka æðislega einföld og fljótleg. Gott er að bera fram kartöflu- eða blómkálsmús með þessu rétti ásamt fersku salati.
MannlífiðMeinhollur linsubaunaréttur með eggi26. apríl 2020 Linsubaunir eru hráefni sem býður upp á marga möguleika ásamt því að vera hollar og seðjandi. Hér kemur einn meinhollur og skemmtilegur réttur þar sem linsubaunir eru í aðalhlutverki.