Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Kristíana þurfti að breyta draumaferðinni sökum alvarlegra veikinda: „Svarið var þvert nei“

Kristíana segir farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti við Sumarferðir. Myndin er samsett
Kristí­ana segir farir sínar ekki sléttar eftir við­skipti við Sum­ar­ferðir. Myndin er sam­sett

„Jæja, ég var bjart­sýn í haust eftir tékk í októ­ber,“ skrifar Kristí­ana Bald­urs­dóttir á Facebook og deilir því með fylgj­endum sínum að krabba­meinið sem hún hefur barist við virð­ist hafa ætlað að hafa sig hægan. Kristí­ana lýsir förum sínum ekki sléttum eftir sam­skipti við ferða­fé­lagið Sum­ar­ferðir. Þá er hún óánægð með svör frá félag­inu.

„Svo bjart­sýn að ég bók­aði ferð til Balí í mars með Sum­ar­ferðum, ásamt vin­konu minni.“

Kristí­ana segir hins vegar að skoðun sem hún fór í síð­asta mán­uði hafi hins vegar leitt í ljós að þyrfti taf­ar­laust í lyfja­með­ferð. „Svo Balí verður að bíða betri tíma.“

Til að breyta ferð­inni hringdi hún í Sum­ar­ferðir og spurði hvort hægt væri að gera nafna­breyt­ingu á bók­un­inni ef vin­kona hennar fyndi annan ferða­fé­laga.

„Svarið var þvert nei.“

„Nú, þá datt okkur í hug hvort við gætum ekki notað stað­fest­ing­ar­gjaldið upp í aðra ferð þegar ég væri búin í með­ferð. Aftur var hringt í Sum­ar­ferðir og aftur var svarið þvert NEI því sam­kvæmt skil­málum væri stað­fest­ing­ar­gjaldið óaft­ur­kræft.“

Hún útskýrir að hún og vin­kona hennar hafi verið þess full­með­vit­aðar og að þær hafi ekki verið að fal­ast eftir end­ur­greiðslu, heldur að biðla til félags­ins að fá að geyma pen­ing­inn hjá þeim og nýta síðar upp í aðra ferð.

„Ég er nú einu sinni naut og þrjósk í sam­ræmi við það, svo ég sendi póst á for­stjór­ann,“ sem jafn­framt er yfir Ferða­skrif­stofu Íslands, Sum­ar­ferða og Úrvali- Útsýn.

„Ég útskýrði vand­lega af hverju við kæm­umst ekki og hvað við vorum að biðja um,“ skrifar hún og segir að erindið hafi verið borið fram á kurt­eis­legan hátt.

„Í all­nokkra daga kom ekk­ert svar en þegar ég ítrek­aði kom svar frá Þjón­ustu­deild, þar sem sagði: „Eins og áður hefur komið fram og kemur skýrt fram í skil­málum hjá okkur, þá er ekki hægt að fá stað­fest­ing­ar­gjald end­ur­greitt né nota upp í aðra ferð.““

Krístína bendir á að í skil­mál­unum félags­ins komi alls ekki fram að ekki sé hægt að nota stað­fest­ing­ar­gjaldið upp í aðra ferð heldur að þar segi:

„Stað­fest­ing­ar­gjald greið­ist við bókun og er óaft­ur­kræft ef meira en 5 dagar eru liðnir frá bókun.“

„Sem sagt alls ekk­ert um að ekki sé hægt að nota það upp í aðra ferð,“ bætir hún við og segir að sér sé hulin ráð­gáta af hverju þetta er ekki hægt. Hún varpar fram spurn­ing­unni hvaða við­skipta­hags­muna Sum­ar­ferðir hafa af því að meina þeim þetta?

„Í mínum huga er þetta bara ólið­leg­heit og léleg þjón­usta!“

Ósátt og með fleiri spurn­ingar en svör segir hún: „Það er alla vega krist­al­tært að ég mun ekki skipta við þessa aðila framar. Þau eru engan veg­inn hjálp­leg eða þjón­ustu­lunduð þegar eitt­hvað kemur upp á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum