Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Páll Óskar giftist ástinni sinni: „Þau hafa aldrei séð mig svona hamingjusaman í lífinu“

Páll Óskar og Edgar Antonio Lucena Angarita eru nú giftir –
Páll Óskar og Edgar Antonio Lucena Angarita eru nú giftir – Mynd: Facebook

Tón­lista­mað­ur­inn Páll Óskar er búinn að gifta sig en hann greinir frá þessu á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.

„Við turtil­dúf­urnar giftum okkur heima í stofu kl. 10.00 í gær­morgun 27. mars. Besti dagur lífs okkar, fullur af ást og skil­yrð­is­lausum kær­leika,“ skrif­aði tón­list­ar­mað­ur­inn. „Takk Bryn­hildur vin­kona og athafna­stjóri hjá Siðmennt fyrir að massa þetta með okkur. Við munum end­ur­taka þetta síðar með öllum sem við þekkjum í risa­brúð­kaups­veislu. Takk, Edgar Antonio Lucena Angarita, ástin í lífi mínu og núna mað­ur­inn minn. Allir sem þekkja mig segja það sama: þau hafa aldrei séð mig svona ham­ingju­saman í líf­inu. Ég ætla að vera besti eig­in­maður í heimi, og ákkurat þegar þú heldur að ég geti ekki orðið betri fyrir þig, þá mun ég halda áfram að koma þér á óvart, bæta mig meira og verða bara betri. Cada día es un Aventura! Ég elska þig. Þinn, Palli“

Páll hefur lengi verið einn af þekkt­ustu og fær­ustu tón­list­ar­mönnum Íslands og hefur kennt sig við ást­ina og bjó hann til per­són­una Dr. Love á sínum tíma við frá­bærar und­ir­tektir lands­manna. Þá hefur hann gefið út fjölda laga sem tengj­ast ást­inni og þekkja flestir lagið Allt fyrir ást­ina en þeir Edgar hafa þekkst síðan í jan­úar 2023.

Páll skellti sér fyrir stuttu í veit­inga­húsa­rekstur en hann opn­aði stað­inn Pizza 107 fyrir stuttu með Valgeiri Gunn­laugs­syni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Myndbönd af meintu móðurskipi náðust sama dag og flugumferð stöðvaðist í Bandaríkjunum.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Fimm sóttu um.
Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns