Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Steinhissa á ásökunum um óheilindi

Uppnám ríkir í stjórn­málum í Hafn­ar­firði

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Valdimar Víðisson, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar Mynd: Hafnarfjarðarbær.

Óvissa ríkir nú um myndun nýs meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar eftir að við­ræður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins runnu út í sand­inn í dag. Harðar ásak­anir hafa fallið milli flokka um trún­að­ar­brest og svik í tengslum við meiri­hluta­við­ræður.

Valdimar Víðisson, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafn­ar­firði, seg­ist vera miður sín yfir þeim ásök­unum sem fram hafa komið. „Það kemur mjög á óvart að vera sak­aður um óheil­indi,“ sagði hann í sam­tali við RÚV.

Fyrr í dag greindu bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá því að þeir hefðu slitið við­ræðum við Framsókn um áfram­hald­andi meiri­hluta­sam­starf. Sögðu þeir ástæð­una vera alvar­legan trún­að­ar­brest og full­yrtu að Framsókn hefði á sama tíma hand­salað sam­komu­lag um meiri­hluta­sam­starf við aðra flokka.

Einnig hafa komið fram gagn­rýnar raddir frá Sam­fylk­ing­unni. Hildur Rós Guð­bjarg­ar­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði flokknum ekki heldur hugn­ast sam­starf við Framsókn vegna meintra svika. Viðreisn hefur einnig sagt svip­aða hluti

Valdimar hafnar því þó að um óheil­indi hafi verið að ræða og segir eðli­legt að þreif­ingar fari fram milli flokka í kjöl­far kosn­inga. Hann segir að eftir erf­iðan fund með full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins á mánu­dags­kvöld hafi hann til­kynnt odd­vita flokks­ins að sam­talið næði ekki lengra að svo stöddu.

Þrátt fyrir átökin seg­ist Valdimar ekki úti­loka sam­starf við neinn flokk á þessu stigi máls­ins. „Það er fullt traust áfram hjá okkur til allra aðila,“ sagði hann.

Óljóst er hvernig meiri­hluta­myndun í Hafn­ar­firði þró­ast næstu daga, en staðan bendir til þess að við­ræður milli flokka geti tekið nýja stefnu eftir vend­ingar dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Pólitík

Pólitík

Vill láta lottó ráða hverjir sitja á Alþingi

Björn Leví Gunnarsson vill að kosningakerfið endurspegli betur að þingmenn séu kjörnir sem einstaklingar en ekki fulltrúar flokka.
  • Pólitík

    Ingvar yfir­gefur Viðreisn

  • Pólitík

    „Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

  • Pólitík

    Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata