Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Þórólfur tekur upp hanskann fyrir byssumanninn

„Þetta atvik er ein­fald­lega fárán­legt og vekur margar spurn­ingar“

Grindavík
Grinda­vík Byssu­mað­ur­inn segir alsak­laus. Mynd: Shutterstock

Þórólfur Júlían Dagsson tekur upp hansk­ann fyrir mann­inn sem hand­tek­inn var í gær þegar hann var sagður ógna björg­un­ar­sveit­ar­fólki sem var að aðstoða lög­regl­una við að rýma Grinda­vík.

Þórólfur, fyrr­ver­andi odd­viti Pírata í Reykja­nesbæ og stjórn­ar­maður í Stran­veiði­fé­lagi Íslands, skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann ver Her­mann Ólafs­son, Grind­vík­ing­ og fyrr­um for­stjóri út­gerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Stakka­vík­ur. Sér­sveitin hand­tók Hermann í gær þar sem hann var sagður hafa ógnað björg­un­ar­sveit­ar­mönnum með hagla­byssu. Sjálfur segir Hermann í við­tali við mbl.is að hann hafi hreint ekki ógnað neinum með byss­unni, heldur ein­ungis setið fyrir á ljós­mynd með byss­unni í gríni og að björg­un­ar­sveit­ar­fólkið hafi tekið vel í það. Lýsti hann gær­deg­inum sem þeim versta sem hann hafi lent í og ætlar hann að fara í skaða­bót­ar­mál gagn­vart „þessu liði“.

Þórólfur segir málið „ótrú­legt og óásætt­an­legt“ og að hann hafi aldrei upp­lifað Hermann sem ein­hvern sem myndi gera öðrum mein:

„Það sem stendur upp úr í dag er að sér­sveitin tók Herman, eða Hemma eins og hann er jafnan kall­aður, sem kenndur er við Stakka­vík, og skellti honum harka­lega niður í göt­una. Þetta er alveg ótrú­legt og óásætt­an­legt. Ég og Hemmi höfum vissu­lega átt okkar deilur um kvóta­kerfið, en aldrei hef ég upp­lifað að hann væri að fara að gera mér eða öðrum mein. Í dag tel ég Hemma góðan vin sem gott er að hitta og fá góð ráð hjá þegar á þarf að halda.“

Í seinni hluta færsl­unnar mærir Þórólfur Hermann sem hann segir mik­ils­virtan í Grinda­vík og hafi lagt mikið af mörgum til sam­fé­lags­ins. Segir hann það slá­andi að sér­sveitin telji nauð­syn­legt að koma svona fram við sjö­tugan mann.

„Hermann hefur verið mik­ils virtur í Grinda­vík þar sem hann byggði upp far­sælt fyr­ir­tæki sitt, Stakka­vík, frá grunni. Hann hefur lagt mikið af mörkum til sam­fé­lags­ins, skapað atvinnu og styrkt stöðu bæj­ar­ins sem mik­il­vægs sjáv­ar­út­vegs­staðar. Það er því enn meira slá­andi að sér­sveitin telji nauð­syn­legt að fara svona harka­lega fram gagn­vart 70 ára gömlum manni, sem alla tíð hefur verið þekktur fyrir að vera gæða blóð og traustur maður í sínu sam­fé­lagi. Þetta atvik er ein­fald­lega fárán­legt og vekur margar spurn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum