Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Fleki bjargaði Ólafi er hann féll í Grindavíkurhöfn: „Ég tommaði varla á móti veðrinu“

Mánu­dag­inn 8. jan­úar 1990 gekk skelfi­legt veður yfir Ísland en verst var ástandið í Vest­manna­eyjum og í Grinda­vík. Sjómaður á Reyni GK 47, varð fyrir því óláni að lenda í höfn­inni í Grinda­vík þegar Ægir læsti klóm sínum í hann er hann var á leið um borð og dró hann í sjó­inn.

Það varð sjó­mann­inum, honum Ólafi Ágústs­syni, til happs að drumbur flaut hjá honum sem hann náði að grípa í og skömmu seinna fleki, sem hann skeið upp á. Flaut hann með flek­anum um 200 metra og skall á hafn­ar­garð­inum hinum meg­inn. En þar með var þrautin ekki búin því Ólafur átti enn eftir að ganga heim í veð­ur­hamnum.

DV fjall­aði um málið dag­inn eftir en hér fyrir neðan má lesa um raunir Ólafs:

Ólafur Ágústs­son, sjó­maður í Grinda­vík: Ekki tími til að verða hræddur

– bjarg­að­ist á fleka eftir að hann lenti í sjónum

„Ég var á bryggj­unni, á leið um borð, þegar þetta gerð­ist. Það var tals­verður sjór á bryggj­unni, hann náði mér í miðja leggi. Áður en ég vissi af kom mik­ill sjór á bryggj­una, stór skafl, sem náði mér í axlir. Fyrr en varði var ég kom­inn i höfn­ina,“ sagði Ólafur Ágústs­son, sjó­maður í Grinda­vík. Ólafur varð fyrir því í nótt að lenda í höfn­inni í Grinda­vík. Enginn sjón­ar­vottur varð að þessu óhappi. Ólafur, sem er skip­verji á Reyni GK 47, var að mæta um borð til að aðstoða við að verja bát­inn fyrir sjó­gangi og vindum. „Eftir að ég kom í sjó­inn náði ég taki á drumb sem þar var og hékk á honum skamma stund. Síðan tókst mér að skríða upp á fleka sem var á floti. Á flek­anum flaut ég yfir höfn­ina, um 200 metra, og skall í garð­inn hinum megin. Lending var ekki erfið. Það var öllu verra að ganga á móti veðr­inu á heim­leið­inni. Ég var eðli­lega blautur og eins var mér kalt. Ég tomm­aði varla á móti veðr­inu.“ – Hvernig leið þér í sjónum. Varstu hræddur? „Þetta gerð­ist allt svo hratt að það var ekki tími til að hugsa um neitt nema bjarga sér. Það sá eng­inn það sem gerð­ist, veð­ur­ham­urinn var slíkur. Þegar flek­inn skall á garð­inn var lend­ingin ekki slæm. Þetta fór ágæt­lega,“ sagði Ólafur Ágústs­son. Ólafur er 54 ára gam­all, fæddur og upp­al­inn í Grinda­vík. Hann sagð­ist hafa verið 34 ár til sjós. „Ég hef aldrei lent í neinu fyrr en í nótt. Ætli ég fari ekki til læknis í dag og láti hlusta mig, ég hugsa það.“ Ólafur sagði að það væri mjög langt síðan annan eins sjó­gang hefði gert í Grinda­vík­ur­höfn. Hann sagði að vind­ur­inn og sjór­inn hefðu orðið til þess að bók­staf­lega allt hefði verið á öðrum end­anum í Grinda­vík. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

6
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum