Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Samtakamáttur þjóðar sannast í söfnun Rauða krossins: „Við þurftum tvívegis að renna yfir þetta“

Rauði kross­inn á Ísland hefur efnt til neyð­ar­söfn­unnar fyrir Grind­vík­inga vegna þeirra nátt­úru­ham­fara sem dunið hafa á sam­fé­lagið. Söfnunin var sett á í gær og sam­taka­máttur Íslend­inga lét ekki standa á sér. En betur má ef duga skal.

Aðspurður segir Gylfi Þór Þor­steins­son teym­is­stjóri fjár­öfl­unar- og kynn­ing­ar­sviðs Rauða kross­ins á Íslandi að söfn­unin sem hófst í gær hafi farið ótrú­lega vel af stað. „Við þurftum tví­vegis að renna yfir þetta í morgun þegar við mættum til vinnu. Ég hélt að það hafi verið gerð ein­hver mis­tök.“

Söfnunin er áfram­hald af þeirri söfnun sem Rauði kross­inn stóð fyrir í nóv­em­ber og des­em­ber síð­ast­liðnum. Aðspurður hversu miklu var safnað inn í þeirri lotu segir Gylfi að um 10 millj­ónir hafi safn­ast og að helm­ingur þess fjár­magns hafi þegar verið úthlutað til 160 ein­stak­linga, eða vegna 58 umsókna.

Hvernig virkar úthlut­unin og hvernig mun söfn­unin að nýt­ast Grind­vík­ingum?

„Óvænt útgjöld geta sett hinn almenna borg­ara á hlið­ina, en eru í marg­föld­un­ar­vexti hjá Grind­vík­ingum,“ svarar Gylfi Þór.

„Við erum með úthlut­un­ar­nefnd sem eru full­trúar frá félags­þjón­ust­unni í Grinda­vík, frá Kirkj­unni og Rauða kross­inum.“

Gylfi Þór útskýrir að miklu geti munað á lána­stöðu fólks, eig­in­legu verð­mati eigna og svo greiðslu frá trygg­inga­fé­lögum og/eða nátt­úru­ham­fara­sjóði. Eins eru ýmis­leg óvænt útgjöld sem Grind­vík­ingar þurfa að mæta sökum til dæmis eyði­legg­ingar á inn­búi eða hindr­unum í aðgengi eigna.

„Það er þarna sem við erum að reyna að koma til móts við fólk – ef við getum.“

Allar umsóknir fara í gegnum þjón­ustu­mið­stöð­ina í Toll­hús­inu. Úthlutn­ar­nefndin hitt­ist viku­lega og fer yfir umsókn­irnar.

Hafið þið hug­mynd um hversu miklu þarf að safna eða hver þörfin er?

„Það þarf að safna eins miklu og hugs­ast getur. Þetta er svo fljótt að fara,“ segir Gylfi.

Verk­lags­reglur og skil­yrði úthlut­anna má lesa hér.

Ekki hefur verið ákveð­inn sér­stakur tímara­mmi fyrir söfn­un­ina enda staðan á svæð­inu enn í algjörri óvissu.

Eru aðrar leiðir sem Íslend­ingar og áhuga­samir geta gert til að veita mál­efn­inu lið?

„Ef fólk getur útvegað hús­næði er um að gera að hafa sam­band við Þjón­ustu­mið­stöð­ina í Toll­hús­inu,“ segir Gylfi Þór en mikil þörf er á var­an­legu hús­næði fyrir Grind­vík­inga.

Styrktarleiðir

Hægt er að styrkja mál­efnið á heima­síðu Rauða kross­ins en einnig má styrkja mál­efnið með öðrum leiðum:

SMS: Senda HJALP í síma­núm­erið 1900 (2.900 kr.) (Síminn og Nova)
Hringja í 904-2500 til að styrkja um 2.500 kr.
Hringja í 904-5500 til að styrkja um 5.500 kr.
Aur: @raudikrossinn eða 1235704000
Kass: raudikross­inn eða 7783609
Söfn­un­ar­reikn­ingur Rauða kross­ins: 0342-26-12, kt. 530269-2649

IBAN: IS460342260000125302692649
SWIFT: ESJAISRE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum