Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Bergþór Ólason spurði nokk­urra spurn­inga Fékk grein­ar­góð svör Mynd: Víkingur

„Árið 2024 voru erlendir ríkisborgarar 42% fanga í fangelsum“

Þing­maður sendi dóms­mála­ráð­herra fyr­ir­spurn um erlenda rík­is­borg­ara

Þing­maður Mið­flokks­ins, Bergþór Ólason, sendi Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra fyr­ir­spurn um erlenda rík­is­borg­ara í fang­elsum á Íslandi.

Bergþóri hefur nú verið svarað.

Meðal þess sem kom fram í svörum dóms­mála­ráð­herra er að erlendir rík­is­borg­arar voru 42% allra er sættu fang­els­is­vist hér á landi í fyrra og alls hófu 218 erlendir rík­is­borg­arar afplánun refsi­dóms árið 2024.

Þá voru 208 erlendir rík­is­borg­arar færðir í gæslu­varð­hald, og 90 Íslend­ingar voru í gæslu­varð­haldi í fyrra.

Fyr­ir­spurnin hjá Bergþóri var í fjórum liðum og hér að neðan má sjá spurn­ing­arnar frá Bergþóri og svo svar við hverri þeirra.

Hversu margir erlendir rík­is­borg­arar afplán­uðu fang­els­is­dóm árið 2024 ann­ars vegar og 15. mars 2025 hins vegar?

Árið 2024 afplán­aði að með­al­tali 31 erlendur rík­is­borg­ari fang­els­is­refs­ingu á hverjum degi, en sam­tals hófu 218 erlendir rík­is­borg­arar afplánun eða gæslu­varð­hald í fang­elsi það ár. Hinn 15. mars 2025 voru 32 erlendir rík­is­borg­arar í afplánun í fang­els­inu.

Hversu margir erlendir rík­is­borg­arar sátu í gæslu­varð­haldi árið 2024 ann­ars vegar og 15. mars 2025 hins vegar?

Árið 2024 sátu að með­al­tali 28 erlendir rík­is­borg­arar í gæslu­varð­haldi á hverjum degi. Samtals hófu 208 erlendir rík­is­borg­arar gæslu­varð­hald það ár og af þeim voru 63 í gæslu­varð­haldi á grund­velli útlend­inga­laga. Hinn 15. mars 2025 sátu 37 erlendir rík­is­borg­arar í gæslu­varð­haldi í fang­elsi, þar af voru fjórir í gæslu­varð­haldi á grund­velli útlend­inga­laga.

Hvaða dag sátu flestir erlendir rík­is­borg­arar í gæslu­varð­haldi frá 1. jan­úar 2024 til 15. mars 2025 og hversu margir voru þeir þá?

Þessar upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir, en yfir allt árið voru 208 erlendir rík­is­borg­arar úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald sam­an­borið við 182 erlenda rík­is­borg­ara árið áður. Á sama tíma fjölg­aði úrskurðum einnig vegna íslenskra rík­is­borg­ara, en árið 2024 voru 90 íslenskir rík­is­borg­arar úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald sam­an­borið við 59 árið 2023.

Hvert var hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara af föngum árin 2024, 2019 og 2014?

Árið 2024 voru erlendir rík­is­borg­arar 42% fanga í fang­elsum, árið 2019 voru erlendir rík­is­borg­arar 21% og 14% árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu