Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Ósáttur við Kveik: „Ótrúlega slöpp vinnubrögð“

Borg­ar­fræð­ingur telur að umfjöllun um hávaða­mengun í nýjum íbúðum hafi verið ábóta­vant.

Umferðin í Reykjavík
Umferðin í Reykja­vík Líkt og bent er á í umræðum um bíl­lausan lífs­stíl eru mörg eldri dæmi um byggð nærri stofn­brautum. Mynd: Shutterstock

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur fjall­aði í gær­kvöldi um hvernig þétt­ing byggðar væri að fjölga íbúðum nærri stofn­brautum vega­kerf­is­ins. Þar kemur fram að Ólafur Hjálm­ars­son, verk­fræð­ingur með sér­hæf­ingu í hljóð­vist, „óskar engum þess að búa“ í nýjum íbúðum sem byggðar eru upp við Hring­braut í Hlíð­ar­enda­hverf­inu.

Björn Teitsson, borg­ar­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­maður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl, gagn­rýnir fram­setn­ingu Kveiks í þætt­inum.

„Þetta er virki­lega furðu­leg fram­setn­ing. Svo ekki sé meira sagt. Það er alveg skýrt hver er meng­unar- og skað­vald­ur­inn. Það er ljóst að frá því á 6. ára­tugi síð­ustu aldar hafa verið byggðar íbúðir nálægt stofn­brautum. Hávaðinn eykst, því fjöldi og þyngd bíla eykst. En nei. Bílar eru ekki vanda­mál. Fólk er vanda­mál. Við þurfum bara að flýja undan bílum, haga öllu okkar lífi eftir því hvar bílar aka um. Þetta er alveg sturlað. Eins og Will Ferrell í Zoolander, mér líður eins og ég sé að taka crazy pills,“ segir Björn.

Að mati Björns hefði verið rétt að beina sjónum að skorti á almenn­ings­sam­göngum. „Án djóks, mik­il­vægt að benda á þetta vanda­mál, eitt af mörgum mjög alvar­legum vanda­mál sem magn umferðar og fjöldi bíla veldur okkur í okkar lífi, mun meira en aðrar þjóðir glíma við - en þessi fram­setn­ing er alveg kol­rugluð. Takið á ríki og sveit­ar­fé­lögum fyrir að gera ekki nægi­lega vel við að tempra umferð með því að hraða upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna, en að við þurfum nú að færa byggð frekar en taka á grunn­vand­anum, jem­inn,“ segir hann og beinir spjótum að flug­vell­inum. „Það er mun meiri hávaði frá þessum bless­aða flug­velli í nýja Hlíð­ar­enda­hverf­inu. Það er samt ein­hvern veg­inn engin frétt.“

Hilmar Þór Björns­son arki­tekt þylur upp mót­væg­is­að­gerðir. „Banna nagla­dekk, minnka hrað­ann, fjölga raf­magn­bílum og hanna hús og deiliskipu­lag i sam­ræmi við hljóð­vist.“

Undir þetta tekur íbúi við Miklu­braut. „Ég get stað­fest að tvö­falt mis­þykkt gler, engin opn­an­leg fög að götu og loft­ræs­ing yfir þak í ónot­uðum skor­steini virkar vel á Miklu­braut 62,“ segir hann.

„Nagla­dekk og hraði eru risa­stórir áhrifa­valdar sem var ekki einu sinni minnst á. Ótrulega slöpp vinnu­brögð,“ segir Björn, sem er mennt­aður í borg­ar­fræðum frá Bauhaus-háskól­anum í Þýska­landi, fyrr­ver­andi frétta­maður RÚV og starfar hjá Skipu­lags­stofnun.

Umfjöllun Kveiks sneri að því að reglur um hljóð­vist í íbúðum kveði á um að hávaði við hús­vegg megi ekki vera meiri en 30 desí­bel, en að und­an­þágur leyfi nýbygg­ingar á hávaða­sömum svæðum þar sem önnur hliðin vísar að hljóð­látum hús­garði. Þannig búi 64 þús­und íbúar við hávaða og geti ekki opnað glugg­ann hávaða­laust. „Þetta er eins og ryksugan sé í gangi,“ segir Ólafur verk­fræð­ingur við Kveik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum