Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum þar sem tekin var niður vefsíða, Kidflix, en á henni var að finna barnaníðsefni en þetta kemur fram í tilkynningu frá henni.
„Aðgerðin náði til á fjórða tug landa, en fyrir henni fóru lögregluyfirvöld í Bæjaralandi í Þýskalandi með fulltingi Europol. Vegna þessa voru tveir menn handteknir á höfuðborgarsvæðinu, en ráðist var í húsleit í híbýlum þeirra beggja og lagt hald á búnað í þágu rannsóknarinnar.
Nálægt tvær milljónir notenda höfðu skráð sig inn á umrædda síðu undanfarin þrjú ár, en á henni var að finna um 72 þúsund myndbönd þegar lögreglan lét til skarar skríða og lokaði síðunni.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir