Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Óánægja með ákvörðun Bjarna Benediktssonar: „Bara þægur, hlýðinn kjölturakki“

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra.

Töluverð óánægja er með ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra, að frysta greiðslur til Flótta­manna­hjálpar Palest­ínu. Noregur er eitt Norð­ur­landa sem heldur áfram greiðslum þangað.

Bjarni Bene­dikts­son ákvað í gær að frysta greiðslum til Flótta­manna­hjálpar í Palest­ínu, og sagði það sam­ræm­ast aðgerðum ann­arra Norð­ur­landa. Ástæðan er ásökun Ísra­els­stjórnar á hendur 12 starfs­manna Flótta­manna­hjálp­ar­innar en þeir eru sagðir hafa hjálpað Hamas-liðum í árásinni á Ísrael þann 7. októ­ber síð­ast­lið­inn, þar sem um 1.100 manns lét lífið. Noregur ákvað hins vegar, eitt Norð­ur­land­anna, að halda greiðslum áfram.

Banda­ríkja­menn ákváðu einnig að stöðva greiðslur til Flótta­manna­hjálp­ar­innar, sem og nokkur lyk­il­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna. Antonio Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, hefur biðlað til þeirra ríkja að halda áfram greiðslum til sam­tak­anna enda eigi ekki að refsa þeim þús­undum sem vinna fyrir þau, en níu af þeim 12 starfs­mönnum sem ásak­aðir eru um þátt­töku í árásinni, hafa verið reknir, einn þeirra er lát­inn og ekki hefur feng­ist stað­fest hverjir tveir eru.

Íslend­ingar hafa margir gagn­rýnt ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar en einn þeirra er rit­höf­und­ur­inn og ljóð­skáldið Bragi Páll Sig­urð­ar­son sem skrif­aði eft­ir­far­andi færslu á X-inu í gær:

„Noregur heldur áfram að styðja mik­il­væg­ustu hjálp­ar­sam­tökin á Gaza á meðan Bjarni Ben sýnir enn og aftur að hann er ekk­ert annað en aum, lítil strengja­brúða Banda­ríkj­anna. Enginn sjálf­stæður vilji, hugsun eða gjörð. Ekkert hug­rekki. Bara þægur, hlýð­inn kjölturakki.“

Karen Kjart­ans­dóttir, fyrr­ver­andi frétta­kona og blaða­kona skrif­aði einnig færslu á X-inu í gær og bendir á að aðeins 0,092 pró­sent starfs­manna Flótta­manna­hjálp­ar­innar séu grun­aðir um aðild að árásinni.

„Ákvörðun um að frysta fram­lög til UNRWA er tekin sem vegna óstað­festra ásak­ana gegn 12 af meira en 13.000 starfs­mönnum UNRWA á Gaza, eða 0,092%. Ásakanir byggja á yfir­heyrslum ísra­el­skra yfir­völda. Sömu yfir­valda og Alþjóða­dóm­stóll­inn telur að séu að fremja glæpi gegn mann­kyni.“

Þá skrif­aði Jón Trausti nokkur færslu á X-inu sem rímar við ofan­greindar færslur:

„Ísland hefur aldrei verið með sjálf­stæða utan­rík­is­stefnu nema í smá­stund á tíunda ára­tugnum. Það að frysta fjár­veit­ingar til flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu­þjóð­anna í miðju þjóð­ar­morði er í takt við það en á sama tíma úr takti við sið­ferði, gæsku og rétt­læti. 100% heig­uls­háttur.“

Illugi Jök­uls­son, rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður er einnig mjög óánægður með rík­is­stjórn­ina en hann skrif­aði eft­ir­far­andi færslu á Facebook:

„And­styggi­leg og grimmd­ar­leg við­brögð Íslands og fleiri landa við þeim fregnum (sem vel að merkja eru komnar frá Ísrael) um að tólf starfs­menn (af mörgum þús­undum) hjá flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna kunni að hafa gert brot­legir og hugs­an­lega átt þátt í óhæfu­verkum. Yfirmenn flótta­manna­hjálp­ar­innar bregð­ast strax við, ein­angra hina grun­uðu starfs­menn og hefja rann­sókn en Bjarni Bene­dikts­son, Katrín Jak­obs­dóttir og Sigurður ingi ákveða að svipta flótta­manna­stofn­un­ina þeim pen­ingum sem nú ríður á að hún fái svo hægt sé að bjarga manns­lífum á Gasa. Ég hef því miður oft skamm­ast mín fyrir Sigurð Inga, Bjarna og Katrínu, en aldrei eins og núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum