Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Harka í bílaviðskiptum í Seláshverfi – Hentu kaupandanum undir kalda sturtu

Köld sturta getur verið allra meina bót.
Köld sturta getur verið allra meina bót.

Í jan­úar 1990 barst lög­regl­unni til­kynn­ing frá bíla­kaup­anda sem sagði farir sínar ekki sléttar, þvert á móti. Hafði hann þá lent í árás manna sem áður höfðu selt honum bif­reið. Réðust þeir að mann­inum og klæddu hann úr föt­unum og hentu honum undir kalda sturtu. Eftir það óku þeir bílnum aftur til síns fyrri heim­ilis. Um ástæð­una fyrir þess­ari óvenju­legu árás má lesa hér fyrir neðan en DV fjall­aði um málið á sínum tíma:

Hörku­á­tök í bíla­við­skiptum í Sel­ás­hverfi:

Stungu kaup­and­anum undir kalda sturtu

All­sér­stæðar inn­heimtu­að­gerðir vegna bíla­við­skipta voru við­hafðar í húsi einu í Sel­ás­hverfi um helg­ina. Þær end­uðu með því að ráð­ist var að bíl­kaup­and­anum á heim­ili hans og honum stungið undir kalda sturtu. Seljandi bíls­ins hafði ekki fengið greitt fyrir bíl­inn sem hann seldi íbúa í Sel­ás­hverfi. Fór hann þá á föstu­dags­kvöldið við annan mann til að krefja kaup­and­ann um pen­inga. Kaup­and­inn sagð­ist ekki hafa þá hand­bæra. Þá vildi selj­and­inn að kaupin gengju til baka og sak­aði kaup­and­ann um að hafa falsað banka­skjal. Þessu neit­aði selj­and­inn. Tví­menn­ing­arnir réð­ust þá á kaup­and­ann, rifu fötin af honum og tusk­uðu hann til í íbúð­inni. Honum var einnig hótað líf­láti ef hann segði lög­regl­unni frá. Að lokum var mað­ur­inn færður undir kalda sturtu. Við svo búið tóku menn­irnir bíllyklana með sér og keyrðu bíl­inn umdeilda í burtu.

Bíl­kaup­and­inn til­kynnti til lög­reglu um aðfarir mann­anna og að búiö væri að stela bílnum hans. Seinna um kvöldið afhenti selj­andi bíls­ins lög­regl­unni bíllyklana en sagði henni ekki hvar bíll­inn væri niður kom­inn. Selj­and­inn tjáði lög­regl­unni að hann ætl­aði að geyma bíl­inn í öruggri vörslu sinni þar til málið leyst­ist og hann fengi sitt. Kaupandi bíls­ins gaf skýrslu til lög­reglu en hann hefur ekki kært selj­and­ann fyrir lík­ams­árás né heldur stuld á bif­reið.

Lög­reglan hefur ekki frek­ari afskipti af einka­við­skiptum sem þessum nema að kæra liggi fyrir. Bíllinn umdeildi er enn í vörslu selj­and­ans. Samkvæmt heim­ildum DV er nokkuð algengt að selj­endur, sem telja sig svikna í bíla­við­skipum, grípi til rót­tækra ráða til að nálg­ast þau verð­mæti aftur sem þeir fá ekki greitt fyrir sam­kvæmt samn­ingum.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður hjá Mannlífi þann 29 nóv­em­ber 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum