Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Líkir ríkisstjórn Katrínar við stjórn Hermanns Jónassonar: „Samsek þjóðarmorði í Palestínu!“

Ríkisstjórn Íslands
Rík­is­stjórn Íslands Mynd: Rúv – Ragnar Visage

Sema Erla Serdaroglu líkir rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við stjórn Hermanns Jón­as­sonar sem vís­aði Gyðingum úr landi á tímum nas­ism­ans í Þýska­landi.

„Það er verið að fremja þjóð­ar­morð í Palest­ínu. Á sama tíma er á Íslandi flótta­fólk frá Palest­ínu, meðal ann­ars Gaza, sem hefur á síð­ustu dögum fengið neitun um alþjóð­lega vernd hér á landi. Þessa dag­ana er einnig verið að brott­vísa fólki frá Palest­ínu, sem kom hingað í leit að skjóli, úr landi. Fjöldi barna og full­orð­inna bíða sömu örlaga á sama tíma og verið er að drepa fjöl­skyldur þeirra á Gaza.“ Þannig hefst Facebook-færsla Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkt á Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands og stofn­anda Solaris hjálp­ar­sam­tak­anna. „Þessa dag­ana er einnig verið að brott­vísa fólki frá Palest­ínu, sem kom hingað í leit að skjóli, úr landi. Fjöldi barna og full­orð­inna bíða sömu örlaga á sama tíma og verið er að drepa fjöl­skyldur þeirra á Gaza. Á Íslandi er flótta­fólk frá Palest­ínu sem hefur verið svipt allri þjón­ustu og er heim­il­is­laust og án allra bjarga og bak­lands, á göt­unni í íslensku sam­fé­lagi, ófært um að upp­fylla grunn­þarfir sínar. Á næstu dögum verða það örlög fleira flótta­fólks frá Palest­ínu. Á sama tíma og verið er að stunda þjóð­ern­is­hreins­anir í heima­landi þeirra.“

Sema Erla segir það ekki rétt að erfitt sé að ná Palest­ínu­fólki frá Gaza, því að á síð­ustu dögum hafi fjöl­mörgum þeirra tek­ist að kom­ast yfir landa­mærin yfir í Egypta­land og þaðan til landa á borð við Ástralíu, Bret­lands, Banda­ríkj­anna, Noregs og Sví­þjóðar. Segir hún að íslensk stjórn­völd eigi að gera mun betur. „Íslensk stjórn­völd eiga að veita öllu flótta­fólki frá Palest­ínu sem þegar er á land­inu vernd án tafar og stöðva allar fyr­ir­hug­aðar brott­vís­anir á palest­ínsku flótta­fólki. Stjórn­völd eiga líka að hætta að draga lapp­irnar og sækja fjöl­skyldur þeirra til Gaza strax. Áður en það verður of seint.“

Líkir Sema Erla að lokum rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við stjórn Hannesar Jón­as­sonar en á við Hermann Jónasson, sem vís­aði gyð­ingum úr landi rétt fyrir seinni heim­styrj­öld­ina. „Áður en þessi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur fer í sögu­bæk­urnar á svip­aðan hátt og stjórn Hannesar Jón­as­sonar, og verður fyrst og fremst minnst sem rík­is­stjórn­ar­innar sem gerði ekk­ert til þess að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum, ítrek­uðum fjöldamorðum og stríðs­glæpum og voru þar með sam­sek þjóð­ar­morði í Palest­ínu!“

Hér fyrir neðan má sjá færsl­una í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum