Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Eva minnist þess er fréttir af andláti Hauks bárust frá Sýrlandi: „Síminn hringdi án afláts“

Haukur Hilmarsson
Haukur Hilm­ars­son Mynd: GeiriX

Í gær voru liðin sex ár frá því að frétt um mögu­legt and­lát Hauks Hilm­ars­sonar barst til Íslands. Móðir hans skrif­aði hjart­næma færslu af til­efni þeirra tíma­móta á Facebook.

Eva Hauks­dóttir lög­maður skrif­aði Facebook-færslu í til­efni þess að í gær voru liðin sex ár frá því að fréttir af and­láti sonar Evu, Hauks Hilm­ars­sonar, bár­ust frá Afrin-hér­aði í Sýrlandi. Haukur, sem var aðgerð­ar­sinni og hug­sjóna­maður, var þar staddur til að hjálpa Kúrdum sem þar bjuggu, við að verj­ast inn­rás Isis-liða. Hauki og félögum hans tókst að sigr­ast á hryðju­verka­mönn­unum en þá hóf her Tyrk­lands loft­árásir á svæðið og er talið að Haukur hafi lát­ist í einni slíkri árás. Lík hans hefur þó aldrei fund­ist.

„Við höfum hund­rað leiðir til að minn­ast Hauks. Við minn­umst hans á hverjum degi, á ein­hvern hátt, og mér finnst enn í dag eins og hann gæti hvenær sem er bankað upp á. Ég er ekki einu sinni viss um að ég yrði neitt hissa ef hann tæki upp á því að ganga aftur eða ef kæmi í ljós að hann væri á lífi eftir allt saman. Það er enn hægt að fletta honum upp í þjóð­skrá svo hann er enn á lífi að áliti rík­is­valds­ins.“ Þannig hefst færsla Evu og heldur svo áfram: „Fyrir réttum 6 árum sat ég við borð­stofu­borðið okkar í Glasgow og reyndi að henda reiður á fréttum dags­ins, sem voru samt sem áður frekar ein­faldar. Síminn hringdi án afláts, einka­skila­boðum rigndi inn á messen­ger á Facebook. Ég var hætt að svara öðrum en mínum allra nán­ustu.“

Eva segir að mað­ur­inn hennar, Einar Stein­gríms­son hefði verið í vinnu­ferð í útlöndum er frétt­irnar bár­ust en að systk­ini hennar hefðu verið vænt­an­leg dag­inn eftir.

„Einar var í vinnu­ferð í útlöndum. Systkini mín vænt­an­leg morg­un­inn eftir. Ég hafði sagt þeim að það væri engin þörf á að þau væru að þvæl­ast þetta. Mér þótti vænt um að þau vildu koma og vera hjá mér en mér fannst ég, í fyllstu ein­lægni, ekki hafa neina þörf fyrir það. Annað átti eftir að koma í ljós en á þessu augna­bliki réði ég full­kom­lega við aðstæður og sjálfa mig.“

Sagðist Eva hafa verið afar rólega og að hugsun hennar hafi verið skýr, þó upp­lýs­ing­arnar hafi verið rugl­ings­legar.

„Ég hafði ekki grátið og hafði enga þörf fyrir það. Ég var poll­ró­leg. Hugsun mín var skýr þótt upp­lýs­ing­arnar væru óreiðu­kenndar. Ég hugs­aði; nei þetta getur ekki verið, við vitum að hann er í Grikk­landi. En svo strax; ekki vera í afneitun, hann væri búinn að hringja ef hann hefði kom­ist til Grikk­lands. Ég opn­aði Google skjal og skrif­aði; „eigi skal syrgja – heldur hvað?“ Ég veit enn ekki hvað.“

Löngu seinna sýndi Eva svo önnur við­brögð.

„Ég hlust­aði á Passion Play með Jethro Tull. Ég skrif­aði blogg­pistil sem ég birti næsta dag. Svo slökkti ég á sím­anum og lauk við og skil­aði lög­fræði­verk­efni sem ég hafði að mestu unnið dag­inn áður. Ég var í námi og tókst ein­hvern­veg­inn að selja sjálfri mér þá hug­mynd að einn svona atburður ætti ekki að hafa áhrif á það. Hann gerði það – en ekki þennan dag.Mig lang­aði ekki að borða en að öðru leyti var allt eðli­legt. Ég var ekki skjálf­hent, ekki með munn­þurrk, fann ekki fyrir örum hjartslætti, mér var ekki of heitt eða of kalt.

Löngu síðar sýndi ég við­brögð sem báru vott um veru­lega geðs­hrær­ingu en á þess­ari stundu hreyfði ekk­ert við mér.“

Hér má lesa færsl­una óslitna:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum