Lögregla var kölluð út í gærkvöldi eftir að maður slasaðist í miðbænum. Vegfarandinn hafði dottið í hálku og hlotið skurð á hné. Stuttu síðar barst lögreglu önnur tilkynning um mann í Hafnarfirði sem hafði einnig slasað sig í hálku. Báðir mennirnir voru fluttir með sjúkrabifreið til aðhlynningar.
Við Esjuna var ekið utan í vegrið sem varð til þess að bíllinn skemmdist lítillega. Ökumaður og farþegi voru í bílnum en þeir sluppu báðir óslasaðir. Báðir héldu sína leið eftir að hafa rætt við lögreglu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir