Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Katrín Júlíusdóttir greindist með sortuæxli í haust: „Óttinn var á köflum lamandi“

Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júl­í­us­dóttir Mynd: Instagram-skjáskot

Katrín Júl­í­us­dóttir sigr­að­ist á sortu­æxli í eyra síð­ast­liðið haust og seg­ist svo þakk­lát að hafa sigrað meinið, að um hana fari straumur.

Fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar og rit­höf­und­ur­inn Katrín Júl­í­us­dóttir greind­ist með sortu­æxli í eyra síð­ast­liðið haust en náði, eftir tvær aðgerðir, að sigr­ast á því. Segir hún frá því í fyrsta skipti í færslu á Facebook en þar fer hún yfir árið sem senn er á enda.

„Gleði, ferða­lög, lam­andi ótti, djúpt þakk­læti og vin­átta ein­kenndu árið hjá okkur fjöl­skyld­unni. Við fjöllan áttum að mestu dásam­legt ár þar sem við ferð­uð­umst mikið m.a. til New Orleans sem er ævin­týra­leg borg. Ég fékk loks nýtt hné og get nú gengið verkja­laus eftir ára­tuga bras. Bjarni sendi frá sér bók­ina Dúnstúlkan í þokunni sem hefur fengið frá­bærar við­tökur og er til­nefnd til íslensku bók­mennta­verð­laun­anna. Stór­kost­legt verk satt best að segja. Ég fékk mína fyrstu bók útgefna í Bret­landi nú í byrjun des og hafa við­tök­urnar verið ynd­is­legar.“ Svona hefst færsla Katrínar en svo kemur frá­sögnin af sortu­æxl­inu en hún segir að grein­ingin hafi verið fjöl­skyld­unni áfall, skilj­an­lega en hún seigr að ótt­inn hafi verið lam­andi á köflum. Þá segir hún að eig­in­maður hennar, rit­höf­und­ur­inn Bjarni M. Bjarna­son, hafi farið í við­tal í Kiljuna, aðeins degi fyrir seinni aðgerð­ina „með þrumu­ský óvissunnar yfir sér.“

„En mitt í þess­ari glans­mynd allri, sem við höfum verið dug­leg að segja frá á sam­fé­lags­miðlum, greind­ist ég með sortu­æxli á eyra í haust. Var það okkur mikið áfall og því er ekki að neita að ótt­inn var á köflum lam­andi. Missti ég nán­ast málið um tíma, átti svo erfitt með að tala um þetta, því hef ég litlu deilt utan nán­asta hrings fyrr en núna. Fór í tvær aðgerðir þar sem eyrað var skorið og byggt upp auk þess sem eit­ill var fjar­lægður í þeirri seinni. Bjarni minn og strák­arnir voru með mér í þessu og stóðu keikir þó ótt­inn byggi með þeim ekki síður en mér. Bjarni fór t.d. í við­tal við Egil í Kiljunni dag­inn fyrir seinni aðgerð­ina – með þrumu­ský óvissunnar yfir sér. Ég fékk því að dást að mínum heittelskaða í sjúkra­rúmi á LSH. Við vorum síðan við­stödd þegar Bjarni var til­nefndur tveim dögum eftir seinni aðgerð­ina. Þar brostum við í ein­lægri gleði – enn með þrumu­ský óvissunnar yfir okkur. Svona er lífið marglaga og mynd­irnar sem við birtum segja ekki alla sög­una. EN við fengum svo bestu frétt­irnar nú í des. Allt meinið náð­ist!!“

Katrín seg­ist ætla nú að hlúa að lík­ama og sál og að hún sé afar þakk­lát fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk­inu á Íslandi. Þá sé hún einnig mjög þakk­lát fyrir lífið sjálft.

Í loka­orðum sínum segir Katrín að eftir að hún hafi fengið gleði­frétt­irnar um að æxlið væri farið, hafi slaknað á lík­ama­naum um stund og að um hana hafi farið „straumur þakk­lætis af slíkri dýpt að erfitt er að lýsa.“

„Daginn eftir að ég fékk bestu frétt­irnar slakn­aði um stund á öllum lík­am­anum og um mig fór straumur þakk­lætis af slíkri dýpt að erfitt er að lýsa – lík­ist því helst að fá nýfætt barn í fangið. Við erum rík af vinum og erum svo þakk­lát fyrir allt renn­er­íið af vinum hér heima hjá okkur, ást­ina, gleð­ina, knúsin og sam­tölin. Fjöllan í Lyng­ásnum fer því full auð­mýktar, þakk­lætis og til­hlökk­unar inn í nýtt ár. Takk fyrir allt elsku vinir og fjöl­skylda, megi nýtt ár verða ykkur gjöf­ult og ást­ríkt. Hlökkum til fjörugra sam­veru­stunda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum