Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Rektorsframbjóðandi kannast ekki við að kennarar hefðu hringt í nemendur sína

Lækna­deildin sendi póst og nefndi aðeins Magnús á nafn.

Magnús fékk 47,6% atkvæða
Magnús fékk 47,6% atkvæða Vann kosn­ingu nem­enda Mynd: Háskóli Íslands

Í gær voru kynnt úrslit rekt­ors­kjörs Háskóla Íslands en kosið var milli Silju Báru Ómars­dóttur, pró­fess­ors við Stjórn­mála­fræði­deild, og Magnúsar Karls Magn­ús­sonar, pró­fess­ors við Lækna­deild. Silja vann þá kosn­ingu og hlaut 50,7% atkvæða en Magnús 47,6%. Í fyrri umferð kosn­inga hafði Magnús fengið 33,6% atkvæða en Silja Bára 29,3%.

Athygli vekur að fleiri nem­endur HÍ kusu Magnús heldur Silju en atkvæða­vægi milli starfs­fólks og nem­enda er 70% móti 30%. Heim­ildir Mannlífs herma að nokkrir kenn­arar við Háskóla Íslands hafi hringt í nem­endur skól­ans og hvatt á þá að kjósa Magnús. Sömu heim­ildir herma að óánægja ríki innan skól­ans með það og þyki sumum kenn­urum óvið­eig­andi að sam­kenn­arar þeirra beiti sér með þessum hætti. Telja þeir að þarna sé á ferð­inni hags­muna­á­rekstur.

Þá hefur Mannlíf undir hönd­unum tölvu­póst frá lækna­deild skól­ans þar sem nem­endur eru hvattir til að kjósa í rekt­ors­kjör­inu en er Magnús eini fram­bjóð­and­inn sem er nefndur á nafn í tölvu­póst­inum. Hann er fyrr­ver­andi for­seti deild­ar­innar.

Í sam­tali við Mannlíf kann­að­ist Magnús ekki við að kenn­arar hafi hringt í sína eigin nem­endur fyrir hans hönd í rekt­ors­kjör­inu, enda telji hann það ekki rétt. „Einnig vil ég taka fram að ég tel óeðli­legt að hringja í nem­endur sína til að hvetja þá til að kjósa ákveð­inn fram­bjóð­anda. Ég vil einnig taka fram að umræddur tölvu­póstur sem var sendur var ekki sendur með minni vit­neskju eða mínu sam­þykki og ég hefði aldrei lagt slíkt til.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var gríð­ar­lega mikið um úthring­ingar til nem­enda Háskól­ans í kringum kosn­ing­arnar.

Silja Bára sagði í sam­tali við Mannlíf að kenn­arar hafi ekki hringt í nem­endur fyrir hennar hönd, að minnsta kosti ekki með hennar vit­und eða sam­þykki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum