Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Rannsókn á meintum hótunum Páls Steingrímssonar hætt: „Þetta er kjaftæði“

Páll Steingrimsson – Rannsókn á byrlunar- og símamálinu var blásin af.
Páll Stein­grims­son – Rannsókn á byrl­unar- og síma­mál­inu var blásin af.

Rannsókn á kæru­máli Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, Aðal­steins Kjart­ans­sonar og Stefáns Eiríks­sonar á hendur Páli Stein­gríms­syni, vegna hót­ana, var hætt á milli jóla og nýárs. Mannlíf hefur gögn máls­ins undir höndum.

Mannlíf hefur undir höndum lög­reglu­skýrslur tengdum kærum fjöl­miðla­mann­anna Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Heim­ild­ar­innar Aðal­steins Kjart­ans­sonar, blaða­manns Heim­ild­ar­innar og Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra en þeir kærðu Pál Stein­gríms­son fyrir hót­anir. Hinu meintu hót­anir voru bæði í formi tölvu­pósts og sam­skipta á Facebook en Mannlíf fjall­aði um það er Páll ræddi við fólk tengdu Sam­skipum um það hvaða byssu væri best að nota til að skjóta „hæl­bíta“ sem þre­menn­ing­arnir vildu meina að ætti við um þá fjöl­miðla­menn sem fjallað höfðu um hið svo­kall­aða „Sam­herj­a­mál“ en frétt Mannlífs var meðal gagna í kæru­mál­inu.

Sjá hér: Páll Stein­gríms­son í óhugn­an­legu sam­tali um „hæl­bíta“: „Ok hvaða cal er best að nota“

Málið gegn Páli var látið niður falla þann 27. des­em­ber síð­ast­lið­inn en í til­kynn­ingu lög­reglu sem send var á alla hlut­eig­anda máls­ins kom framað að rann­sókn máls­ins hafi verið hætt þar sem ekki hafi verið tal­inn grund­völlur til að halda rann­sókn­inni áfram. Þar er þó tekið fram að ef ný sak­ar­gögn kæmu fram í mál­inu, væri hægt að taka rann­sókn­ina upp aftur. Hér fyrir neðan má sjá skjalið sem Páll Stein­gríms­son fékk í hendur en þre­menn­ing­arnir fengu sama skjal í hend­urnar.


Þann 5. sept­em­ber 2022 mættu þeir Þórður Snær og Aðal­steinn á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu og lögðu fram kæru á hendur Páli Stein­gríms­syni fyrir að hafa haft í hót­unum við þá í gegnum tölvu­póst, sem og í athuga­semdum á Facebook. Daginn eftir mætti svo Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri og lagði fram kæru fyrir sömu meintu hót­anir.

Hér má sjá tölvu­póst­inn frá Páli Stein­gríms­syni sem þre­menn­ing­arnir töldu vera hótun:

Og hér fyrir neðan má sjá skýrslu sem tekin var af Aðal­steini en sam­bæri­leg skýrsla var tekin af Stefáni og Þórði Snæ.

Þórður Snær skil­aði svo grein­ar­gerð þar sem hann rekur málið frá sjón­ar­horni þre­menn­ing­anna en þá greina­gerð má sjá hér fyrir neðan.


Þá má næst sjá brot úr sam­an­tekt úr skýrslu­töku af Páli Stein­gríms­syni en Mannlíf birtir ekki við­kvæm smá­at­riði um heilsu­upp­lýs­ingar fólks tengt Páli, sem fram kemur í skýrslu­tök­unni. Þar segir hann af and­legum veik­indum fyrrum eig­in­konu sinnar og að sam­skipti hennar við Þóru Arn­órs­dóttur, þáver­andi frétta­stjóra Kastljós á RÚV, hafi verið mjög mikil og hafi haft slæm áhrif á eig­in­kon­una fyrr­ver­andi. Því hafi hann sent umræddan tölvu­póst en að ekki hafi það verið hótun um ofbeldi, heldur hafi hann verið að meina að hann gæti farið með málið fyrir Fjöl­miðla­nefnd eða til Blaða­mann­fé­lags­ins, svo dæmi séu tekin.

Eins og fram hefur komið var rann­sókn máls­ins hætt þann 27. des­em­ber 2023 en komi fram ný gögn í mál­inu, getur lög­reglan tekið málið upp að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum