Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Stjórn Sósíalista setur hömlur á tjáningu flokksmanna

„Svona lítur ógn­ar­stjórn og þöggun út.“

Gunnar Smári Egilsson
Gunnar Smári Egilsson Er for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins og hfefur sætt gagn­rýni hóps flokks­manna. Mynd: Sósíalistaflokkurinn

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, hefur til­kynnt flokks­mönnum að hömlur hafi verið settar á tján­ingu þeirra til að róa umræður á vett­vangi flokks­manna, Rauða þræð­inum á Facebook.

„Það var sam­þykkt á fundi fram­kvæmda­stjórnar fyrir nokkrum vikum að hægja á því fólki sem hefur að mörgu leyti lagt undir sig þennan vett­vang, sett hér inn marga statusa á dag og kommentað á mín­útu fresti. Admin mun því setja þær skorður á fólk að það geti aðeins sett inn einn status á dag og eitt koment á hverri klukku­stund. Þetta er regla sem gildir um alla,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir að höml­urnar séu tíma­bundnar en verði hugs­an­legar fram­lengdar.

„Fyrst er fólk settar þessar skorður í viku, en síðan lengur ef þurfa þykir. Þessar reglur eru settar til að kæla aðeins niður hit­ann sem hér kviknar á þráðum. Hug­myndin hefur alltaf verið að sú, að þetta sé vett­vangur fyrir umræðu um póli­tík og sam­fé­lag. Þá fer ekki vel að fólk sé hróp­andi og æst. Það er frá­hrind­andi fyrir þau sem vilja taka þátt.“

Gunnar Smári hefur verið harð­lega gagn­rýndur og svarað fyrir sig eftir að for­maður ung­liða­hreyf­ingar flokks­ins sagði sig úr kosn­inga­stjórn og sak­aði for­mann fram­kvæmda­stjórnar um ólýð­ræð­is­leg vinnu­brögð og yfir­gang. „Ég get ekki leng­ur starfað inn­an for­ystu sem huns­ar lýð­ræðis­lega gagn­rýni, við­held­ur óheil­brigðri menn­ingu og refs­ar þeim sem benda á vanda­mál­in,“ skrif­aði hann í bréfi til flokks­manna.

Viðbrögð flokks­manna hafa verið mis­jöfn. „Mikið rosa­lega er þetta ólýð­ræð­is­legt,“ segir einn flokks­maður. „Svona lítur ógn­ar­stjórn og þöggun út,“ segir annar.

Fund­ar­gerð fram­kvæmda­stjórnar hefur ekki verið birt. Engin fund­ar­gerð fram­kvæmda­stjórnar hefur verið birt frá 5. októ­ber í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“