Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Ríkislögreglustjóri fékk ábendingu um yfirvofandi árás á Reykjavík í fyrra

Upp­lýs­ing­arnar reynd­ust koma frá Rúss­landi

Reykjavík
Reykja­vík Talið er að upp­lýs­ing­arnar hafi verið falskar.

Til­kynn­ing um yfir­vof­andi árás í Reykja­vík barst rík­is­lög­reglu­stjóra í fyrra. Líklegt er að ætl­unin hafi verið að rýra traust almenn­ings á við­bragði á Íslandi, frekar en að raun­veru­leg árás hafi verið skipu­lögð.
RÚV segir frá því að ábend­ing um yfir­vof­andi árás í Reykja­vík hafi borist rík­is­lög­reglu í fyrra en að upp­lýs­ing­arnar hafi átt sér rúss­neskan upp­runa. Yfir­maður öryggis- og grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, Karl Steinar Valsson, telur mögu­lega hafi ábend­ingin verið ætlað að veikja trú almenn­ings á örygg­is­við­brögðum á land­inu.

Karl Steinar greindi frá þessu í Silfrinu í gær­kvöldi en þar var rætt um örygg­is­mál á Íslend­ingu, í kjöl­far sinna­skipta Banda­ríkja­stjórnar gagn­vart Rúss­landi og stríð­inu í Úkraínu.

„Við fengum ábend­ingu, eða það kom til­kynn­ing til lög­reglu í fyrra um að það væri yfir­vof­andi árás í Reykja­vík sem að setur allt á hlið­ina á okkur,“ segir Karl Steinar.

Með alþjóð­legri aðstoð rakti lög­reglan upp­lýs­ing­arnar um árás­ina til Rúmeníu en þær höfðu rúss­neskan upp­runa. Þá hafi komið í ljós eftir rann­sókn­ina að svipuð ábend­ing barst einnig öðru landi.

Upp­lýs­ing­arnar voru mögu­lega falskar að sögn Karls Steinars en að slíkum ábend­ingum sé ætlað að veikja traust almenn­ings á örygg­is­við­bragði á Íslandi.

„Hefðum við brugð­ist við þeim með þeim hætti, til dæmis að aflýsa fjölda­sam­komum og annað slíkt. Þá hefði og síðan hefði ekk­ert gerst og við ekki getað kannski hérna greint almenni­lega frá þessu þá hefði til­trú meðal almenn­ings mjög lík­lega verið mjög rýrð,“ segir Karl Steinar.

RÚV hafði sam­band við Karl Steinar sem sagð­ist ekki geta gefið frek­ari upp­lýs­ingar um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum