Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Ástríðuglæpur í Ameríku – Ömurleg örlög Axelínu Þorgrímsdóttur

Seattle 1914
Seattle 1914

Axelína Þor­gríms­dóttir ótt­að­ist mann sinn, hinn enska Boyd T. Read en þau höfðu þá verið gift í aðeins tvo mán­uði. Boyd var mjög afbrýði­samur maður og var svo komið að Axelína flúði í faðm for­eldra sinna. En brátt var Boyd mættur öskuillur fyrir utan heim­ili tengda­for­eldra sinna, með byssu í hönd.

Árið var 1914 en hin 26 ára Axelína bjó í Seattle í Banda­ríkj­unum en þar bjuggu for­eldrar hennar einnig, þau Þor­grímur Arn­bjarn­ar­son og Solveig en föð­ur­nafn hennar er ókunn­ugt.

Eig­in­maður Axelínu, Boyd, mætti sem sagt fyrir utan heim­ili tengda­for­eldra sinna, sá eig­in­konu sína í gegnum rúðu í hús­inu, beindi byssu sinni að henni og hleypti af. Eftir það snéri hann byssu sinni að sjálfum sér og tók í gikk­inn. Axelína og Boyd lét­ust bæði af sárum sínum.

Tveir fjöl­miðlar fjöll­uðu um málið á Íslandi, Lögrjetta og Vísir en hér fyrir neðan má lesa frá­sögn þeirra af morð­inu.

Lögrjetta

Íslensk kona myrt

Lögb. frá 7. f. m. skýrir frá því, að 24. apríl hafi íslensk kona verið myrt í Seattle í Banda­ríkj­unum af manni sinum. Konan hjet Alexína og var í heim­sókn hjá for­eldrum sínum, en mað­ur­inn sendi henni skot inn þangað um glugga og skaut síðan sjálfan sig þegar á eftir. Hann var enskur og hjet Boyd T. Read. Þau voru gift fyrir 2 mán­uðum og hann hafði verið hræddur um hana. Hún var 26 ára gömul og hann 32. For­eldrar hennar heita Þor­grímur Arn­bjarn­ar­son og Solveig, sögð mynd­ar­leg hjón.

Vísir



Íslensk kona myrt

Það bar til í Seattle 24. apríl, að ung íslensk kona, Axelina að nafni, var myrt af eig­in­manni sínum heima hjá for­eldrum hennar. þau hjón höfðu verið gift í tvo mán­uði. Maðurinn, Read að nafni, var fádæma afbrýði­samur og for­eldrar kon­unnar höfðu því tekið hana heim til sín. Read fór heim að húsi þeirra seint um kveldið þennan dag og skaut konu sína inn um glugg­ann, en sjálfan sig á eftir. For­eldrar hinnar myrtu konu heita Solveig og þor­grímur Arn­bjarn­ar­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum