Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skrifstofustarfsfólk látið gæta leikskólabarna í Kópavogi: „Mjög vafasamt“

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, vill verða formaður
Ásdís Krist­jáns­dóttir bæj­ar­stjóri Kópavogs, vill verða for­maður

Bæj­ar­full­trúi segir meiri­hluta hafa sent leið­andi könnun á for­eldra.

Und­an­farna mán­uði hefur sú ákvörðun Kópa­vogs­bæjar um að breyta gjald­skrá leik­skóla bæj­ars­ins verið harð­lega gagn­rýnd af for­eldrum í bæj­ar­fé­lag­inu og minni­hluta bæj­ar­stjórnar. Í grófum dráttum var sú breyt­ing gerð á gjald­skrá að þeir for­eldrar sem hafa barn sitt í vistun hjá leik­skólum bæj­ar­ins í sex tíma eða færri þurfa ekki að borga fyrir þá þjón­ustu sem veitt er og er upp­gefin ástæða meiri­hlut­ans sú að það sé verið að hvetja for­eldra til að eyða meiri tíma með börnum sínum. Hins vegar þurfa þeir for­eldrar sem þurfa að hafa börnin sín meira en sex tíma á dag á leik­skóla að borga mun hærri gjöld en þau gerðu áður. Bent hefur verið á að slíkt komi mest niður á fólki í lág­launa­vinnum, sem bjóða yfir­leitt upp á lít­inn sveigj­an­leika.

Í síð­ustu viku birti bæj­ar­stjórn Kópa­vogs­bæjar nið­ur­stöðu úr könnun sem var send á for­eldra leik­skóla­barna og eru nið­ur­staða hennar túlkuð á sem bestan veg fyrir bæj­ar­stjórn­ina. Í fljótu bragði virð­ist allt í kringum þessa ákvörðun hafa heppn­ast vel.

Því er Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir, bæj­ar­full­trúi Pírata í Kópavogi, ósam­mála og segir hún að spurn­ing­arnar sem sendar voru út hafa verið leið­andi.

„Við gerð spurn­inga­kann­ana er mik­il­vægt að spurn­ingar séu ekki leið­andi, það er að segja orð­aðar þannig að aðeins sé hægt að túlka nið­ur­stöð­urnar á einn veg. Það er alveg sama hvort sá sem er spurður að því hvort hann sé hættur að berja kon­una sína svari ját­andi eða neit­andi – í báðum til­fellum felur svarið í sér að hann hann hafi ein­hvern tím­ann gert það. Nýleg könnun sem for­eldrar leik­skóla­barna í Kópavogi fengu senda var gott dæmi um leið­andi spurn­inga­könnun. Allar spurn­ing­arnar voru jákvæðar stað­hæf­ingar sem for­eldrar áttu svo að svara hversu sam­mála eða ósam­mála þeir væru.

Til dæmis var fólk beðið um að merkja við hversu sam­mála eða ósam­mála það væri full­yrð­ing­unni um að breyt­ing­arnar hafi leitt til aukn­ingar gæða­stunda barns­ins með fjöl­skyldu sinni. Aðeins 26% svar­enda segj­ast sam­mála en 43% ósam­mála. Við vitum aftur á móti ekk­ert um það hvort þessi 43% eigi við að gæða­stundum hafi fækkað hjá þeim, eða hvort tíðni þeirra sé óbreytt. Í öllu falli er mjög vafa­samt að túlka nið­ur­stöð­urnar þannig að áhrifin séu jákvæð fyrir gæða­stundir,“ skrifar Sig­ur­björg í aðsendri grein á Vísi.

Í til­kynn­ingu sem bæj­ar­yf­ir­völd sendu á fjöl­miðla hrósar bær­inn sér fyrir að ekki hafi þurft að loka leik­skólum vegna mann­eklu og það sé breyt­ing­unum að þakka. „Það er ekk­ert skrýtið, þar sem sam­hliða gjald­skrár­breyt­ing­unum var lögð alveg sér­stök áhersla á að koma í veg fyrir það að senda þyrfti börn heim vegna lok­ana á inn­leið­ing­ar­tím­anum. Þannig var starfs­fólk af mennta­sviði bæj­ar­skrif­stof­anna sent til þess að hlaupa í skarðið og leysa af þegar starfs­fólk vant­aði til vinnu í leik­skól­unum,“ skrifar Sig­ur­björg um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum