Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Eitt dýrasta hús landsins komið á sölu

Var byggt árið 2011

Góðakur 8
Góðakur 8

Glæsilegt og veglegt einbýlishús við Góðakur 8 í Garðabæ hefur verið sett á sölu fyrir 420 milljónir króna. Húsið, sem var byggt árið 2011, er 361,8 fermetrar að stærð og stendur á 964 fermetra eignarlóð.

Innbyggður bílskúr er 33,3 fermetrar. Húsið stendur innst í friðsælum botnlanga þar sem opin og gróin svæði eru allt í kring.

Eignin skiptist meðal annars í fimm svefn­herbergi, þar af tvær rúmgóðar hjóna­svítur, þrjú baðherbergi og gestasal­erni. Stórt sérsmíðað eldhús með Miele-heimilis­tækjum tengist fjölskyldu­rými, stofu og borðstofu. Þá er sérstakt skrifstofu­rými í húsinu.

Mikil lofthæð einkennir stofurnar, þar sem einnig er arinn og útsýni yfir gróinn dal og læk. Á efri hæð eru tvennar svalir, annars vegar morgunsvalir og hins vegar síðdegis­svalir.

Við húsið er stór og skjólgóð harðviðar­verönd með heitum potti og sérstöku borðstofu­svæði utandyra. Hluti verandarinnar er yfir­byggður og mikill gróður umlykur svæðið.

Húsið var teiknað af Sigurði Hallgríms­syni, arkitekt hjá Arkþingi, en Rut Kára­dóttir sá um innan­hússhönnun. Mikill metnaður hefur verið lagður í efnisval og sérsmíðaðar innréttingar.

Við eignina eru jafnframt góð bílastæði, rafhleðslustöð og geymslu­skúr á lóðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“