Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Orðafátækt hjá almenningi – „Klikkað og geðveikt virðast hafa leyst öll lýsingarorð af hólmi“

Sigmundur Ernir Rúnarsson fór yfir þróun íslenskara tungu. Mynd/samsett
Sig­mundur Ernir Rún­ars­son fór yfir þróun íslenskara tungu. Mynd/sam­sett

„Íslensk tunga hefur bless­un­ar­lega verið þeirrar nátt­úru frá alda öðli að geta lagað sig að breyttum tímum og tíð­ar­anda. Það hefur einkum stafað af því að það hefur verið metn­að­ar­mál lands­manna að smíða orð sem hæfa nýj­ungum og umskiptum í atvinnu­lífi, menn­ingu og sam­fé­lags­gerð,“ ritar Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­höf­undur og fyrrum alþing­is­maður, í pistli sem birt­ist á DV.

„Heita má að ástríða af þessi tagi hafi skapað íslensk­unni sér­stöðu á heims­vísu.

Hér nægir að nefna orð á borð við síma, sjón­varp og tölvu sem njóta sín ríku­lega í nútíma­máli fólks á öllum aldri á Íslandi á sama tíma og frænd­þjóðir okkar á Norð­ur­lönd­unum hafa í mörgum til­vikum látið undan enskum áhrifum í þessum efnum, svo heldur hefur tunga þeirra slúskast fyrir vikið.

Og þessi ánægju­lega árátta hefur fylgt Íslend­ingum inn í nýja öld. Meira að segja taka ung­menni ekki annað í mál en að fara í pílu eða keilu um kvöld og helgar á meðan for­eldrar þeirra stunda blak eða körfu,“ ritar Sig­mundur Ernir.

Hann bendir á að nú séu blikur á lofti og teikn blasi víða við.

„Ekki ein­asta er áber­andi orða­fá­tæktar farið að gæta í tungu­máli almenn­ings þar sem orðin klikkað og geð­veikt virð­ast hafa leyst svo að segja öll önnur lýs­ing­ar­orð af hólmi – og er þar samt af svo ríku­legum forða að taka að undrun sætir að ein­ungis tvö orð sitji ein eftir.“

Sigmundi þykir þró­unin skýr og segir fjöl­breytni tungu­máls­ins vera að víkja fyrir eins­leitni.

Karlkynið útlægt

Hann veltir fyrir sér því er hann kallar bann­fær­ingu karl­skyns­ins: „ … sem að vissu leyti er rök­rétt fram­hald af kær­komnu kven­frelsi og rétt­indum hinsegin fólks. En hæfir það umræð­unni að gera orð útlæg? Er það bar­átt­unni sam­boðið? Því þótt vissu­lega megi gagn­rýna íslenska tungu fyrir að hafa verið full til karllæg í gegnum tíð­ina – og er þar lík­lega var­lega að orði kom­ist – er varla sann­gjarnt að fækka kynjum í móð­ur­mál­inu á sama tíma og eðli­legt til­kall er gert til þess að fjölga þeim í mann­líf­inu.“

„Meg­in­spurn­ing­arnar eru raunar þessar: Ætlum við að breyta reglum tungu­máls­ins? Er vilji til þess á meðal þjóð­ar­innar að láta rétt­ritun lönd og leið? Og að lokum þessi: Eru gamlar staf­setn­ing­ar­reglur kannski bara barn síns tíma?,“ spyr Sig­mundur Ernir.

Vill taka umræðuna

Hann segir að umræðan hafi ekki farið fram: „Á meðan mæta stjórn­mála­menn í sjón­varps­tíma og segja að vita­skuld þurfi að bjarga Grind­vík­ingum, því þau eigi það skilið. Og vart má taka myndir úr Blá­fjöllum eða Hlíð­ar­fjalli í sama frétta­tíma nema að segja að öll hafi skemmt sér þar vel.“

Breyting sem Sig­mundur og segir að per­sónu­fornöfn vísi ekki lengur til mál­fræði­legra per­sóna eins og reglur kveði á um, sem kenndar hafa verið í skólum og rit­stjórar fylgi.

„Og hvernig eigum við að bera okkur að í þeim efnum á kom­andi tímum? Munum við reka aðskiln­að­ar­stefnu á milli tal­máls og bók­máls? Það er líka ein meg­in­spurn­ingin – og taka upp ný-íslensku til hliðar við þá gömlu. Og leyfa báðar í bekkjum og bókum? Eða leyfa allt saman? Frelsa tung­una undan öllum höftum?

Íslend­ingum er enn þá annt um tungu sína. Og þeir vilja að hún aðlagi sig að síbreyti­legu sam­fé­lagi. En eigum við að gefa reglu­verk­inu langt nef? Það getur verið mjög skyn­sam­legt að fara að reglum í umferð­inni. Og það hefur bjargað manns­lífum. Reglur koma sér nefni­lega víða vel.

En lík­lega fer hér vel á því að vanda til verka. Og ana ekki að neinu. Móð­ur­málið á það skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum