FólkDrekkt fyrir að eignast barn með mági sínum Frumraun Þóru Karítasar Árnadóttur, bókin Mörk – saga mömmu, vakti athygli þegar hún kom út fyrir nokkrum árum, en í henni sagði Þóra Karítas örlagaríka sögu móður sinnar. Nú er von á annarri bók frá Þóru sem byggir sömuleiðis á raunverulegum atburðum, aftökum við Drekkingarhyl þar sem konum var drekkt fyrir dulsmál og blóðskömm. „Þetta er allt frekar óraunverulegt núna...
FólkInni í eldfjalli Mynd/Ragnhildur Aðalsteinsdóttir Skammt frá skíðasvæðinu í Bláfjöllum er Þríhnjúkagígur, eina eldfjallið sem vitað er um að hægt sé að skoða að innanverðu. Gígurinn er alls um 170 metra djúpur og fyrir átta árum tóku þrír ævintýramenn sig til og hófu að bjóða upp á ferðir niður í gíginn með lyftu. Vikan fór í slíka ferð á dögunum og hitti meðal...
FólkEkki bara góður ilmur … Ilmolíur eru sagðar hafa góð áhrif á fólk, bæði andlega og líkamlega. Þær hafa verið notaðar til lækninga öldum saman í Austurlöndum fjær og vinsældir þeirra aukist mikið á Vesturlöndum. Olíurnar eiga að virka vel gegn til dæmis kvefi, bakverkjum og tíðaverkjum. Einnig eru þær sagðar geta dregið úr dapurleika og aukið sjálfstraust og hugrekki. Auðvelt er að nota ilmolíurnar...
FólkBólótt húð – hvað er til ráða? Til að viðhalda fallegri og heilbrigðri húð er nauðsynlegt að hugsa vel um hana og nota snyrtivörur sem henta húðgerð manns. Gríðarlegt úrval snyrtivara er á markaðinum í dag og oft vefst fyrir fólki hvaða vörur henta því vegna þess að það vantar skilning og þekkingu á eigin húð.
FólkColin Farrell óþekkjanlegur í hlutverki Mörgæsarinnar Fyrsta stiklan úr nýju Batman-myndinni sem Matt Reeves leikstýrir hefur litið dagsins ljós og aðdáendur Batmans eiga ekki orð yfir þá umbreytingu sem írski leikarinn Colin Farrell hefur orðið fyrir í hlutverki Mörgæsarinnar og margir Twitter-notendur segjast hafa átt í erfiðleikum með að þekkja hann í gervinu, að því er fram kemur í samantekt The Independent. Það er Robert Pattinson...
FólkKári í herferð gegn mansali: Skelfilegt að börn séu seld Hrottalegar sögur úr undirheimum mansals vöktu óhug hjá ljósmyndaranum Kára Sverrissyni þegar hann var staddur í Suður-Afríku á dögunum. Kári var þar við tökur á nýrri herferð fyrir Beauty for Freedom, samtök sem beita nýstárlegum aðferðum til að hjálpa þolendum kynlífsþrælkunar og mansals. „Í gegnum tíðina hef ég mikið verið að rannsaka hvað hefur verið gert til að ná til...
FólkSimon Cowell getur ekki haldið áfram í Britain’s Got Talent vegna meiðsla Tónlistarmógúllinn Simon Cowell mun ekki snúa aftur í dómnefnd hinna geysivinsælu þátta Britain’s Got Talent vegna meiðsla sem hann hlaut í reiðhjólaslysi fyrir skömmu. Í hans stað kemur Ashley Banjo og verður sá í dómnefndinni ásamt Alesha Dixon, Amanda Holden, og David Walliams í undanúrslitaþættinum sem fram fer í næstu viku. Simon Cowell hefur verið í dómnefnd þáttanna síðan þeir...
FólkÚtlaginn – skjótari en skugginn Í júní er hann skyndilega kominn upp úr jörðu. Skjótari en skugginn. Ef þú passar þig ekki, ertu umkringd/ur áður en þú veist af. Samt er hann bara einn. Er þetta brella? Aðeins einn var hér í upphafi, hvar fékk hann liðsauka? Allt í einu lýsir hann fjölmörgum gulum blómum framan í þig. Þú skilur eiginlega ekkert í þessu, en nú er kominn júlí, sólin er hátt á lofti og kannski ertu bara með óráði.
FólkHefur ekkert á móti Pétri Jóhanni eða Audda Blö Gagnrýni sem Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, setti fram á Twitter í tengslum við forsíðuviðtal DV við Auðunn Blöndal um síðustu helgi olli fjaðrafoki þegar Hringbraut sló henni upp sem frétt á vef sínum undir fyrirsögninni Tara brjáluð yfir helgarviðtali DV við Audda Blö. Í kjölfarið fékk Tara yfir sig holskeflu fúkyrða í kommentakerfi miðilsins þar sem sett...
Fólk„Sökin er mín“ Ég leyfði bæði móður minni og tengdamóður að ráða yfir mér og tók aldrei fulla ábyrgð á gjörðum mínum. Það átti eftir að hafa skelfilegar afleiðingar.
FólkÓska eftir almennum lesendum í verðlaunanefndir „Okkur fannst kominn tími á rödd hins almenna lesanda,“ segir Bryndís Loftsdóttir, starfsmaður Félags íslenskra bókaútgefenda en félagið hefur auglýst eftir fólki til að sitja í dómnefndum Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Opnað var fyrir skráningar á Facebook-síðu félagsins í vikunni og viðbrögðin hafa, að sögn Bryndísar, verið mikil. Launin fyrir nefndarsetuna nema 125.000 krónum en að auki fær nefndarfólk að eiga bækurnar...
FólkBer ábyrgð á einu stærsta tískuslysi Íslandssögunnar Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri og handritshöfundur, hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar myndir á borð við Ömmu Hófí og Astrópíu og fetar óhikað nýjar brautir í vali á verkefnum. Enda segist hann sjálfur vera óhræddur við að taka áhættur og standist sjaldnast góðar áskoranir þótt það hafi stundum komið honum í vandræði. Gunnar Björn er undir smásjánni að þessu sinni. Fullt...