Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Sökin er mín“

Ég leyfði bæði móður minni og tengda­móður að ráða yfir mér og tók aldrei fulla ábyrgð á gjörðum mínum. Það átti eftir að hafa skelfi­legar afleið­ingar.

Ég varð yfir mig glöð þegar sonur minn kynnt­ist ungri sam­starfs­konu sinni og gift­ist henni. Lífið hafði ekki verið honum auð­velt. Hann var bara sjö ára þegar ég skildi við pabba hans sem drakk mikið og beitti mig lík­am­legu ofbeldi.

Á þeim árum var erf­ið­ara en í dag að vera ein­stæð móðir. Ég varð að þola skít­kast frá minni eigin móður og það var ekki til sá ógifti maður í nágrenn­inu sem hún reyndi ekki að fá til að gift­ast mér. Það end­aði líka með því að ég gift­ist einum þeirra. Hvað gat ég gert? Ég hafði valið um að verða vinnu­kona hjá for­eldrum mínum, blóra­bögg­ull móður minnar eða að koma mér í burtu.

Seinni mað­ur­inn minn er ynd­is­legur. Það eina sem setti strik í reikn­ing­inn var að við urðum að búa fyrstu fimm árin í ris­inu í hjá for­eldrum hans og það tók vissu­lega á taug­arnar. Sonur minn mátti þola for­dóma tengda­móður minnar sem not­aði hvert tæki­færi til þess að kalla hann lausa­leikskróga og gagn­rýndi allt sem hann gerði.

Tannhvöss tengdamamma

Sonur minn átti því ekki náð­uga daga og ég reyndi að bæta honum það með því að dekra við hann. Ég kvart­aði oft við mann­inn minn yfir and­legu ofbeldi móður hans og hvernig hún kæmi fram við son minn en hann sagð­ist ekki vilja blanda sér í málið. Sjálfur skipti hann sér lítið af barn­inu og tal­aði lítið við hann. Það var eins og hann hefði ákveðið að láta sér lynda að hafa fengið barn í kaup­bæti þegar hann gift­ist mér.

„Árin liðu, barna­börnin voru hraust en samt var eitt­hvað ekki alveg eins og það átti að vera.“

Ég var orðin mjög slæm á taugum þegar við loks­ins fluttum í eigið hús­næði. Þá var sonur minn orð­inn stór strákur og eftir að hafa lokið stúd­ents­prófi fór hann að vinna. Hann átti erfitt með að eign­ast vini og var satt að segja svo­lítið und­ar­legur í háttum. Hann hélt sig út af fyrir sig, sagði lítið, gerði það sem hann var beð­inn um en átti aldrei frum­kvæði að einu eða neinu. Sem betur fer gekk honum vel í vinn­unni en ég var hrædd um það að hann myndi aldrei ná sér í konu. Það kom mér því þægi­lega á óvart þegar hann hringdi og spurði hvort hann mætti koma með vin­konu sína í mat til okkar.

Þannig kom þessi fal­lega unga kona inn í líf okkar. Það var eins og að eign­ast eigin dóttir og mað­ur­inn minn kunni meira að segja vel við hana. Þegar þau giftu sig var hann flottur á því og gaf þeim fyrir inn­borgun í íbúð. Sonur minn fékk stöðu­hækkun og fljót­lega sögðu ungu hjónin okkur að þau ættu von á barni. Þau eign­uð­ust dóttur og seinna kom sonur. Ég var yfir mig glöð og þakk­aði Guði fyrir gleð­ina sem sonur minn fékk að njóta eftir alla erf­ið­leik­ana.

Árin liðu, barna­börnin voru hraust en samt var eitt­hvað ekki alveg eins og það átti að vera. Dótt­ur­dóttir mín var mjög lokuð og ég hugs­aði oft með sjálfri mér að hún hefði ekki aðeins fengið útlitið hans pabba síns, hún væri líka með skapið hans.

Mikið grátið

Sprengjan sprakk einn morg­un­inn. Hvert smá­at­riði þessa dags er greypt í huga mér. Maðurinn minn hafði farið í göngutúr og ég var ein heima þegar sím­inn hringdi. Það var eins og ég skynj­aði að ég ætti slæmar fréttir í vændum því ég stóð smá­stund fyrir framan sím­ann áður en ég tók upp tólið.

Ég átt­aði mig ekki strax á því að tengda­dóttir mín væri í sím­anum því hún grét svo mikið. Ég reyndi að róa hana niður og segja mér hvað hefði gerst. Og smátt og smátt fékk ég það upp úr henni að sonur minn hefði verið tek­inn til yfir­heyrslu hjá lög­regl­unni, grun­aður um að hafa mis­notað fimmtán ára dóttur sína. Hún hafði brotnað saman í skól­anum og sagt skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ingnum allt af létta.

Ég varð bál­reið og hugs­aði með mér að þetta hlyti að vera hræði­legur mis­skiln­ingur og hvort hægt væri að taka fimmtán ára ung­ling trú­an­legan.

Spilin á borðið

Maðurinn minn kom að mér þar sem ég æddi bál­reið um gólf. Hann róaði mig niður og heimt­aði að við færum strax heim til tengda­dóttur okkar. Þrátt fyrir áköf mót­mæli mín vissi ég að hann hefði rétt fyrir sér.

Tengda­dóttir mín var útgrátin og dótt­ur­dóttir mín sat í hnipri í sóf­anum. Ég fór að gráta um leið og ég sá þær. Ég upp­götv­aði allt í einu að þetta væri ekki lyga­saga. Að það væri sonur minn sem yrði skrifað um í blöð­unum. Fréttin breidd­ist út eins og eldur í sinu og ég fór ekki úr húsi fyrstu vik­una. Síðan heim­sótti ég son minn. Hann hafði fengið „veik­inda­leyfi“ úr vinn­unni og faldi sig fyrir umheim­inum í sum­ar­bú­staðnum okkar. Við sögðum ekki margt og þegar ég kvaddi var ég ekki margs vís­ari.

„Ég upp­götv­aði allt í einu að þetta væri ekki lyga­saga. Að það væri sonur minn sem yrði skrifað um í blöð­unum.“

Ég hélt áfram að loka mig inni í sorg minni og skömm. En ég vissi að ég gæti ekki falið mig um alla eilífð og þegar þrjár vikur voru liðnar fór ég aftur í heim­sókn til tengda­dóttur minnar. Hún sagði mér að hún væri búin að hafa sam­band við lög­fræð­ing sem ætl­aði að sjá til þess að þau fengju lög­skilnað eins og fljótt og hægt væri. Dóttir hennar væri í góðum höndum hjá sál­fræð­ingi og henni væri strax farið að líða betur. Hún sagði jafn­framt að við tvær yrðum að ræða um son minn.

Ég fékk margt að heyra þennan dag­inn. Að sonur minn bæri djúp sár eftir erf­iða æsku, hann hefði saknað pabba síns og honum hefði liðið hræði­lega árin sem við bjuggum hjá tengda­for­eldrum mínum. Um það hvernig ég hefði gert lítið úr mál­unum í hvert sinn sem hann reyndi að tjá sig um hræðsl­una og kvíð­ann og boðið honum upp á heitt súkkulaði í stað þess að takast á við tengda­móður mína.

Minningarnar streyma fram

Það var eins og lokið sem ég hafði lagt yfir æsku sonar míns þeytt­ist af með hvelli og minn­ing­arnar streymdu fram. Ég sagði tengda­dóttur minni frá hræði­legu hjóna­bandi okkar for­eldra hans, móður minni sem stjórn­aði mér með harðri hendi og hafði, án minnar vit­undar, tekið ákvörðun um að pabbi drengs­ins mætti ekki hafa sam­band við hann og hvernig ég hefði hvorki haft mann­dóm í mér né krafta til þess að mót­mæla. Ég sagði henni frá deg­inum sem pabbi hans hafði komið til að heim­sækja son sinn, þrátt fyrir bannið, og mömmu sem rak hann í burtu fyrir aug­unum á drengnum. Hvernig barnið hefði slitið sig úr fang­inu á mér, kallað á eftir pabba sínum og beðið hann að bíða eftir sér. Það síð­asta sem hann sá af pabba sínum var reyk­mökk­ur­inn sem fylgdi bílnum. Nokkrum vikum síðar drukkn­aði pabbi hans í sjó­slysi.

„Ég sveik son minn með því að taka ekki ábyrgð á lífi okkar og leyfa öðrum að ráða örlögum okkar.“

Tengda­dóttir mín sagði mér að mað­ur­inn hennar hefði geymt minn­ingar um sterkan og traustan faðm pabba sín. Að hann myndi ekki eftir ofdrykkju og stöð­ugum ófriði, og þrátt fyrir alla gall­ana hefði honum þótt vænt um pabba sinn. Hún ákvað í sam­ráði við sál­fræð­ing að sonur minn yrði ekki kærður til þess að forða fjöl­skyld­unni frá því að málið kæmi fyrir dóm­stól­ana. Mér finnst ég eiga mikla sök í þessum fjöl­skyldu­harm­leik. Í dag erum við sonur minn í góðu sam­bandi og ræðum opin­skátt um hlut­ina. Ég hef beðið hann um að fyr­ir­gefa mér afskipta­leysi mitt og van­mátt­inn gegn kon­unum tveimur sem ég leyfði að stjórna lífi mínu.

Dótt­ur­dóttur minni líður vel í dag. Hún mætir alls staðar vel­vild og það sama má segja um fyrr­ver­andi tengda­dóttur mína. Sjálf vil ég ekki fá hjálp. Ég ætla að lifa með sam­visku­bitið og skömm­ina. Ég sveik son minn með því að taka ekki ábyrgð á lífi okkar og leyfa öðrum að ráða örlögum okkar. Sökin er mín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina