Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekki bara góður ilmur …

Ekki bara góður ilmur …

Ilmolíur eru sagðar hafa góð áhrif á fólk, bæði and­lega og lík­am­lega. Þær hafa verið not­aðar til lækn­inga öldum saman í Aust­ur­löndum fjær og vin­sældir þeirra auk­ist mikið á Vest­ur­löndum. Olíurnar eiga að virka vel gegn til dæmis kvefi, bak­verkjum og tíða­verkjum. Einnig eru þær sagðar geta dregið úr dap­ur­leika og aukið sjálfs­traust og hug­rekki.

Auðvelt er að nota ilmol­í­urnar heima við. Það þarf ekki að hella nema nokkrum dropum í serví­ettu til að maður upp­lifi hressandi áhrif ilms­ins.

Ilmolíur eru eimaður jurta­safi án nokk­urra aukefna. Þær eru aldrei bornar beint á húð­ina heldur er þeim blandað saman við jurta­olíu áður en nuddað er með þeim eða þeim hellt út í bað­vatn. Auk þess að hella nokkrum dropum af ilmolíu í serví­ettu er hægt að setja þær á ilmol­íu­lampa og anda ilm­inum þannig að sér.

Aðferð­irnar eru ekki nýjar. Ilmolíur hafa verið not­aðar til heilsu­bótar öldum saman, einkum í Kína og Persíu. Þær urðu vin­sælli á Vest­ur­löndum nútím­ans eftir að franskur vís­inda­maður sem brenndi sig á hendi á fimmta tug síð­ustu aldar losn­aði við sárs­auk­ann er hann af mis­gán­ingi hafði stungið hend­inni í lavend­er­olíu. Læknar á Vest­ur­löndum hafa kynnt sér lækn­inga­mátt ilmol­í­anna í æ rík­ari mæli og er lavender til dæmis not­aður við fæð­ingar sums staðar á Norð­ur­lönd­unum. Svo er lavander dæma­laust góður gegn hinu hvim­leiða lús­mýi.

Nudd

Nudd dregur úr vöðva­verkjum, streitu og kvíða. Það hressir og róar í senn. Fótanudd er það nudd sem auð­veld­ast er að fram­kvæma heima. Byrjaðu á því að fara í fóta­bað. Blandaðu nokkrum dropum af furu­olíu eða pip­ar­myntu­olíu saman við jurta­olíu, til dæmis sesam­olíu. Nuddaðu fæt­urna með olí­unni.

Ilmlampi

Ilmurinn losar and­rúms­loftið við bakt­er­íur og eykur and­lega vellíðan. Kauptu þér ilmol­íu­lampa og fylltu skál­ina með vatni. Helltu síðan í það 4 til 7 dropum af ilmolíu. Vatnið er hitað upp með spritt­kerti og ilm­ur­inn berst um her­bergið. Ef þú ert með gælu­dýr kann­aðu hvort ilm­ur­inn geti verið hættu­legur þeim og veldu þá skað­lausan ilm.

Bað

Með því að setja ilmolíu í bað­vatnið dreg­urðu úr and­legri spennu og lík­am­legum sárs­auka. Helltu þremur til fjórum dropum af olíu í bað­vatnið. Ef þú vilt ekki að olían verði eins og rák á yfir­borði vatns­ins skaltu blanda rjóma eða hun­angi saman við hana áður en þú hellir henni í vatnið.

Innöndun

Hressandi er að anda að sér ilmi frá ilmol­íum. Slíkt er sagt virka vel við höf­uð­verk, melt­ing­ar­trufl­unum, bíl­veiki og flugna­biti. Það eykur einnig ein­beit­ingu og dregur úr streitu.

Helltu einum til tveimur dropum í serví­ettu og and­aðu ilm­inum að þér.

Hvað við hverju?

Bakið: Ef þér er illt í bak­inu gæti ilmur af furu, meiran, múskati eða salvíu hentað vel.

Maginn: Anís, engi­fer, lavender og mandar­ína róa óró­legan maga.

Húðin: Mandar­ínur og rósa­tré henta vel við­kvæmri húð en best fyrir þurra húð eru sand­el­viður og blá­gresi. Fyrir feita húð: lavender, perur og sedrus­tré.

Stress og þreyta: Greip­á­vöxtur, lavender og rósa­tré hafa góð áhrif á skap­sveiflur. Lavender, perur og rósa­tré draga úr stressi og spennu og við þreytu og orku­leysi virka basi­líka, fura og sítróna vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur