Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hefur ekkert á móti Pétri Jóhanni eða Audda Blö

Hefur ekkert á móti Pétri Jóhanni eða Audda Blö
Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Gagnrýni sem Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu, setti fram á Twitter í tengslum við for­síðu­við­tal DV við Auðunn Blöndal um síð­ustu helgi olli fjaðrafoki þegar Hring­braut sló henni upp sem frétt á vef sínum undir fyr­ir­sögn­inni Tara brjáluð yfir helg­ar­við­tali DV við Audda Blö. Í kjöl­farið fékk Tara yfir sig hol­skeflu fúk­yrða í kommenta­kerfi mið­ils­ins þar sem sett var út á útlit hennar, fötlun og holda­far. Hún segir að eðli­lega líði henni ekk­ert alltof vel með að lesa ummælin sem hafa verið látin falla en þau stað­festi fyrir heim­inum að bar­átta hennar eigi rétt á sér.

En út á hvað gengu þessi umdeildu ummæli sem Tara lét falla? „Ég tjáði mig um það á Twitter að ég væri þreytt á að sjá alltaf sama for­rétt­inda­fólkið aftur og aftur í helg­ar­við­tölum fjöl­miðla í stað þess að reyna að leita upp fjöl­breytt­ari flóru fólks og fá nýja vinkla inn í umræð­una. Bara eitt­hvað tuð í mér eins og fólk gerir oft á Twitter,“ segir hún og and­varpar.

„Það sem gerð­ist í kjöl­farið var að Hring­braut tók þess færslu og fjall­aði um hana á vef sínum undir fyr­ir­sögn­inni Tara brjáluð yfir helg­ar­við­tali DV við Audda Blö, þrátt fyrir að ég hefði ekk­ert verið að tala sér­stak­lega um DV né þetta til­tekna helg­ar­við­tal við Auðunn.

„Ég hef ekk­ert per­sónu­lega á móti þeim, en mér finnst áhuga­verð­ara fólk þarna úti til að fá í helg­ar­við­töl og ég hlýt að mega hafa og tjá þá skoðun.“

Ég tók það vissu­lega fram í umræddri færslu að menn eins og Auðunn Blöndal og Pétur Jóhann tækju mikið pláss í fjöl­miðlum,“ við­ur­kennir hún, „en það eru svo sem engar fréttir. Ég hef ekk­ert per­sónu­lega á móti þeim, en mér finnst áhuga­verð­ara fólk þarna úti til að fá í helg­ar­við­töl og ég hlýt að mega hafa og tjá þá skoðun.“

Fyrirsláttur til að réttlæta ofbeldi

Tara fer ekki leynt með þá skoðun að með frétt­inni og fram­setn­ing­unni á henni hafi Hring­braut gert hana að skot­spóni reiðra net­verja. Fjöl­mið­ill­inn hafi snúið út úr orðum hennar og leyft „við­bjóðnum að grass­era í kommenta­kerf­inu“, eins og hún orðar það. Þegar Tara benti á þetta í Facebook-grúpp­unni Fjöl­miðlanördar voru margir sem tóku undir með henni í athuga­semdum, á meðan öðrum fannst við­búið og eðli­legt að hún fengi á sig harða gagn­rýni. Það væri bara fylg­is­fiskur þess að tjá sig opin­ber­lega.

„Þetta er bara fyr­ir­sláttur til að rétt­læta það ofbeldi sem ég og margar aðrar jað­ar­settar konur verðum fyrir,“ bendir hún á. „Þetta tvít hafði ekk­ert frétta­gildi né átti það eitt­hvað sér­stakt erindi við almenn­ing. Þetta voru bara mínar pæl­ingar og skoð­anir. Ég er ekki í ábyrgð­ar­stöðu innan fjöl­mið­ils né í stjórn­málum þar sem ég get haft áhrif á rit­stjórnir fjöl­miðla eða hvaða við­mæl­endur þeir velja í helg­ar­við­töl. Ég hef ekk­ert rit­stjórn­ar­vald neins staðar. Ef svo væri hefði þetta svo sann­ar­lega verið frétt­næmt og gagn­rýn­is­vert af mér. Ég var ekki heldur að tala fyrir þá hópa eða félaga­sam­tök sem ég tala stundum fyrir,“ segir hún og vísar þar í Samtök um lík­ams­virð­ingu sem hún er í for­svari fyrir.

„Eini til­gangur Hring­braut var að fá smelli því það er hópur fólks þarna úti sem veit fátt skemmti­legra en taka mig fyrir og áreita mig ann­að­hvort beint í einka­skila­boðum eða sím­tölum eða óbeint á sam­fé­lags­miðlum og í kommenta­kerf­inu. Með því að túlka tví­tið og setja fyr­ir­sögn­ina upp á þann veg sem þeir gerðu var þessi hópur æstur upp í beita mig ofbeldi,“ segir hún ákveðin, „og með því að gefa kommenta­kerfið frjálst á þann veg sem var gert þarna eru Hring­braut­ar­menn með­sekir með ofbeld­is­mönn­unum.“

Lestu við­talið við Töru í heild sinni hér.

Mynd / Hallur Karlsson
Förðun / Elín Hanna förð­un­ar­fræð­ingur Urban Decay

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu