Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þeir finna alltaf leiðir til að áreita mig og beita mig ofbeldi“

„Þeir finna alltaf leiðir til að áreita mig og beita mig ofbeldi“
Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu. Mynd / Hallur Karlsson

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu, segir fjöl­miðla bera ábyrgð á því hvernig þeir setja æsifréttir upp og hverjar afleið­ingar æsifrétt­anna verða. Gagnrýni sem Tara setti fram á Twitter í tengslum við for­síðu­við­tal DV við Auðunn Blöndal um síð­ustu helgi olli fjaðrafoki þegar Hring­braut sló henni upp sem frétt á vef sínum undir fyr­ir­sögn­inni Tara brjáluð yfir helg­ar­við­tali DV við Audda Blö. Í kjöl­farið fékk Tara yfir sig hol­skeflu fúk­yrða í kommenta­kerfi mið­ils­ins þar sem sett var út á útlit hennar, fötlun og holda­far. Hún segir að eðli­lega líði henni ekk­ert alltof vel með að lesa ummælin sem hafa verið látin falla en þau stað­festi fyrir heim­inum að bar­átta hennar eigi rétt á sér.

Eftir að Tara fór að benda á hvernig fitu- og útlits­for­dómar gegn­sýra sam­fé­lagið og hvernig staðalí­myndum er haldið á lofti hefur hún orðið fyrir alls kyns áreiti, jafn vel aðkasti. Hún lætur það hins vegar ekki brjóta sig niður. Mynd / Hallur Karlsson

„Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart að sumir líta á mig sem hlut en ekki per­sónu með til­finn­ingar,“ segir Tara, þegar hún er spurð hvernig líðan hennar sé eftir ummælin sem voru látin falla um hana á sam­fé­lags­miðlum og í athuga­semda­kerf­inu við frétt Hring­brautar áður en fjöl­mið­il­inn lok­aði á það.

„Yfir­leitt leiði ég þetta hjá mér en stundum verður þetta stjórn­laust eins og um helg­ina og það hefur auð­vitað áhrif. Það var gróf­lega ráð­ist að per­sónu minni, útliti, fötlun og holda­fari og þegar það er svona stór hópur fólks sem leggur sig fram um að áreita mig og níða þá hefur það áhrif á örygg­is­til­finn­ingu mína. Ef þú ert til­bú­inn til að tala um mig af svona mik­illi heift hvað ger­ist þá ef ég mæti þér úti á götu? Þetta er ekki bara hegðun sem á sér stað ein­ungis á net­inu þó fólk vilji halda það.“

Hefur ekkert á móti Pétri Jóhanni eða Audda Blö

En út á hvað gengu þessi umdeildu ummæli sem Tara lét falla? „Ég tjáði mig um það á Twitter að ég væri þreytt á að sjá alltaf sama for­rétt­inda­fólkið aftur og aftur í helg­ar­við­tölum fjöl­miðla í stað þess að reyna að leita upp fjöl­breytt­ari flóru fólks og fá nýja vinkla inn í umræð­una. Bara eitt­hvað tuð í mér eins og fólk gerir oft á Twitter,“ segir hún og and­varpar.

„Það sem gerð­ist í kjöl­farið var að Hring­braut tók þess færslu og fjall­aði um hana á vef sínum undir fyr­ir­sögn­inni Tara brjáluð yfir helg­ar­við­tali DV við Audda Blö, þrátt fyrir að ég hefði ekk­ert verið að tala sér­stak­lega um DV né þetta til­tekna helg­ar­við­tal við Auðunn.

„Ef þú ert til­bú­inn til að tala um mig af svona mik­illi heift hvað ger­ist þá ef ég mæti þér úti á götu?“

Ég tók það vissu­lega fram í umræddri færslu að menn eins og Auðunn Blöndal og Pétur Jóhann tækju mikið pláss í fjöl­miðlum,“ við­ur­kennir hún, „en það eru svo sem engar fréttir. Ég hef ekk­ert per­sónu­lega á móti þeim, en mér finnst áhuga­verð­ara fólk þarna úti til að fá í helg­ar­við­töl og ég hlýt að mega hafa og tjá þá skoðun.“

Fordæmir vinnubrögð Hringbrautar

Tara fer ekki leynt með þá skoðun að með frétt­inni og fram­setn­ing­unni á henni hafi Hring­braut gert hana að skot­spóni reiðra net­verja. Fjöl­mið­ill­inn hafi snúið út úr orðum hennar og leyft „við­bjóðnum að grass­era í kommenta­kerf­inu“, eins og hún orðar það. Þegar Tara benti á þetta í Facebook-grúpp­unni Fjöl­miðlanördar voru margir sem tóku undir með henni í athuga­semdum, á meðan öðrum fannst við­búið og eðli­legt að hún fengi á sig harða gagn­rýni. Það væri bara fylg­is­fiskur þess að tjá sig opin­ber­lega.

„Þetta er bara fyr­ir­sláttur til að rétt­læta það ofbeldi sem ég og margar aðrar jað­ar­settar konur verðum fyrir,“ bendir hún á. „Þetta tvít hafði ekk­ert frétta­gildi né átti það eitt­hvað sér­stakt erindi við almenn­ing. Þetta voru bara mínar pæl­ingar og skoð­anir. Ég er ekki í ábyrgð­ar­stöðu innan fjöl­mið­ils né í stjórn­málum þar sem ég get haft áhrif á rit­stjórnir fjöl­miðla eða hvaða við­mæl­endur þeir velja í helg­ar­við­töl. Ég hef ekk­ert rit­stjórn­ar­vald neins staðar. Ef svo væri hefði þetta svo sann­ar­lega verið frétt­næmt og gagn­rýn­is­vert af mér. Ég var ekki heldur að tala fyrir þá hópa eða félaga­sam­tök sem ég tala stundum fyrir,“ segir hún og vísar þar í Samtök um lík­ams­virð­ingu sem hún er í for­svari fyrir.

„Eini til­gangur Hring­braut var að fá smelli því það er hópur fólks þarna úti sem veit fátt skemmti­legra en taka mig fyrir og áreita mig ann­að­hvort beint í einka­skila­boðum eða sím­tölum eða óbeint á sam­fé­lags­miðlum og í kommenta­kerf­inu. Með því að túlka tví­tið og setja fyr­ir­sögn­ina upp á þann veg sem þeir gerðu var þessi hópur æstur upp í beita mig ofbeldi,“ segir hún ákveðin, „og með því að gefa kommenta­kerfið frjálst á þann veg sem var gert þarna eru Hring­braut­ar­menn með­sekir með ofbeld­is­mönn­unum.“

Tara hefur um ára­bil barist gegn for­dómum og mis­munun á grund­velli holda­fars. Hún er í for­svari fyrir Samtök um lík­ams­virð­ingur og heldur meðal ann­ars úti svoköll­uðu Fitu­for­dóma­albúmi á Facebook , albúmi með skjá­skotum af ýmis­konar fitu­for­dómum og for­dóma­fullum athuga­semdum sem hafa orðið á vegi hennar um inter­netið. Mynd / Hallur Karlsson

Fjölmiðlar beri ábyrgð

Tara segir að fullt af fólki lesi ein­ungis fyr­ir­sagnir og myndi sér skoðun út frá þeim og fyr­ir­sagnir hafi mikil áhrif í að móta upp­lifun og túlkun les­anda af fréttum. Fjöl­miðlar séu vel með­vit­aðir um þetta vald sitt. „Í því sam­hengi vill ég taka fram að á því tíma­bili frá því að ég sendi út tví­tið á laug­ar­dags-morgni og þar til Hring­braut gerði frétt­ina um tíu­leytið sama kvöld vakti það alveg athygli á Twitter en ekk­ert bar á skít­kasti. Það var ekki fyrr en eftir að fréttin birt­ist sem það byrjar og enn er lítið sem ekk­ert um athuga­semdir við tví­tið sjálft heldur var það mest í kommenta­kerf­inu við frétt­ina. Þetta var í alvör­unni ekk­ert merki­legt tvít eða einu sinni merki­leg skoðun þar til Hring­braut setur það í þann bún­ing.“

Hún telur fjöl­miðla líka bera ábyrgð á sínum „plat­formum. Þeir beri ábyrgð á því hvernig þeir setja æsifréttir upp og hverjar afleið­ingar æsifrétt­anna verða. Þeir beri líka ábyrgð á að hafa „hemil á kommenta­kerfum sínum“ ef ákveðið er að hafa þau opin á annað borð. „Opin kommenta­kerfi eru ekki nátt­úru­lög­mál,“ bendir hún á. „Að ætla að setja ábyrgð­ina á mig er ekk­ert annað en þolenda-skömmun.“

Ekki viðkvæm fyrir því að vera minnt á eigin forréttindi

Ekki nóg með að ein­hverjir telji að Tara hafi rétti­lega kallað yfir sig reiði net­verja með fyrr­nefndri Twitter færslu, heldur finnst sumum að hún hafi sjálf gerst sek um for­dóma, for­dóma í garð hvítra mið­aldra karla með því að segj­ast vera orðin „þreytt á hvítum, mið­aldra for­rétt­inda­köllum sem fá for­síðu­plássið hverja helg­ina á fætur annarri hjá öllum fjöl­miðlum“. Hvað finnst henni um þá túlkun? „Ég skil það vissu­lega að ein­hverju leyti en það er vegna þess hve skammt við erum á veg komin með umræðu um for­rétt­indi og jað­ar­setn­ingu. Það að segja að ein­hver hafi for­rétt­indi er ekki móðgun eða skot á við­kom­andi,“ segir hún og nefnir í því sam­hengi að sjálf njóti hún mik­illa for­rétt­inda í sínu lífi og sé ekki við­kvæm fyrir því að vera minnt á það. Þvert á móti finnst henni það nauð­syn­legt.

„Opin kommenta­kerfi eru ekki nátt­úru­lög­mál. Að ætla að setja ábyrgð­ina á mig er ekk­ert annað en þolenda-skömmun.“

„Sem sam­fé­lags­hópur njóta hvítir, mið­aldra karl­menn hvað mestra for­rétt­inda af öllum sam­fé­lags­hópum. Sem sam­fé­lags­hópur hafa þeir lang­mest völd og þeir hafa dag­skrár­valdið í nútíma­sam­fé­lagi,“ heldur hún áfram en tekur fram það sé ekki þar með sagt að karlar úr þessum hópi hafi aldrei gengið í gegnum erf­ið­leika eða orðið fyrir for­dómum og jað­ar­setn­ingu. „Þeir hafa bara ekki orðið fyrir for­dómum og jað­ar­setn­ingu á grund­velli kyns síns eða litarafts. Til þess að ein­hver geti orðið fyrir mis­munun þarf að ríkja valda­ó­jafn­vægi þar sem annar aðil­inn er valda­meiri en hinn og beitir því valdi í þeim til­gangi að mis­muna. Ég sem fötluð, feit kona hef ekki það vald og hef engan áhuga á að hafa það.“

Skotspónn dæmdra nauðgara og glæpamanna

Tara hefur um ára­bil barist gegn for­dómum og mis­munun á grund­velli holda­fars og er einn for­sprakki Samtaka um lík­ams­virð­ingu. Samtökin voru stofnuð árið 2012 af hópi kvenna sem kynnt­ust í gegnum skrif á net­inu og höfðu svip­aðar skoð­anir á almennri orð­ræðu um lík­ams­í­mynd og lík­ams­virð­ingu. Eftir að Tara fór að tjá sig opin­ber­lega um þessi mál­efni og meðal ann­ars benda á hvernig fitu- og útlits­for­dómar gegn­sýra sam­fé­lagið og hvernig staðalí­myndum er haldið á lofti hefur hún orðið fyrir alls kyns áreiti, jafn vel aðkasti. Spurð hvort henni hafi bein­línis borist hót­anir vegna bar­áttu sinnar segir hún að beinar hót­anir hafa hingað til ein­ungis verið í formi hót­ana um lög­sóknir sem síðan aldrei ber­ast. „Ég upp­lifi þó að vegið sé veru­lega að örygg­is­til­finn­ingu minni þegar stór hópur fólks, aðal­lega karlar, safn­ast saman á þennan hátt til að tala um hvað þeim finnst ég ógeðs­leg og mikið úrhrak og að ég eigi allt illt skilið,“ segir hún og á þar við umræð­una sem hefur skap­ast um hana á net­inu.

„Þessir karlar læka og deila á milli sín komment­unum og hreykja sér af þeim. Sumir hafa sagt beint við mig að þeir hafi gaman af því að áreita mig. Einn sagð­ist til dæmis vera stoltur þegar ég benti honum á að inter­nettröll sýni til­hneig­ingu til sið­blindu.“

Tara segir að oft gangi þetta svo langt að dæmi séu um að þessir karlar hafi jafn vel velt fyrir sér hvað þeir vilji gera við hana og það fyrir allra augum í kommenta­kerfum fjöl­miðla. „Ég hef séð hóp af dæmdum nauðgurum og glæpa­mönnum tagga hvorn annan og mig í umræðu á Facebook-síðu Vísis um að þeir vilji taka mig í Bukkake, sem er athöfn þar sem margir karlar sprauta sæði yfir konu,“ lýsir hún.

„Annar hefur talað um að vilja „face-fokka“ mig til að fá mig til að þegja. Í gær var enn komment á Facebook-síðu Hring­brautar við frétt­ina um við­brögð mín við for­síðu­við­tali DV þar sem maður nokkur sagði að ég þyrfti að fá lim og aðrir karlar hlógu að því að það fynd­ust ábyggi­lega ekki sjálf­boða­liðar til þess.“

Fékk óhugnanlegt símtal

Tara segir að þetta virki stundum á hana sem ein­hvers­konar leið til tengsla­mynd­unar karla á milli þegar þeir deila færslum af þessu tagi inni á grúppum á net­inu og eiga þar sam­ræður um hana. „Þetta kemur svo sterkt inn á mál­efni sem er mér svo hug­leikið og ég skrif­aði grein um í Flóru í síð­ustu viku, en hún fjallar um ofbeldið sem feitar konur verða fyrir vegna þeirra hlut­gerv­ingar sem þær verða fyrir af hálfu sam­fé­lags­ins og að feitum þolendum kyn­ferð­is­of­beldis sé síður trúað því að þær séu of óaðl­að­andi til að nokkrum dytti í hug að nauðga þeim.“

Tara seg­ist fá enda­laus nei­kvæð skila­boð á Facebook sem hún reyni að hunsa eftir fremsta megni. Áreitið bygg­ist þó ekki ein­göngu á net­níði. „Í maí náði maður undir nafn­lausum prófíl að hringja í mig í gegnum Messen­ger og öskr­aði á mig í tvær mín­útur um hvað ég væri ógeðs­leg, við­bjóðs­leg og mikil byrði á skatt­kerf­inu,“ nefnir hún sem dæmi. „Ég ætti allt illt skilið því hann vissi ekki um neitt ógeðs­legra.“

„Þrátt fyrir að ég sé ein­hver „opin­ber per­sóna“ þýðir það ekki að ég sé þar með bara ein­hver hlutur fyrir fjöl­miðla til að brúka fyrir smelli.“

Áreitið sé búið að vera svo mikið að hún hafi ekki þorað öðru en að láta fjar­lægja allar per­sónu­legar upp­lýs­ingar um sig á net­inu. Hún vilji ekki taka neina sjensa. „Ég lét afskrá mig á já.is svo að það er ekki hægt að finna síma­númer mitt né heim­il­is­fang og ég lét líka taka bíl­núm­erið mitt af skrá svo það sé ekki hægt að fletta því upp og finna heim­il­is­fangið mitt í gegnum það,“ segir hún. „En það dugir ekki til. Þeir finna alltaf leiðir til að áreita mig og beita mig ofbeldi. Það eru raun­veru­legar og áþreif­an­legar afleið­ingar af þess­ari orð­ræðu og við getum ekki lengur litið fram hjá þeim.“

Ekki bara hlutur til að brúka smelli

Tara telur að þarna hafi fjöl­miðlar mik­il­vægu ábyrgð­ar­hlut­verki að gegna og þeir geti klár­lega bætt sig. „Ekki spurn­ing. Til að byrja með má kannski spyrja sig hver til­gang­ur­inn er með svona æsifréttum,“ nefnir hún, „hvort þær hafi raun­veru­legan til­gang og eiga erindi við almenn­ing? Ef sú er nið­ur­staðan þá finnst mér lág­mark að haft sé sam­band við ein­stak­ling­inn sem um ræðir.“

Hún segir að sem dæmi hafi Hring­braut­ar­fréttin um fyrr­nefnd ummæli hennar á Twitter verið í loft­inu í 18 klukku­stundir áður en hún vissi yfir­höfuð af henni. „Ef það hefði verið haft sam­band við mig hefði þessi fyr­ir­sögn aldrei orðið til ásamt ógeð­inu sem henni fylgdi. Það má líka aðeins staldra við og íhuga hverjar afleið­ing­arnar eru fyrir ein­stak­ling­inn. Þrátt fyrir að ég sé ein­hver „opin­ber per­sóna“ þýðir það ekki að ég sé þar með bara ein­hver hlutur fyrir fjöl­miðla til að brúka fyrir smelli.“

Talað fyrir daufum eyrum

Tara segir að fjöl­miðlar sem stundi svona vinnu­brögð viti nákvæm­lega hvað þeir séu að gera enda séu þessar „fréttir“ ávallt undir nafni rit­stjórnar. „Fjöl­miðlar hafa meira að segja gengið svo langt að bjóða einum áreit­ara mínum í útvarps­við­tal í þeim eina til­gangi að tala um mig og það þrátt fyrir að ég hafi áður átt prí­vat sam­tal við einn þátta­stjórn­and­ann um við­kom­andi ein­stak­ling þar sem hann for­dæmdi hegðun hans.“

Að mati Töru er ekki í boði að „leiða þetta bara hjá sér“ þegar hlut­irnir eru komnir á þetta stig, eins og svo margir hafi ráð­lagt henni að gera í góðri trú. „Ég og fleiri þolendur þessar teg­undar ofbeldis höfum margoft reynt að vekja upp umræðu um afleið­ing­arnar af svona hátta­lagi og að þær hafi áþreif­an­leg áhrif á okkur,“ bendir hún á. „Hingað til höfum við talað fyrir daufum eyrum.“

Óskaði svara frá Hringbraut

Hvað varðar aftur frétt­ina á Hring­braut, þá seg­ist Tara hafa sent stjórn­endum vef­síð­unnar skila­boð og spurt hver pæl­ingin væri með því að birta frétt um tví­tið hennar með „vill­andi og gild­is­hlað­inni fyr­ir­sögn“, eins og hún orðar það. Fékk hún ein­hvern tím­ann svör við þeirri spurn­ingu? „Nei, ég hef ekk­ert heyrt frá þessum aðilum. Þeir upp­lifa mig og fleiri konur sem þeir taka svona fyrir sem jafn mikla hluti og virkir í kommenta­kerf­unum. Við þjónum ein­göngu þeim til­gangi að hala inn smellum.“

Hún tekur fram að á end­anum hafi Hrin­braut lokað fyrir kommenta­kerfið við frétt­ina. „En það liðu tveir sól­ar­hringar frá því fréttin var sett í loftið og næstum heill sól­ar­hringur frá því ég hafði beint sam­band við umsjón­ar­fólk síð­unnar þar til það var gert. Það var ekki fyrr en umræða hafði mynd­ast inn á Fjöl­miðlanör­dum sem næg pressa mynd­að­ist til að þeir lok­uðu.“ Hún bætir við að enn sé þó hægt að kommenta við frétt­ina á Facebook-síðu Hring­brautar og þar fái við­bjóð­ur­inn að grass­era.

„En það sem þessir karlar átta sig ekki á er að þeir eru að stað­festa fyrir öllum heim­inum að bar­áttu­mál mitt á rétt á sér.“ Mynd / Hallur Karlsson

Staðfesting á því að baráttan eigi rétt á sér

Tara er búin að standa í sinni bar­áttu í nokkurn tíma, mörg ár svo farið sé með rétt mál og því er ekki úr vegi að spyrja í lokin hvort hún sé aldrei að því komin að missa móð­inn, hvort hún sé hrein­lega aldrei að því komin að gef­ast upp á þessu öllu saman? „Ég fæ alltaf nóg inn á milli,“ játar hún, „og tek mér þá hvíld.

En það sem þessir karlar átta sig ekki á er að þeir eru að stað­festa fyrir öllum heim­inum að bar­áttu­mál mitt á rétt á sér. Flest fólk sem hefur kannski efast um minn mál­stað þarf ekki nema að renna einu sinni yfir kommenta­kerfin til að sjá hvernig fitu­for­dómar og kven­hatur lifir góðu lífi,“ segir hún ákveðin. „Kommenta­kerfið er því ekki að fara að stöðva mig í bráð.“

Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Elín Hanna förð­un­ar­fræð­ingur Urban Decay

Sjá einnig: Hefur ekk­ert á móti Pétri Jóhanni eða Audda Blö

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu